Finnur Ingólfsson :
Virðulegi forseti. Í þessari umræðu sem núna hefur staðið nokkuð lengi hafa þingmenn gagnrýnt stefnuræðu forsrh. nokkuð. Talað um það að hún væri innihaldslaus, þar væri enga stefnu að finna og þar væri fátt um einhverja hluti sem hægt væri að standa á. Ég tek ekki undir þessi orð heldur þvert á móti. Ég tel að þessi stefnuræða hafi verið betri en menn gátu vonast til og þá er ekki um neina oftúlkun af minni hálfu að ræða á þeim hlutum. Ég tel það virðingarvert að sá flokkur sem gekk til kosninga stefnulaus skuli geta tæpum mánuði seinna verið þó búinn að marka skýra stefnu í tveimur málaflokkum og það í meginmálaflokkum hér, þ.e. í sjávarútvegi og landbúnaði, og því vil ég þakka forsrh. fyrir þessa ræðu.
En það er þó nokkuð furðulegt að heyra hver stefnan í raun og veru er í þessum tveimur málaflokkum.
Í sjávarútveginum er gert ráð fyrir því að þar sé um óbreytta stefnu að ræða frá þeirri stefnu sem fyrrv. ríkisstjórn hafði mótað og því hefur hæstv. sjútvrh. lýst margoft yfir. Hins vegar er gert ráð fyrir því að þegar á kjörtímabilið líður verði sett hér á fót nefnd sem eigi að fara yfir það hvernig til hafi tekist. Það var nokkuð merkilegt að hlusta á hæstv. forsrh. hér áðan þegar hann lýsti því hvernig þessi nefnd ætti að vera skipuð. Þá vildi ég gjarnan biðja virðulegan forseta að fá hér í salinn hæstv. utanrrh. vegna þess að ég þarf að eiga nokkur orð við hann vegna þessarar nefndarskipunar.
En meðan ég bíð eftir honum ætla ég að ræða aðeins um landbúnaðarstefnuna. Þar kemur líka fram að ríkisstjórnin hefur markað skýra stefnu, því að í landbúnaðarmálum á að framkvæma sömu stefnu og fyrri ríkisstjórn mótaði og var í samvinnu mótuð af fulltrúum bænda og stjórnvalda. Það kemur nokkuð á óvart að á svo skömmum tíma sem liðinn er frá því í kosningabaráttunni og þar til ríkisstjórnin er mynduð skuli Sjálfstfl. hafa getað svínbeygt Alþfl. eins og raun ber vitni.
Nú veit ég ekki hvort hæstv. utanrrh. er hér einhvers staðar í kallfæri. ( Forseti: Forseti hefur gert ráðstafanir til þess að óska eftir hæstv. utanrrh. í salinn.) Þakka þér fyrir.
Í Ríkisútvarpinu miðvikudaginn 24. apríl var lesin frétt frá þingflokksfundi Alþfl. þar sem sagt er að alþýðuflokksmenn telji að ástandið í ríkisfjármálunum sé miklu verra en hingað til hafi verið haldið að þjóðinni og að óbreyttu stefni í 8 milljarða rekstrarhalla á ríkissjóði í ár, þ.e. á A-hluta fjárlaga. Kratar setja á oddinn í stjórnarmyndunarviðræðunum að tekið verði á þessu og stefnt að jöfnuði árið 1993 --- og hérna er með leyfi forseta vitnað í þessa frétt. ,,Þeir vilja að nýi búvörusamningurinn verði lækkaður um 4 milljarða af ráðgerðum útgjöldum ríkissjóðs, að þensla ríkisútgjalda yfirleitt verði stöðvuð og skorið þar niður fremur en hitt, að tiltekin ríkisfyrirtæki verði gerð að sjálfstæðum stofnunum og að sjávarútvegsstefnunni verði gjörbreytt þannig að á næsta ári fái ríkið 5
milljarða króna í tekjur af veiðileyfasölu. Þetta eru þau atriði sem kratarnir settu á oddinn sem skilyrði fyrir því að þeir gætu gengið inn í þessa ríkisstjórn. Nú hefur það komið fram að stefnan í landbúnaðinum á að vera óbreytt og það á ekki að fara út í innheimtu á veiðileyfum fyrir sjávarútveginn.`` --- Af því að nú gengur hér í salinn hæstv. utanrrh. þá ætla ég aðeins að rifja þetta upp, ef hann hefur misst af því sem ég hér sagði: Í útvarpinu 24. apríl sl. var vitnað í upplýsingar af þingflokksfundi Alþfl. þar sem kemur fram að Alþfl. setji það á oddinn í umræðunni um myndun nýrrar ríkisstjórnar að 4 milljarðar kr. verði teknir af landbúnaðinum með því að skera upp búvörusamninginn og 5 milljarðar kr. verða innheimtir með veiðileyfasölu og það strax á næsta ári, eins og þetta er orðað í fréttinni og henni hefur ekki verið mótmælt af alþýðuflokksmönnum.
