Steingrímur J. Sigfússon (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Ég kem nú í fyrsta lagi í ræðustól til að staðfesta það að nákvæmlega eins og hér hefur verið greint frá voru mér borin skilaboð um áform um fundahald hér í kvöld. Hvort sem menn kalla það samkomulag eða ekki, þá var þingmönnum greint frá því að svona stæði til að haga fundum hér og ég hygg að mjög margir hafi gengið út frá því að fundahöldum mundi ljúka um miðnætti og ég veit af þingmönnum sem höfðu hugsað sér að koma hér til fundar t.d. ef til stæði að taka fyrir fyrra dagskrármálið, en ljóst var orðið að svo yrði ekki.
En í öðru lagi og ekki síður vil ég vekja athygli hæstv. forseta á því að í mínu tilviki hef ég ekki talað nema einu sinni við þessa umræðu og svo kann að fara að ég hafi áhuga á því að taka aftur til máls, ekki síst í ljósi þeirra yfirlýsinga sem hér komu fram hjá hæstv. utanrrh. síðast. Það er alveg ljóst að ég las texta í stefnuræðu hæstv. forsrh., og ég gerði reyndar sérstaklega að umtalsefni þann texta á bls. 16 í ræðunni sem ég leyfði mér að kalla besta hluta ræðunnar, fjórar línur um landbúnaðarmál, sem er algjörlega afdráttarlaus og skýr. Það verður ekki ráðið annað af texta hæstv. forsrh. en að ekkert annað standi til að hans meiningu en að framkvæma búvörusamninginn óbreyttan. Það er ómögulegt að lesa ræðu hæstv. forsrh. öðruvísi.
Ef skilja átti hæstv. utanrrh. þannig hér áðan, sem ég hygg að fleiri hafi gert en ég, að að hans mati væri þvert á móti í undirbúningi við fjárlagagerðina að skera stórlega niður fjárveitingar til þessa málaflokks þó það tengdist samningnum, þá eru hér stór tíðindi uppi í umræðunni sem nauðsynlegt er að ræða, ekki síst af því að hæstv. landbrh. heiðrar okkur nú með nærveru sinni og er óhjákvæmilegt að hann geri þá grein fyrir sínum sjónarmiðum til þess hluta málsins vegna þess að framkvæmd þessa búvörusamnings er hafin. Og að sjálfsögðu er hún væntanlega hafin af hálfu bændanna í trausti þess að við samninginn verði staðið að fullu og öllu leyti. Það er þess vegna ekki hægt að bíða haustsins með umræður um það hvort ríkisstjórnin ætlar sér að virða þennan samning eða ekki. Það verður að fást á hreint ekki síðar en nú í þessari umræðu úr því að hæstv. utanrrh. hefur tekið þannig til orða, formaður Alþfl., að gefa tilefni til efasemda.
Þetta vildi ég nú taka fram fyrir mitt leyti, hæstv. forseti, og er eins viðbúinn því að biðja nú forseta að setja mig á mælendaskrá hvort sem það verður þá hér síðar í kvöld eða í nótt eða síðar ef umræðum yrði frestað og mundi þá óska eftir því að þessir þrír hæstv. ráðherrar a.m.k., forsrh., utanrrh. og landbrh., yrðu viðstaddir.