Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Það bar svo við að forustumenn ríkisstjórnarinnar, annars vegar hæstv. forsrh. og hins vegar hæstv. utanrrh., vitnuðu báðir í látna menn þegar þeir vildu undirstrika mikilleik þeirrar stefnu sem nú væri upp tekin. Hæstv. utanrrh. vitnaði í ræðu þá er merkust hefði verið haldin á Alþingi og vildi með því móti koma því á framfæri að hann tæki það eitt sér til fyrirmyndar sem gott væri. Reyndar var þetta áður en hv. 3. þm. Vestf. flutti hér ræðu sína áðan.
En hvað um það. Efasemdarmenn voru í salnum og þau undur gerðust að hv. 9. þm. Reykv. dró það mjög í efa að satt væri frá sagt af hæstv. utanrrh. Sá maður sem flutti hina merku ræðu og gagnorðu eins og utanrrh. hafði frá sagt var Þorgeir Hávarsson. En aftur á móti vildi hv. 9. þm. Reykv. halda því fram að hér væri um Þorgeir Ljósvetningagoða að ræða. Nú veit ég það að hæstv. utanrrh. þekkir vel til sögu Vestfjarða og á Þorgeiri Hávarssyni hefur hann full deili. Hins vegar er mér ekki kunnugt um það hvort hann veit eitthvað um Þorgeir Ljósvetningagoða. Það er þó hugsanlegt en þar er um mann úr Þingeyjarsýslu að ræða.
Ég vil aftur á móti vekja athygli á því að Þorgeir Hávarsson orðaði í mjög stuttu máli það sem hann hafði merkast sagt um dagana. Með leyfi forseta hljóðar þetta svo:
,,Það bar til um vorið eftir að þeir Þorgeir og Þormóður fóru norður á Strandir og allt norður til Horns. Einn dag fóru þeir í bjarg að sækja sér hvannir og í einni tó er síðan er kölluð Þorgeirstó skáru þeir miklar hvannir. Skyldi Þormóður þá upp bera en Þorgeir var eftir. Þá brast aurskriða undan fótum hans. Honum varð þá það fyrir að hann greip um einn hvannnjóla með grasinu og hélt þar niðri allt við rótina, ella hefði hann ofan fallið. Þar var sextugt ofan á fjörugrjót. Hann gat þó eigi upp komist og hékk þar þann veg og vildi þó með öngu móti kalla á Þormóð sér til bjargar þó að hann félli ofan á annað borð og var þá bani vís sem vita mátti.
Þormóður beið uppi á hömrunum því að hann ætlaði að Þorgeir mundi upp koma. En er honum þótti Þorgeiri dveljast svo miklu lengur en von var að, þá gengur hann ofan í skriðuhjallana. Hann kallar þá og spyr hví hann komist aldrei eða hvort hann hefur enn eigi nógar hvannirnar. Þorgeir svarar þá með óskelfdri röddu og óttalausu brjósti: ,,Eg ætla,`` segir hann, ,,að eg hafi þá nógar að þessi er uppi er eg held um.``
Ég efa að annar hafi nú flutt á gagnorðari hátt sitt mál, en nokkuð hefur þetta í munnlegri geymd hæstv. utanrrh. lengst því að þar hefur það að ræðu orðið. En einnig hefur líka nokkuð ruglast til með staðinn því að hann villist á fuglabjargi og Almannagjá, en þar hefur brattlendi á báðum stöðum orðið vafalaust til að villa um fyrir honum.
Ég vil aftur á móti að það sé á hreinu og hv. 9. þm. Reykv. velkist ekki í neinum vafa um það hver það er sem hæstv. utanrrh. hefur því sem næst gert að leiðtoga lífs síns í vopnaburði hér í þingsölum.
Ég tel að þá sé næst að víkja þar að í ræðu hæstv. forsrh., sem nú er stjórnandi þessa lands, og vísa á bug þeim misskilningi sem hér kom fram í ræðu hv. 3. þm. Vestf. að samhliða bæri að ræða stefnuræðu hæstv. fyrrv. forsrh. frá 1988. Hæstv. núv. forsrh. minnist á það í sinni ræðu að honum hafi verið sögð saga í barnaskóla af Persakeisara sem lét flengja sjóinn með svipum vegna þess að sjógangur torveldaði stríðsáform hans. Og með leyfi forseta er það orðrétt svo sem hann leggur út af þessu:
,,Þessi keisari skildi ekki hversu lítils maðurinn má sín gagnvart máttarvöldum og gagnvart hinum hörðu lögmálum sem um alla menn gilda.``
Í þessari yfirlýsingu er hæstv. forsrh. í allri hógværð að vekja á því athygli að honum sé ekki áfátt sem Persakeisara að þessu leyti að hann skilji gjörla hversu lítill maðurinn er gagnvart hinum hörðu lögmálum. Auðvitað er þetta í beinum tengslum við það sem kemur svo í framhaldi seinna í ræðunni þar sem hann vekur athygli á því að hófstilling og skilningur á eigin takmörkunum hlýtur að vera aðalsmerki vestrænna stjórnmálamanna.
