Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
    Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Núverandi ríkisstjórn hefur haft þrjár vikur til að fara í saumana á þeim veruleika sem blasir við í íslenskum efnahagsmálum. Staðreyndir um ástand fjármálanna eftir fyrstu fjóra mánuði ársins og afkomuhorfur á árinu öllu hafa nú verið dregnar saman. Myndin sem blasir við er allt önnur en sú sem fyrrv. fjmrh. dró upp fyrir þjóðina fyrir kosningar. Vaxandi viðskiptahalli, auknar erlendar lántökur og mikill halli á ríkisbúskapnum eru allt staðreyndir sem nú liggja fyrir. Þetta er afleiðing af stefnu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar sem þráaðist við að viðurkenna staðreyndir efnahagslífsins.
    Þegar fjárlög voru afgreidd var gert ráð fyrir að rekstrarhalli ríkissjóðs, þ.e. útgjöld umfram tekjur, yrði rúmlega 4 milljarðar kr. Nú er ljóst að hallinn stefnir að óbreyttu í meira en 9 milljarða. Ástæðurnar fyrir þessum mikla mun eru útgjöld, ákveðin af fyrrv. ríkisstjórn eftir að fjárlög voru afgreidd en á síðustu stjórnardögum hennar var m.a. gengið frá samningum um skólabyggingar og fleira upp á milljarða króna. Ástæðan er enn fremur kjarkleysi fyrrv. ríkisstjórnar við að standa við þann sparnað og þá tekjuöflun sem ákveðin hafði verið og loks er ástæðan vanáætlanir í fjárlögum.
    Samkvæmt fjárlögum var gert ráð fyrir að ríkissjóður þyrfti að taka tæplega 6 milljarða kr. að láni innan lands til eigin fjármögnunar. Nú bendir flest til þess að lánsfjárþörf ríkissjóðs verði tvöfalt meiri eða yfir 13 milljarðar á árinu ef ekki verður gripið til sérstakra aðgerða. Til viðbótar lánsfjárþörf ríkissjóðs þarf opinbera húsnæðiskerfið á rúmlega 20 milljarða lántöku að halda að óbreyttu. Samanlagt má því gera ráð fyrir að lánsfjárþörf hins opinbera sé 33 -- 34 milljarðar kr. í ár í stað 23 -- 24 milljarða eins og fjárlög gerðu ráð fyrir. Með öðrum orðum, ef ekkert verður aðhafst hefur lánsfjárþörf ríkisins aukist um 10 milljarða kr.
    Þessar tölur, þessi vandi sem fyrrv. ríkisstjórn lætur eftir sig segir þó ekki nema hluta sögunnar. Á sama tíma og fyrrv. ríkisstjórn lofaði sífellt að taka að sér ný verkefni sem ríkið átti að fjármagna með innlendri lántöku sveikst hún um að afla fjárins. Þetta hefur leitt til þess að við stjórnarskiptin um sl. mánaðamót var yfirdráttur í Seðlabanka yfir 9 milljarðar sem er þrefalt hærri upphæð en á sama tíma árið áður. Slík skuldasöfnun jafngildir í raun erlendri lántöku og hefur nákvæmlega sömu þensluáhrif í efnahagskerfinu. Á sama tíma og þetta var að gerast leyfir fyrrv. fjmrh. sér að auglýsa á kostnað ríkisins að honum hafi tekist að koma í veg fyrir erlendar lántökur og að staða ríkisfjármálanna sé í góðu lagi. Slík er bíræfni sjónhverfingamannsins Ólafs Ragnars Grímssonar, þess hins sama sem áðan reyndi fyrir sér í þessum ræðustól með því að telja okkur trú um að hvítt sé svart og svart sé hvítt.
    Hver er svo ástæðan fyrir þessum miklu umskiptum í lánsfjáröflun ríkissjóðs? Að mati sérfræðinga er ástæðan fyrst og fremst sú að fyrrv. ríkisstjórn neitaði að viðurkenna þá staðreynd að raunvextir á lánsfjármarkaðinum höfðu hækkað. Forsrh. og fjmrh. fyrrv. ríkisstjórnar virtust trúa því að hægt væri að tala vextina niður eða berja þá niður með handafli. Árangurinn af þessari trú þeirra félaga lýsir sér m.a. í því að eyðslan hefur aukist til muna og sparnaður hrunið. Tölurnar eru stórar. Ríkið þarf 10 þús. millj. kr. meira í sinn hlut á árinu á sama tíma og sparnaður er 12 þús. millj. kr. minni en áður var talið. Nú er svo komið að allur nýr sparnaður landsmanna er langt frá því að duga fyrir þörfum ríkisins og þá er ekkert verið að hugsa um lánsfjárþörf fyrirtækja og heimila í landinu.
    Fyrrv. fjmrh. hélt blaðamannafund daginn fyrir stjórnarskiptin þegar honum var ljóst að ný ríkisstjórn tæki við daginn eftir. Þrátt fyrir fyrirliggjandi upplýsingar í ráðuneytinu hélt hann því fram á þeim fundi að horfurnar í rekstri ríkisins samrýmdust áformum fjárlaga. Vitneskjan var til í fjmrn., staðreyndin var til, en fyrrv. fjmrh. vildi ekki koma réttum upplýsingum til skila. Ólafur Ragnar Grímsson verður að svara nokkrum spurningum ef hann ætlast til þess að það sé yfirleitt tekið mark á honum.
