Steingrímur J. Sigfússon :
Hæstv. forseti. Ég verð að byrja á að minna á að þegar ég kvaddi mér hljóðs í umræðunni síðla fundar á mánudaginn var, eða reyndar mun nú hafa verið komið fram á þriðjudag, þá tók ég það sérstaklega fram að ég óskaði eftir nærveru nokkurra hæstv. ráðherra til að bera fyrir þá spurningar. Þar nefndi ég til hæstv. landbrh. og utanrrh., sem gaf með orðum sínum tilefni til þess að umræðan dróst eða hélt áfram. Sömuleiðis væri auðvitað ágætt, þar sem fjármálaskuldbindingar ríkisins koma nokkuð við sögu, að hæstv. fjmrh. væri einnig viðstaddur. En fyrst og fremst held ég þó að ég verði að óska eftir því að kannað verði um dvalarstað þeirra hæstv. landbrh. og utanrrh. og hvort þeir eru ekki væntanlegir hér til fundarins. ( Forseti: Það rifjast upp fyrir forseta að hv. 4. þm. Norðurl. e. nefndi þessa tvo ráðherra, hæstv. landbrh. og hæstv. utanrrh., sem hann vildi eiga orðaskipti við. Eftir töflu hér munu þessir tveir hæstv. ráðherrar ekki vera komnir í hús en forseti mun láta athuga hvort þeir séu ekki væntanlegir. Sama gildir um hæstv. fjmrh. Ef hv. þm. getur beint ræðu sinni inn á önnur svið til að byrja með mun forseti láta athuga á meðan hvort þeir séu ekki væntanlegir.) Ef niðurstaða gæti fengist í það fljótlega þá er það allt í lagi, hæstv. forseti, en ég hafði nú ekki ætlað mér að halda hér ýkja langa tölu og aðaltilefni mitt hingað var fyrst og fremst að leggja spurningar fyrir hæstv. ráðherra og fá ákveðin atriði á hreint eftir því sem kostur er og þeir geta aðstoðað okkur við.
Að sjálfsögðu er hæstv. forsrh. hér og hann er ábyrgðarmaður ríkisstjórnarinnar í heild og það er hans stefnuræða sem við erum hér að ræða um, en það er þó óhjákvæmilegt að fá hæstv. utanrrh. hingað vegna þess að það voru tiltekin ummæli hans sem ég neyðist til að vitna til og spyrja út frá sem hér valda því að ég er í ræðustóli, og ég tel óeðlilegt að hann sé ekki viðstaddur þegar út af orðum hans er lagt. En þetta snýr í raun og veru í fyrsta lagi að því sem segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, bláu bókinni þunnu, um landbúnaðarmál. Í öðru lagi texta í ræðu hæstv. forsrh. um sama efni og í þriðja lagi ummælum sem hæstv. utanrrh. hafði í ræðustóli hér á Alþingi aðfaranótt þriðjudags. ( Forseti: Hæstv. utanrrh. mun nú vera kominn í húsið svo að þess er að vænta að hann verði hér fljótlega í salnum.) Það kemur nú sárasjaldan fyrir að hæstv. landbrh. er ekki hér viðstaddur. Þá gef ég mér það að hann hljóti að vera á leiðinni einnig.
Þannig var að hv. 11. þm. Reykv. lagði spurningar fyrir hæstv. utanrrh. og hann var að nokkru leyti að svara honum í ræðu sinni eftir að hafa fjallað hér um örlög viðreisnarstjórnarinnar sálugu og fleira í þeim dúr, sem voru nú aðallega skoðanaskipti hæstv. utanrrh. og hv. 8. þm. Reykn., eins og þeir muna sem sátu á fundinum, en hv. 11. þm. Reykv. hafði spurt hæstv. utanrrh. hvernig því væri varið, hvort Alþfl. hefði fallið frá boðaðri andstöðu sinni við búvörusamninginn eða kröfum um endurskoðun á honum.
Sömuleiðis spurði hann um afstöðu Alþfl. til upptöku veiðileyfagjalds og hvort Alþfl. væri fallinn frá kröfum um slíkt.
