Ólafur Ragnar Grímsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Hún er nokkuð sérkennileg hin fyrsta ganga hv. þm. Geirs H. Haarde sem formanns þingflokks Sjálfstfl. í þessari þingskapaumræðu. Hann kemur hér með derring af því tagi að ég hafi náðarsamlegast verið að tala um það að umhvrh. mætti tala hér og það hafi ekkert samkomulag verið gert o.s.frv.
    Ég vil fyrst segja það að ástæðan fyrir því að ég nefndi hæstv. umhvrh. var einfaldlega sú að forseti var búinn að lýsa því að hann hefði beðið um orðið áður en ég bað um orðið um þingsköp. Mér fannst það bara sjálfsögð kurteisi gagnvart hæstv. umhvrh. að taka það fram að ég mundi ekki gera neina athugasemd við það þó að hann flytti sína ræðu hér þó að ég að öðru leyti óskaði eftir því að umræðunni yrði frestað. (Gripið fram í.) Það er enginn derringur af neinu tagi, það er bara sjálfsögð kurteisi gagnvart hæstv. utanrrh., en kannski skilur hv. þm. Geir H. Haarde ekki kurteisi hér í samskiptum þingmanna.
    Ég vandist því þegar ég var hér formaður þingflokks í tæp fjögur ár að ef formenn þingflokka höfðu talað um það og beint ákveðnum tilmælum í sameiningu til forseta, þá var það nánast samkomulag. Þá voru ekki höfð þau vinnubrögð . . . ( GHH: Í sameiningu?) Já, ég sagði það vegna þess að það var sagt í mínum þingflokki og þingflokki Framsfl. að þetta væru tilmæli formanna þingflokkanna. Ef formaður þingflokks Sjálfstfl. eða formaður þingflokks Alþfl. hafa ekki staðið að því, þá er auðvitað alveg nauðsynlegt að við gerum grein fyrir því í okkar þingflokkum, stjórnarandstöðuflokkarnir. Menn þurfa að taka upp greinilega alveg sérstaka hætti í samningum milli þingflokkanna hér í þinginu við þessa tvo menn sem nú eru orðnir formenn þingflokka í Sjálfstfl. og Alþfl.
    Það er hins vegar óheppilegt að menn séu á svo stífum gormum hér, formenn þingflokka og forsetar, að það þurfi slíkar stífar neglingar í samskiptum manna. Það er mjög óheppilegt. En það virðist vera á þeim tóni og þeim ummælum sem koma fram hjá hv. þm. Geir H. Haarde að það þurfi kannski hér í þinginu. Ef ríkisstjórnarflokkarnir kjósa það, þá munum við auðvitað laga okkur að þeim vinnubrögðum, en ég teldi það óskynsamlegt fyrir stjórnarflokkana að fara að temja sér þau vinnubrögð.
    Virðulegi forseti. Hæstv. utanrrh. sagði það hér að hann hefði ekki lesið stefnuræðu forsrh. og hefði ekki gert það áður. Það er merkileg frétt. En það sem skapar tíðindin er kannski ekki í sjálfu sér þetta, hvort hann las hana eða las hana ekki, þó að mér finnist það nú nokkuð merkileg tíðindi í sjálfu sér. Það sem er hins vegar merkilegt er að í fyrsta sinn sem hæstv. utanrrh. er spurður að því hvort hann sé sammála einhverjum texta í þessari stefnuræðu, þá segir hann nei, hann er ekki sammála honum. ( Forseti: Má ég biðja hv. þm. að halda sig við þingskapaumræðuna.) Já, já, ég er að gera það, virðulegi forseti. Og ég er alveg klár á því að það er fjöldi manns hér, þingmenn, sem vildu þá gjarnan halda áfram að spyrja hæstv. utanrrh. nánar út í þetta af því að það er fjölmargt annað í ræðunni sem væri fróðlegt að vita hvort utanrrh. og Alþfl. er sammála eða ekki fyrst á annað borð þetta er þannig.
    Það er engu að síður staðreynd, virðulegi utanrrh., að forsrh. lýsti því yfir að þetta sem utanrrh. er ósammála sé fjórða meginverkefni ríkisstjórnarinnar. Það stendur í stefnuræðunni. (Gripið fram í.) Það stendur ekki í þessu bláa kveri. (Gripið fram í.) Já, að framkvæma þá samninga stendur í stefnuræðunni, að framkvæma þá samninga. (Gripið fram í.) Má ég sjá stefnuræðuna? (Gripið fram í.) ( Forseti: Forseti verður nú að biðja hv. 8. þm. Reykn. að halda sig við þingskapaumræðu en ekki efnislegar umræður.) Já, ég mun gera það, virðulegur forseti. Það stendur hér í ræðu forsrh.:
    ,,Fjórða meginverkefni stjórnarinnar verður að framkvæma þá stefnu í landbúnaðarmálum sem mörkuð hefur verið af stjórnvöldum og bændum í sameiningu hin síðari ár.``
    En ég sé hins vegar að hæstv. forsrh. hefur skrifað hérna á spássíuna einhverjar setningar. Ég ætla að vona að hann láti ekki setja þær í þingtíðindin vegna þess að það væri fölsun á því sem hann sagði hér í salnum. (Gripið fram í.) Já, já, en ég sé bara að það er búið að breyta orðalaginu með pólitískum hætti á þessum texta. ( Forsrh.: Það er mitt eigið plagg.) Já, það er gott. (Gripið fram í.) Þá hefur ekki átt að leiðrétta ræðuna í þingtíðindunum. Segulbandið er þá til vitnis. ( Forsrh.: Hvers konar loddari ert þú?) Það er enginn loddaraskapur, hæstv. forsrh. (Gripið fram í.)
    Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að það sem hér hefur komið fram er það að þessar fjórar línur í stefnuræðunni eru mjög viðkvæmur texti. Ég tel nauðsynlegt að umræðurnar fái að halda áfram um þessa stefnuræðu. Það er ljóst að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hefur beðið um orðið, en virðulegi forseti sagði það hér áðan að ég hefði þegar talað tvisvar. Ég vil af því tilefni spyrja um það hvort það sé rangt sem mér skildist að væri lögmál þessarar framhaldsumræðu að þegar samþykkt var að hér færi fram almenn stjórnmálaumræða í framhaldi af útvarpsumræðunni, þá giltu venjulegar reglur um þessa framhaldsumræðu en ekki þannig að þeir þingmenn sem valdir voru af hálfu stjórnarandstöðuflokkanna til þess að tala í þeim umræðum hefðu þar með bara rétt til þess að tala einu sinni í framhaldsumræðunum. Ég man nú ekki hvað hv. 7. þm. Reykn. hefur t.d. talað oft, mig minnir þó að hann hafi talað tvisvar eftir að sjónvarpsumræðunni lauk, en það má vera að það sé rangt hjá mér. En minn skilningur var alla vega sá að takmörkin um það að tala tvisvar væru í framhaldsumræðunni en ekki þannig að ræðan sú stutta sem flutt var í sjónvarpsumræðunni teldist fyrri ræða. Hins vegar ef forseti heldur sig við þá túlkun, þá mun ég auðvitað beygja mig undir það, en það er annað en mér hafði skilist.
    Ég vil ítreka þær óskir að þessari umræðu verði frestað. Það verði ekki farið inn á þá braut að halda hér næturfund um þetta efni að fjarstöddum stórum

hópi þingmanna og þessari umræðu verði fram haldið á morgun og ég beini því til forseta að taka það til vinsamlegrar athugunar, enda nauðsynlegt að formenn þingflokkanna allir geri út um það sín á milli um hvað þeir sömdu.