    1. Hvernig ætlaði ráðherrann fyrrv. að ná hallanum niður í fjárlagatöluna? Þar munar um 5 milljörðum kr.
    2. Ætlaði hann að hækka skatta? Hvaða skatta og hve mikið? Sem dæmi má nefna að það þarf að hækka virðisaukaskatt um 3 prósentustig til að afla nægilegra tekna til að brúa bilið. Slíkt mundi hækka framfærslukostnað heimilanna um 2%.
    3. Ætlaði hann að skera niður útgjöld? Hvaða útgjöld?
    4. Ætlaði hann að falla frá því að nota þær heimildir sem þáv. ríkisstjórn hafði aflað sér? Hvernig ætlaði fyrrv. ráðherra að afla lánsfjár ef hann vildi ekki hækka raunvexti spariskírteina? Og ef ætlunin var að grípa til aðgerða eins og Ólafur Ragnar Grímsson sagði hér áðan, af hverju gerði hann það ekki fyrir kosningar? Hvernig stendur á því að maðurinn greip ekki til aðgerða fyrir kosningar?
    Við þann viðskilnað fyrrv. ríkisstjórnar sem nú blasir við er það skylda Ólafs Ragnars, og reyndar einnig Steingríms Hermannssonar, að svara þessum spurningum málefnalega ef þeir vilja láta taka sig alvarlega.
    Sú mynd sem ég hef verið að lýsa hér af ástandi ríkisfjármálanna er mjög dökk og miklu skuggalegri en flestir gátu átt von á. Ég vil ekki líta þannig á að ráðherrar í fyrrv. ríkisstjórn hafi vísvitandi ætlað sér að koma efnahagslífinu á vonarvöl. Það breytir því hins vegar ekki að óstjórnin í ríkisfjármálum og peningamálum er efnahagsvandi sem grafið hefur undan forsendum þeirrar sáttargerðar sem verkalýðshreyfingin og vinnuveitendur gerðu á síðasta ári og þáv. ríkisstjórn lofaði að virða. Með aðgerðum sínum hefur fyrrv. ríkisstjórn sett efnahagslífið úr jafnvægi á nokkrum mánuðum þannig að grípa verður til viðnámsaðgerða nú þegar til að koma í veg fyrir verstu afleiðingarnar. Svigrúm ríkisstjórnarinnar til aðhaldsaðgerða á þessu ári er takmarkað. Fjárlagaárið er nærri hálfnað. Þá gengust stjórnvöld undir skuldbindingar í tengslum við framlengingu kjarasamninga sl. haust sem enn þrengja möguleika ríkisstjórnarinnar. Aðgerðirnar munu því fyrst og fremst beinast að því að draga úr lánsfjárþörf ríkissjóðs og annarra opinberra aðila og freista þess að efla innlendan sparnað. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að hækka vexti af spariskírteinum ríkissjóðs um 1,5 -- 1,9%. Jafnframt verða niðurgreiddir vextir Byggingarsjóðs ríkisins hækkaðir samkvæmt fyrirliggjandi tillögu stjórnar Húsnæðisstofnunar.
    Þessar aðgerðir eru að sjálfsögðu ekki frekar brot á þjóðarsáttinni en þegar síðasta ríkisstjórn, ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar, hækkaði vexti sl. sumar og sl. haust. Maður getur spurt þessa herramenn: Voru þeir þá viljandi að splundra þjóðarsáttinni, nokkrum mánuðum eftir að hún var gerð? Það er ekki málefnaleg röksemd sem kemur fram í slíkum ummælum.
    Ríkisstjórnin vonast til að þessar aðgerðir mæti skilningi og hljóti stuðning allra þeirra sem vilja halda verðbólgunni í skefjum og ná á ný jafnvægi og stöðugleika í efnahagslífinu. Og þessar aðgerðir verða lagðar fram í skýrslu á morgun og verða ræddar í framhaldi þeirra umræðna sem hér hafa hafist í kvöld.
    Við verðum að hafa það í huga Íslendingar að ekki er hægt að gera alla hluti í einu. Eina leiðin til að koma í veg fyrir skattahækkanir er að hægja á ferðinni, draga úr eyðslunni og sýna ráðdeild og sparsemi. Í þeim efnum ber ríkinu að ganga á undan með góðu fordæmi.
    Góðir áheyrendur. Meginmarkmið ríkisstjórnarinnar er að rjúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun í atvinnulífinu og að tryggja stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin stefnir jafnframt að því að aðlaga íslenskt efnahagslíf að Evrópu framtíðarinnar. Til að ná þessum markmiðum skiptir miklu máli hvernig haldið verður á ríkisfjármálunum á næstunni. Ég hef hér rætt um brýnustu aðgerðir í þessum efnum. Þegar horft er til lengri tíma er m.a. nauðsynlegt að skattlagning fyrirtækja verði samræmd því sem gerist með samkeppnisþjóðum og draga þarf úr umsvifum ríkisins. Til þess að svo geti orðið mun ríkisstjórnin breyta ríkisfyrirtækjum í hlutafélög, hefja sölu þeirra þar sem samkeppni verður við komið, breyta þjónustustofnunum í sjálfstæðar stofnanir og bjóða út verkefni í ríkisrekstri. Á grundvelli stefnu frelsis og valddreifingar ætlar ríkisstjórnin í samvinnu við þjóðina að rjúfa kyrrstöðuna, treysta atvinnulífið og efla hagsæld hér á landi. --- Góðar stundir.