Mér er það nú nokkuð umhugsunarefni satt best að segja hvort það séu höfuðeinkenni hæstv. forsrh. sem taldi að annað minna hlutskipti kæmi nú varla til greina ef hann yfirgæfi borgarstjórastól Reykjavíkur en að gerast forsætisráðherra á Alþingi strax og hann væri kominn hér inn. En hvað um það. Við skulum örlítið hugsa um bakgrunninn. Persakeisari var á sínum tíma stjórnandi yfir mjög stóru og voldugu ríki og vestræn menning má þakka guði fyrir að hæfileikar hans voru ekki meiri en þeir þó voru því að svo mjög saumaði hann að Grikkjum að aðrir veittu þeim ekki meiri skráveifu. Hann fór með her sinn yfir Dardanellasundið með því að láta herskipin mynda flotbrú yfir og reið þar yfir með sitt riddaralið. En hver var vandi hans á ströndinni forðum þegar hann gaf hermönnunum fyrirmæli um að fara að berja sjóinn? Vandi hans var sá að hann var með her sem var aðgerðarlaus og hann þurfti að koma í veg fyrir það að þeir dræpu hvern annan. Og til þess að fela þeim einhver verkefni sem mundu nú þreyta herinn en jafnframt halda honum til hæfilegs aga taldi hann vitlegast að láta þá berja sjóinn. Og það skulu þeir vita að sá her sem öllu hlýðir að hann jafnvel hlýddi þeim fyrirmælum foringja síns að berja sjóinn barðist af þeirri hörku hinum megin að ekki var á bætandi og vafalaust kannast margir við það sem Magnús Ásgeirsson orti um: Lofsöngskórarnir lyfta í hæðir Leonidasi og falli hans. En þessi frægi hershöfðingi Spartverja varði Laugarskarð þar til þeir féllu félagar hans fyrir innrásarherjum Persanna.
Ég er ekki viss um að allt sem við látum aðhafast í dag og flokkum undir þjálfun þess efnis þætti standast tímans tönn ef horft væri í fjarlægð á það. Einu sinni bárust þær fréttir með blöðum að víkingasveitin íslenska hefði öll fengið fyrirmæli um það að stökkva fram af palli og niður í sandbing og væri komin á sjúkrahús vegna þess að þetta var meira en þeir voru færir um og höfðu menn brákast á ökklum
eða annars staðar við byltuna því að sandbingurinn reyndist freðinn. Þeir tóku nú ekki betur flugið í það skiptið þó að hraustir væru. Hins vegar eru ekki neinar fréttir af því að einn einasti hermaður Persakeisara hafi skaðast á því að berja sjóinn en það gerðu þeir svikalaust ef marka má söguna.
Ég spyr aftur á móti sjálfan mig að því hvort sú stefnumörkun sem birtist í ræðu hæstv. forsrh. og er að finna á bls. 14 í þeirri ræðu sem okkur var send og ætti að vera aðalumhugsunarefnið fyrir hv. 3. þm. Vestf. segi mönnum að nú séu komnir þeir menn til valda sem þekki sín takmörk. En þar stendur svo, með leyfi forseta:
,,Í tengslum við peningamál er rétt að vekja sérstaka athygli á því ákvæði stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar að kannaðir verði kostir þess að tengja íslensku krónuna við evrópska myntkerfið og stuðla þar með að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Sú hugsanlega tenging er til marks um þann ásetning ríkisstjórnarinnar að gera þau kjör sem íslenskir atvinnuvegir búa við sambærileg við það sem gerist í öðrum löndum. Ramminn í peningamálum hefur verið of veikur og óhjákvæmilegt að styrkja hann.`` Hæstv. viðskrh. notar það orð um þetta að nú eigi að ,,aga`` íslenskt atvinnulíf. Hæstv. fjmrh. talar aftur á móti út um borg og bí um þetta tæpitungulaust og segir að hugsunin sé sú að þeir stefni að því að binda þetta fast. Þetta er ekki algerlega skýrt orðað, hv. 3. þm. Vestf. Það er látið í það skína að það eigi að athuga þetta, en fjmrh. undirstrikar að það eigi að gera þetta. Hæstv. forsrh. sagði aftur á móti að þetta þýddi ekki endilega stöðugt gengi, þýddi ekki endilega blýfast gengi. Ef það er bundið fast, þá er það illa bundið ef það fylgir ekki eftir því gengi sem hér er verið að tala um.
Vissulega eru þessi atriði í stefnuskránni mér ærið áhyggjuefni. Það varð ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar að falli að hún ofmat styrkleika stjórnmálamanna. Hún hélt að hægt væri að halda gengi íslensku krónunnar föstu eins og stjórnmálamenn vildu. Það væri hægt að binda það fast. Við munum eftir hvað gerðist á vordögum þegar hæstv. forsrh. þeirrar ríkisstjórnar ætlaði til Ameríku. Þá gerðist það að gjaldeyririnn sópaðist út úr bönkunum með ævintýralegum hraða og lögmál markaðarins tóku við. Lögmál markaðarins sem ég hélt að hæstv. forsrh. gerði sér grein fyrir. Samkvæmt lögmálum markaðarins ræður Bandaríkjaforseti ekki skráningu Bandaríkjadollars. Margrét Thatcher réði ekki skráningu pundsins og ekki heldur núv. forsætisráðherra þar. Okkur berast þær fréttir að á fjármagnsmörkuðum og uppboðsmörkuðum hækki pundið eða lækki, hækki Bandaríkjadollar eða lækki. Sem sagt, markaðslögmálin eiga að gilda undir þessum kringumstæðum. En hér dettur mönnum í hug að hægt sé að afnema öll markaðslögmál og binda þetta fast.
