Steingrímur J. Sigfússon (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég hef að sjálfsögðu ekki stöðu til annars en að hlýða ákvörðunum forseta og ætla ekki að standa í rökræðum um þær, en það er alveg ljóst að ég hef áhuga á að leggja spurningar fyrir eina þrjá hæstv. ráðherra í framhaldi af upplýsingum sem komu fram hér í umræðunni og ég hlýt að nota rétt minn til að gera það þá í þessari umræðu ef henni verður lokið hér í kvöld eða nótt.
    Ég hyggst m.a. tala beint út frá texta stefnuræðu hæstv. forsrh. Og ég tel með öllu óeðlilegt annað en að sá hluti míns máls sé þá fluttur við þessa umræðu. En hitt verð ég að segja, virðulegur forseti, að mér finnst ég vera settur í heldur óþægilega stöðu þegar það er beinlínis sagt úr forsetastóli að það fari algjörlega eftir því hversu mikið ég nýti af rétti mínum til að tala hér í seinna skiptið í þessari umræðu hvort hægt sé að ljúka henni eða ekki. Ég sé ekki að það þurfi að verða mjög langt mál hjá mér en ég mun þurfa að leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. ráðherra og veit ekki hvort ég á að skjóta á að það taki stundarfjórðung eða tvo stundarfjórðunga en eitthvað af þeirri stærðargráðu gæti það hugsanlega verið. Forseti verður síðan að meta það hvað hann vill þá við það gera. En ekki þykir mér það samt þægilegt að þurfa að halda þá áfram umræðunni eftir þau orð sem hæstv. forseti kaus að hafa um þetta. Ég vissi ekki til þess að slíkar nauðir ræki hér til að ljúka þessari umræðu að setja þyrfti einstaka hv. þm. í þessa aðstöðu.