Þingsköp Alþingis
Þriðjudaginn 28. maí 1991


     Guðrún Helgadóttir :
    Virðulegi forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hefur orðið hér um athugasemd hv. 4. þm. Austurl. vil ég aðeins leyfa mér að benda á að ég á afar erfitt með að sjá að sú staða geti komið upp að mál sé afgreitt með einu atkvæði þó að það sé tæknilega hugsanlegt hér á hinu háa Alþingi. Það væri þá atkvæðagreiðsla um það hvort mál fengi að fara til nefndar vegna þess að við skulum gera ráð fyrir að öll mál fari til nefndar og varla kæmu þau frá nefndinni nema a.m.k. meiri hluti nefndarinnar styddi málið þannig að við skyldum nú halda að a.m.k. það fólk greiddi málinu atkvæði. Þeir sem voru á móti málinu í nefndinni greiddu þá væntanlega atkvæði á móti því þannig að ég held að hérna sé misskilningur á ferðinni og þessi ótti hv. þm. ástæðulaus.
    Auðvitað er það hárrétt sem hv. 8. þm. Reykv. sagði hér áðan að það að greiða ekki atkvæði á löglegum fundi er auðvitað afstaða og þeir sem ekki greiddu atkvæði ættu það þá auðvitað á hættu að málið verði samþykkt. Þeir leggja ekki meiri áherslu á það en svo að koma í veg fyrir það að þeir taka ekki afstöðu í málinu. Ég held því að þetta sé gjörsamlega ástæðulaus ótti og það hlýtur að vera fullkomlega eðlilegt þegar illa gengur að fá skýran meiri hluta að grípa til nafnakalls og fá það á hreint hver afstaða manna er. Það er gert og menn gera það þó að þeir greiði ekki atkvæði. Þess vegna mun ég styðja málið eins og það liggur fyrir í frv. því sem hér liggur frammi, enda hef ég setið í nefndinni og átt þátt í að taka afstöðu til málsins og ég hef ekki látið sannfærast um að hér sé ekki allt eins og skyldi.
    Það má benda á að hér á hinu háa Alþingi gilti sú regla sem hv. þm. var að lýsa að hann óskaði eftir, ég hygg allt fram til áranna milli 1930 og 1940, en þá var þessu breytt í þá veru sem það er nú, og trúlega einmitt vegna þess að það skapaði meiri vandræði en ekki að viðhalda þeirri reglu. Það má benda á að upp gæti komið dæmi eins og það að hér væru 32 hv. þm. í salnum, mál væri afgreitt með 15:15 atkv., tveir sætu hjá, og þá er málið fallið. Það er enn þá hjákátlegra í raun og veru heldur en það sem hv. þm. óttast að muni gerast ef svo ævintýralega vildi til að einungis einn hv. þm. greiddi máli atkvæði sem ég held að geti tæplega komið til.
    En ég ætla ekki að lengja þessar umræður, virðulegi forseti. Ég tók þátt í allri vinnu þeirrar nefndar sem um málið fjallaði. Ég tók þátt í umræðum um hversu margir skyldu vera í nefndum þingsins. Ég hef í engu breytt þeirri afstöðu minni og mun því ekki styðja neina tillögu um fjölgun í fjárlaganefnd. Ég tel það ekki rétt vinnubrögð að hv. þm. sem skrifa undir nál. án fyrirvara komi svo þegar málið kemur inn í þingið og fari að gera brtt. Það eru óeðlileg vinnubrögð með öllu en að sjálfsögðu hafa aðrir hv. þm. alla ástæðu og rétt til að gera svo.
    Ég vil víkja aðeins að einu ákveðnu atriði til styrktar málflutningi hv. 8. þm. Reykv. varðandi embætti forseta Alþingis. Ég tek eindregið undir að það

embætti verði styrkt í hvívetna og ég vil þar með taka undir að kjör hæstv. forseta Alþingis verði verulega bætt. Það er með öllu óeðlilegt að sá sem fer með stjórn hins háa Alþingis nái ekki launum helstu embættismanna þingsins, að ég tali nú ekki um ráðuneytisstjóra og ráðherra. Í öllum norrænum þjóðþingum nýtur forseti þingsins sömu kjara og ráðherrar, enda ábyrgð forseta í engu minni. Ég vil taka undir þetta og tel mig hafa nokkurn rétt til þess. Ég hef ekki getað gert það fyrr, en ég ætla að gera það nú og ég vil leggja á þetta mikla áherslu. Þetta varðar virðingu þingsins, það varðar sjálfstæði þjóðþingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu og það er óeðlilegt að forseti þingsins búi ekki við þau kjör sem hæstv. ráðherrar búa við. Ég vil leggja á þetta áherslu.
    Að lokum þetta, virðulegi forseti. Ég átti þátt í því á forsetafundi fyrir örfáum mánuðum að kasta fram þeirri tillögu, auðvitað eftir langa umræðu hér í þinginu, áratuga umræðu öðru hverju, að forsetar beittu sér fyrir því að Alþingi yrði sett í eina málstofu. Engan á þeim fundi hefði órað fyrir því að sá draumur rættist á þessu þingi. Ég tel að Alþingi hafi með þessari vinnu og þeim samhug sem um þetta mál hefur ríkt sannað íslensku þjóðinni það að þegar virðing Alþingis er annars vegar eru þingmenn einhuga um að vinna að vegi þess og virðingu. Fyrir þetta þakka ég og vænti þess að menn greiði fyrir því að þetta mál, bæði sú stjórnarskrárbreyting sem nú hefur verið afgreidd í hv. Ed. og það mál sem hér liggur fyrir fái skjóta og góða afgreiðslu þannig að þetta mál megi verða okkur öllum til sóma.