Ég hef varpað þeirri spurningu fram hvort menn treystu sér til að reka verslun hér í Reykjavík ef maðurinn sem kemur inn af götunni fær að ákveða verðið á vörunni í búðinni. Treysta menn sér til að reka
verslun undir þessum kringumstæðum? Eru menn ekki með fastgenginu að segja við þá sem framleiða íslenskan gjaldeyri og framleiða erlendan gjaldeyri: Við viljum ráða á hvaða verði hann er keyptur. Við viljum ráða því, þ.e. kaupandinn vill ráða. Hann vill ekki láta markaðslögmál ráða á hvaða verði hann er keyptur. Hann vill að Seðlabanki Íslands segi við manninn sem er búinn að afla þessa gjaldeyris: Ég ætla að taka þennan gjaldeyri af þér og borga þér þetta fyrir hann. Það er ekki skrýtið þó að hv. 1. þm. Vestf. setji hönd undir kinn því að hann veit alveg
hvað þetta kostar. Það þýðir gjaldþrot sjávarútvegsfyrirtækjanna hringinn í kringum landið ef verðbólgan fer af stað. Svo einfalt er það.
Það væri fróðlegt fyrir hæstv. ráðherra að kynna sér það hvað forverar Sjálfstfl. á Alþingi Íslendinga sögðu um þessa hluti. Sögðust þeir vera að fella gengið? Nei. Þeir sögðust vera að skrá það rétt og þeir sögðu satt. Það liggur nefnilega fyrir að það er ekki á valdi stjórnmálamanna að ákveða gengi nokkurs gjaldmiðils. Það hlýtur að vera markaðurinn einn sem ræður því. Efnahagsleg stjórn í landinu ræður því hvaða verð er á gjaldmiðlinum. En það er hægt að falsa hann ef menn vilja. Það var gert í kommúnistalöndunum, þar var hann falsaður. Gjaldeyririnn var fjórfaldur í Ungverjalandi miðað við það sem hann var seldur á á torgum úti. Hann var áttfaldur í Búlgaríu fyrir nokkrum árum. Svo tala menn um að það sé komin ríkisstjórn sem ætli að virða vestrænt hagkerfi og starfa eftir því, nema með einni undantekningu: Hún ætlar sjálf að ákveða á hvaða verði menn kaupa gjaldeyrinn.
Ég skora á þá menn, sem svona tala og boða að þetta sé hægt, að reka verslun, þó ekki væri nema mánaðartíma í Reykjavík og láta kúnnann ákveða á hvaða verði varan er seld. Sem sagt, þegar viðskiptavinurinn kemur inn í búðina þá spyrjið þið hann: Á hvað ætlar þú að kaupa þetta? og afgreiða svo út úr versluninni samkvæmt því. Þetta er það sem menn eru að leggja hér til. Svo munu menn segja: En hvað með Evrópu? Nú eru Danir búnir að binda dönsku krónuna. En hvers vegna? Af því að Danmörk er ekki lengur sjálfstætt land. Svo einfalt er það. Danmörk er bara eitt hérað í Evrópu, eitt hérað í hinu nýja stóra ríki, Bandaríkjum Evrópu. Auðvitað ræður eitt hérað ekki sínu gjaldeyrisverði. Það liggur í hlutarins eðli. Það er engin sérstök extra skráning á íslensku krónunni á Austfjörðum eða á Snæfellsnesinu eða á Vestfjörðum. Það gengur ekki upp og alveg eins verður engin sérstök skráning á dönsku krónunni í þessu stóra ríki. Auðvitað verður það í reynd að það er verið að leggja hana niður sem gjaldmiðil með þessu móti.
Og hæstv. viðskrh. fer nú enn einu sinni af stað með tímasprengjuna, banabita ríkisstjórna sem hann hefur átt að ráðleggja, og boðar fast gengi. Það væri skynsamlegra að taka upp draugatrú en að ætla að fara eftir þessu. Það stendur kannski til líka, ég veit það ekki. Það er ekki orð um það í stefnuræðunni.
En af því að ég vil trúa því að þetta mál sé enn á
athugunarstigi þá mælist ég til þess að menn hugsi sig mjög vel um áður en þeir binda þetta fast. Og svo maður tali nú á sjómannamáli, þá væri þetta ákvörðun um að hætta að hreyfa stýrið fram og til baka, heldur láta logsjóða það bara fast í eitt skipti fyrir öll og láta svo ráðast hvert skútan færi.