Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Þessi brtt. er nokkuð í þá átt sem við kvennalistakonur hefðum viljað hafa 3. gr. almennt og því munum við styðja hana, en eins og fram kom í ræðu minni hér áðan hefðum við viljað ganga lengra í þá átt að tryggja öllum flokkum aðild að stjórn þingsins. Ég segi því já.