Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Varðandi fyrra atriðið sem hv. 1. þm. Austurl. spurði um, þ.e. hversu oft menn mega tala við þessa umræðu, þá er það nú sennilega ekki venjulegt að umræðu um stefnuræðu forsrh. sé frestað eins og hefur gerst í þessu tilviki nú. Það var gert til að koma til móts við stjórnarandstöðuna til þess að gefa mönnum kost á að ræða almennt um stefnu ríkisstjórnarinnar.
Ég verð að taka það fram hér og nú að það hefur verið mjög góð samstaða og gott samstarf við þingflokksformenn bæði stjórnar og stjórnarandstöðu um þinghaldið. Og það hefur ekki verið neitt vandamál fram að þessu að mér sé kunnugt um eða neinn misskilningur þar á milli manna. Og eins og forseti hefur margtekið fram hér við þessa þingskapaumræðu þá var þessum tilmælum beint til forseta að reynt yrði að ljúka henni ekki löngu eftir miðnætti og það hafði forseti ætlað sér að gera. Nú hefur þingskapaumræðan staðið í hálftíma og ef hún hefði ekki komið til þá værum við væntanlega sum komin heim og aðrir á heimleið.
En forseti hefur áhuga á því og vill beina því til hv. þm. að þessari umræðu megi nú ljúka með örstuttri ræðu hæstv. umhvrh. og hæstv. forsrh., sem taka örfáar mínútur og síðan verði þá hægt að taka upp umræður um þessi mál undir liðnum ríkisfjármál sem verður á dagskrá næsta fundar. Forseti getur ekki séð að sú umræða þurfi að koma í bága við þá umræðu sem fram hefur farið um stefnuræðuna í dag því að menn hafa ófeimnir beint henni inn á ríkisfjármálin sem er í raun og veru ekki óeðlilegur hlutur.
Þetta eru vinsamleg tilmæli forseta til hv. þm. sem hér eru staddir um að málið megi ganga fram með þessum hætti. Það eru ekki aðrir á mælendaskrá. Hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur ekki sett sig á mælendaskrá. ( SJS: Ég hélt að ég hefði gert það.) Hann talaði um að hann mundi e.t.v. gera það. En gerði það ekki. ( SJS: Þá bið ég um orðið.) Er hv. þm. að biðja um að verða settur á mælendaskrá eða er hann að biðja um orðið? ( SJS: Ég er að biðja um orðið á löngu umræðunni hér í nótt, þá bið ég um orðið.) Um þingsköp? ( SJS: Nei, ég bið um orðið.) Þá biður hann um orðið að verða settur á mælendaskrá. Þá hefur forseti skilið það rétt.
En forseti beinir því sem sagt til hv. þm. hvort þeir séu sáttir við að málinu ljúki með þessum hætti. En ef hv. 4. þm. Norðurl. e. gerir ráð fyrir að flytja langa ræðu þá verður forseti að sjálfsögðu að taka tillit til þess og endurskoða þetta.