Halldór Ásgrímsson (um þingsköp) :
Virðulegur forseti. Ég vildi fá upplýsingar um það hversu lengi standi til að halda þessum fundi áfram. Hæstv. ráðherrar flytja hér mjög fróðlegar ræður, bæði í sögulegu samhengi og einnig eru ýmsar nýjar upplýsingar sem þar koma fram, en einhverjir þeirra munu nú vera á mælendaskrá. Ég hafði fengið upplýsingar um það hjá mínum þingflokksformanni að þessi fundur mundi alls ekki standa lengur en til kl. 12. Ekki það að við getum að sjálfsögðu verið hér lengur ef sérstök þörf krefur, en það er mikilvægt að störfum þingsins sé háttað eins og um er talað milli þingflokksformanna. Áður en lengra er haldið vildi ég því fá upplýsingar um það hve lengi stendur til að halda þessum fundi áfram.