Nú spyr ég hæstv. utanrrh.: Hefur Alþfl. fallið frá öllu því sem hann hefur haldið fram hingað til varðandi uppstokkun í landbúnaði og gjörbreytingu á sjávarútvegsstefnunni?
Við þessu þurfum við að fá skýr svör.
Mig minnir að í frægri útvarpsfrétt þar sem vitnað var í hæstv. utanrrh. á fundi alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík hafi komið fram að það væri heiðursmannasamkomulag milli formanna flokkanna um það að formaður þeirrar nefndar sem ætti að endurskoða sjávarútvegsstefnuna þegar hún yrði sett á fót yrði alþýðuflokksmaður. Nú kom það hér fram hjá hæstv. forsrh. áðan að nefndin á að vera sjö manna, þrír frá Alþfl., þrír frá Sjálfstfl. og einn sem menn kæmu sér saman um. Og nú er spurningin: Er hér um oftúlkun af hálfu forsrh. að ræða eða er hér einhver misskilningur? Ég hef það staðfest að þetta er til á segulbandsspólu hjá Ríkisútvarpinu sem var tekin upp á þessum fundi alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík og hæstv. utanrrh. kom fram með.
Því hefur verið haldið fram að Davíð Oddsson hafi lítið vald á þingflokki Sjálfstfl. og þar ráði öllu hæstv. sjútvrh. Hann sé sterki maðurinn í þingflokknum þessa stundina. Það er hins vegar alveg ljóst að þó hæstv. forsrh. Davíð Oddsson eigi erfitt
með að ráða við þingflokk Sjálfstfl. þá á hann ekki í neinum vandræðum með að ráða við Alþfl. Þar hefur hann fullt vald á þeim hlutum sem hann þarf að koma í gegn. Gleggsta merki þess er það að hæstv. utanrrh. hefur étið allt heiðursmannasamkomulagið ofan í sig með landbúnaðinn, með sjávarútveginn og nú kemur það í ljós hvort hann þarf líka að éta ofan í sig að formaður nefndar sem á að endurskoða sjávarútvegsstefnuna eigi að koma úr röðum alþýðuflokksmanna.
Það má því segja að því slagorði sem Sjálfstfl. hefur oft verið með í kosningum: einn flokk til ábyrgðar, til að sýna hvað það sé miklu betra og hagstæðara þjóðinni að það sé einn flokkur sem stjórni, muni þjóðin nú kynnast í þessu stjórnarsamstarfi og hvað það er að láta einn flokk stjórna. Það er reynslan ein auðvitað sem sker úr um það.
Hér hefur mikið verið rætt um húsnæðismál og hv.
1. þm. Austurl. Halldór Ásgrímsson fór hér nokkrum orðum um það. Ég ætla ekki að hafa það allt eftir en hins vegar eru hér nokkrar spurningar sem brenna á um þessar mundir og ég vildi gjarnan fá svör við hjá hæstv. ráðherrum. Það mátti skilja það svo á hæstv. fjmrh. þegar hann var að tilkynna vaxtahækkanir í húsnæðislánakerfinu frá 1984 að það væri aðeins áfangi á þeirri leið að hækka vexti enn þá frekar. Nú vil ég spyrja hæstv. fjmrh.: Er það rétt skilið af minni hálfu að hér sé aðeins um áfangahækkun að ræða? Gaman væri að vita, ef í húsinu væri staddur hæstv. félmrh., hvort hann er samþykkur þessari túlkun hæstv. fjmrh.
Húsbréfin og þau afföll sem á þeim eru núna, 22 -- 23%, munu auðvitað leiða til þess að atvinnulífið, eins og hv. 1. þm. Austurl. kom inn á fyrr í sinni ræðu, mun þurfa að bera 10 -- 12% raunvexti á næstunni. Því vil ég spyrja hæstv. forsrh.: Telur hann að atvinnulífið geti búið við það til lengdar að þurfa að greiða 10 -- 12% raunvexti?
