Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Ég ber nú trúlega nokkra ábyrgð á því að hér hefur verið kvöldfundur og er nú orðinn næturfundur. En ég tel að þessi fundur hafi verið mjög merkur. Ég vil taka undir það sem hv. 4. þm. Reykv. sagði hér og vegur þungt því þar talar formaður utanrmn., þegar hann undirstrikar að hér hafi verið gefnar sögulegar yfirlýsingar.
Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir þá skýlausu yfirlýsingu sem hann gaf um að innganga í Efnahagsbandalag Evrópu væri ekki á dagskrá í bráð eða lengd. Það var mjög mikils virði að fá afdráttarlausa yfirlýsingu um þessa hluti. Ég vil einnig þakka alveg sérstaklega Þorsteini Pálssyni, hæstv. sjútvrh., fyrir mjög afdráttarlausa yfirlýsingu í því viðkvæma máli hvenær augljóst væri að við gætum ekki verið þátttakendur í því Evrópska efnahagssvæði sem umræðan hefur staðið um. Ég met það svo að þessar yfirlýsingar séu sögulegar og ég met það líka svo að yfirlýsing hæstv. sjútvrh. sé að því leyti tímamótayfirlýsing að ég hygg að á bak við hana standi þingflokkur Sjálfstfl., annaðhvort allur eða að mestu leyti óskiptur. Ég tel þess vegna að hér hafi gerst stórir atburðir í kvöld.
Ég hjó eftir því hjá hæstv. utanrrh. að honum fannst ég hafa flutt skemmtilega ræðu fyrr í kvöld. Stundum er nauðsyn að haga þannig máli að ráðherrar fari ekki strax í hliðarsali heldur sitji og hlusti og verður þá eitthvað til ánægju að vera samofið því að gjarnan er verið að deila á eitthvað í þeirra vinnu og þess vegna nauðsyn að gera þeim eitthvað til geðs. En það kom aftur á móti fram að hann vildi mjög ákveðið bera það af sér að um nokkurt yfirþjóðlegt vald væri að ræða í þeirri umræðu sem fram færi um Evrópskt efnahagssvæði. Þá þótti mér einnig mjög virðingarvert að hæstv. sjútvrh. staðfesti þann skilning margra hér að vissulega væri verið að ræða þar um yfirþjóðlegt vald. Hann tók mjög skýrt dæmi um yfirþjóðlegt vald sem Íslendingar hefðu undirgengist, þ.e. Mannréttindadómstólinn. Við skrifuðum undir ákveðna yfirlýsingu og afsöluðum okkur örlitlu broti af okkar fullveldi með því tiltæki á sviði mannréttindamála sem hefur kostað okkur hundruð milljóna í beinum útgjöldum frá ríkissjóði. Engu að síður gerðum við þetta.
Ég er svo íhaldssamur á þessum sviðum að það er greypt í minn koll: Utanstefnur viljum vér engar hafa. Mér þykir vænt um að hv. 4. þm. Reykv. kinkar kolli og man greinilega úr hvaða texta þetta er tekið. Það er nefnilega grundvallaratriði hjá lítilli þjóð að gera sér grein fyrir því að það er hægt að tína af henni í róglegheitunum smátt og smátt meira og meira af hennar fullveldi og þess vegna er það ekki rétt hjá hæstv. utanrrh. að ætla hér að halda uppi sjónhverfingum í þessum efnum. Það bara gengur ekki.
Ég hef hlustað á þær athugasemdir frá fulltrúa Kvennalistans að skýjahnoðrar við sjóndeildarhring hafi verið þeim nægt vegarnesti til að sjá fyrir hvernig veður yrði þegar þeir hnoðrar væru komnir yfir höfuðið á þeim. Það er út af fyrir sig spámannlega sagt að slík skarpskyggni sé til staðar. En ég hef aftur á móti aldrei séð þessar augnhlífar á veðhlaupahestunum sem hún talaði um að væru á okkur stjórnarsinnunum fyrrverandi. Þessar augnhlífar á hrossum voru yfirleitt notaðar á dráttarklárana en það má vel vera að hún hafi séð þetta einhvers staðar á veðhlaupahestum en það er mér hulin ráðgáta hvar það hefur verið. Hvað sem því líður er það rétt að við höfum margir beðið átekta með að taka um það ákvörðun hvort við teldum að þessir samningar mundu leiða til þeirrar niðurstöðu að við gætum stutt þá eða ekki. Mér er ljóst í dag að þeir leiða ekki til þeirrar niðurstöðu að ég treysti mér til að styðja þá. Það er búið að ganga frá það mörgum atriðum og það er búið að draga upp þá mynd af þessu að ég tel það óásættanlegt.
Hins vegar er það ekki rétt að ég hafi haldið því fram að verið væri að selja Ísland. Ég sagði að fullveldið væri ekki til sölu. Það hefur verið staðfest hér í þingsölum af valdamönnum þessarar þjóðar að fullveldið er ekki til sölu. Hins vegar varð hæstv. utanrrh. það á að segja eitt óþægilegt nei, það var að vísu í reykingasalnum, alveg á landamærum þess hvort hann væri í þingsalnum eða ekki. ( HÁ: Kominn inn fyrir.) Kominn inn fyrir, þar með fer það í þingtíðindi og það er nú verkurinn því þetta nei var svo hættulegt að hæstv. iðnrh. taldi að það yrði að breyta um leikreglur í krossaprófinu og taka upp alveg nýjan flokk sem ekki sést almennt í krossaprófum og það er orðið ,,athyglisvert``, enda verða öll próf eftirleiðis ,,já, nei eða athyglisvert``.
Hins vegar gerðist það að hæstv. forsrh. sýndi að því leyti snilld sína að hann lýsti því hér yfir að hann hefði ekki séð þennan ágreining. Það var einnig hárrétt og satt hjá hæstv. forsrh. því hann var ekki sjáanlegur, hann var aftur á móti heyranlegur þeim sem voru í þingsalnum.