Réttlætið var aðalröksemdin fyrir því að vextir voru hækkaðir í húsnæðislánakerfinu frá 1. júlí 1984 úr 3,5% í 4,9%. Nú er það vitað að þeir sem byggðu eða keyptu á árunum 1984 -- 1986 þurftu að stórum hluta að fjármagna sínar íbúðarbyggingar og íbúðarkaup með allt öðrum lánum en lánum frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Ætli það hafi ekki verið á bilinu 10 -- 15% af íbúðarverðinu sem þá var fjármagnað með lánum frá Húsnæðisstofnun ríkisins? En restin var fjármögnuð með dýrum bankalánum og dýrum lánum úr lífeyrissjóðakerfinu. Þetta er líka sá hópur sem lenti í misgenginu á launum og lánskjörum hér 1983 -- 1984. Því spyr ég hæstv. fjmrh. hvort honum finnist það vera réttlæti að auka enn álögur á þessu fólki sem þarna fékk lán og hefur þurft að bera misgengið frá 1983 -- 1984 og fjármagna sín íbúðarkaup með dýrum lánum úr lífeyrissjóðunum og bankakerfinu. Er þarna verið að fullnægja réttlætinu? Ef menn vilja fullnægja réttlætinu, þá spyr ég: Hvað ætla menn að gera þá við hópinn frá 1970 -- 1980 sem fékk 120 milljarða kr. að láni á þessum tíma og fjármagnaði viðbótina með niðurgreiddum vöxtum úr bankakerfinu? Hvernig ætla menn að fullnægja réttlætinu gagnvart þessum hópi? Um það vil ég spyrja hæstv. utanrrh. ( EgJ: Var það ekki fjmrh. sem þú ætlaðir að spyrja um þetta?) Jú, fyrirgefðu, hæstv. fjmrh. Þakka hér fyrir, hv. þm. Egill Jónsson. Ég ætlaði að spyrja hæstv. fjmrh. um þetta.
Afföllin í húsbréfunum eru, eins og ég sagði áðan, 22 -- 23%. Það er dálítið merkilegt að allar þær aðgerðir núv. ríkisstjórnar í vaxtamálum sem nú er verið að framkvæma virðast byggðar á þeirri skýrslu sem Seðlabankinn gaf út 5. maí 1991. Við lestur hennar kemur ýmislegt í ljós sem fær mann til að velta fyrir sér hvort sú ágæta stofnun sé í raun og veru í stakk búin til að leggja mat á þessa hluti. Á bls. 39 í skýrslunni, sem hæstv. fjmrh. hefur dreift, er sagt: ,,Líklegt má telja að nokkuð dragi úr útgáfu húsbréfa með hækkandi sól.`` Hvað þýðir þetta í raun og veru? Hvenær hefur hæstv. félmrh. tekist að tengja verðgildi húsbréfanna við sólina?
Það er náttúrlega stórfurðulegt af opinberri stofnun sem ætlar að láta teka sig alvarlega að setja svona í skýrslu. Og ef ríkisstjórn ætlar síðan að byggja allar sínar aðgerðir á þessum faglegu vinnubrögðum sem Seðlabankinn hefur þarna lagt til. Það er hækkandi sól sem mun draga úr útgáfu húsbréfanna en það er líka sagt að hugsanlega geti hækkandi ávöxtunarkrafa haft einhver áhrif til að draga úr fasteignaviðskiptum. Og af því að hæstv. viðskrh. gengur í salinn og ég var að vitna hér í skýrslu Seðlabankans og af því að hann er nú yfirmaður þeirrar ágætu stofnunar, þá kemur fram á bls. 39 í þeirri skýrslu sem hæstv. fjmrh. hefur dreift í þinginu að Seðlabankinn telur að líklegt megi telja að nokkuð dragi úr útgáfu húsbréfa með hækkandi sól. Nú hefði ég gaman af að fá svar hæstv. viðskrh., yfirmanns þessarar stofnunar, við því hvað þessi orð þýða og hvað hann segir um þessi faglegu vinnubrögð bankans. ( Gripið fram í: Farðu bara á Veðurstofuna.) Já, þá er það nú hæstv. samgrh. sem þyrfti að svara og ég ætla nú ekki að draga fleiri hérna til. ( Viðskrh.: Þingmaðurinn verður að taka sólarhæðina sjálfur.) Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir.
Í lokin þetta og spyr ég hæstv. viðskrh. líka að því: Telur hann, miðað við þá háu raunvexti, sem núna eru við lýði og verða með þeim hækkandi vöxtum sem eru að verða almennt á markaðnum út af háum vöxtum í húsnæðiskerfinu, að atvinnulífið geti búið við það til lengdar að borga 10 -- 12% raunvexti?