Hæstv. utanrrh. svaraði á eftirfarandi hátt samkvæmt útskrift á ræðu hans frá ræðuritun Alþingis sem ég hef nýlega fengið, með leyfi forseta:
,,Fyrri spurningin var sú hvort Alþfl. hefði fallið frá afstöðu sinni varðandi endurskoðun búvörusamnings og varðandi það að stefna að því að taka upp gjaldtöku fyrir veiðileyfi í áföngum á komandi árum. Svarið við því er einfaldlega nei. Alþfl. hefur ekki fallið frá því. Og mætti ég kannski vitna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Fyrst um landbúnaðarmál. Í þessari stefnuyfirlýsingu segir, með leyfi forseta . . . `` o.s.frv. Síðan las hæstv. utanrrh. líklega þrjár línur upp úr þessu mikla riti, stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Látum það nú vera. Utanrrh. segir skömmu síðar í ræðu sinni: ,,Að mínu mati getur þetta naumast skýrara verið. Í tíð fyrri ríkisstjórnar neitaði Alþfl. að fallast á eða standa að þeim drögum að búvörusamningi sem undirrituð voru af fyrrv. hæstv. landbrh. Hann [þ.e. Alþfl.] rökstuddi það með greinargerð`` o.s.frv.
Hér er nokkuð málum blandið. Ég ætla að lýsa þeim skilningi mínum sem ég lagði í afstöðu Alþfl. eins og hún birtist í ríkisstjórn og á Alþingi og víðar varðandi búvörusamninginn sem gerður var sl. vetur. Staðreynd málsins er sú að Alþfl. lagðist ekki gegn því að hafin yrði framkvæmd þessa búvörusamnings. Alþfl. studdi það hér á Alþingi, ekki einu sinni heldur tvívegis í atkvæðagreiðslu, að hafin yrði framkvæmd fyrstu áfanga þessa búvörusamnings, þ.e. viðauka I um aðlögun að innanlandsmarkaði. Það sem Alþfl. setti fyrir sig varðandi nauðsyn þess að taka á vinnslu- og dreifingarkerfi búvara var ekkert ágreiningsefni milli stjórnarflokkanna og hefur mér vitanlega ekki verið. Það hefur allan tímann legið fyrir og eru allir sammála um það að næsta skref í rökréttu framhaldi af gerð búvörusamnings um framleiðslustig varanna milli Stéttarsambands bænda og ríkisvaldsins komi skipulagning á vinnslu- og dreifingarstigi. Um þetta er ekki og hefur ekki verið neinn ágreiningur þannig að menn gátu þess vegna tekið undir þá ósk og þær kröfur Alþfl. að í beinu framhaldi af búvörusamningi um framleiðslustigið yrði tekið á því sem við tekur, vinnslu og dreifingu vörunnar.
Alþfl. setti í sína greinargerð sínar hugmyndir um það hvernig þyrfti að halda þessari vinnu áfram, eins og þar segir í ræðu hæstv. utanrrh., og hverju þyrfti að bæta við til þess að Alþfl. gæti talið þetta ásættanlegt.
Í öðru lagi segir hæstv. utanrrh. í sinni ræðu: ,,Við það er síðan að bæta`` --- þessa umfjöllun um afstöðu Alþfl. til búvörusamningsins og landbúnaðarmálanna --- ,,að meðan á stjórnarmyndunarviðræðum stóð,`` --- þetta eru stjórnarmyndunarviðræður ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar, hæstv. forsrh. --- ,,þótt þær stæðu yfir skamman tíma, var unnið sérstakt stefnuskjal um landbúnaðarmál sem er ítarlegra, lýsir þessu betur og er hugsað sem innlegg í þá hvítbók sem lýst hefur verið yfir af hálfu ríkisstjórnarinnar að verði lögð fram fyrir upphaf þings í haust.``
Ég held ég hljóti nú að spyrja hæstv. utanrrh. og þá hæstv. forsrh. einnig: Hvað er á blaði um landbúnaðarmál í þessu undirskjali, þessum drögum að hvítbók sem varðar afstöðu hæstv. ríkisstjórnar til búvörusamningsins? --- Og ég segi: Það gengur ekki að vísa til þess að eitthvað verði birt um þetta efni komandi haust af þeirri einföldu ástæðu að Alþingi og bændasamtökin og landbúnaðargeirinn þurfa að fá að vita það nú hver afstaða hæstv. ríkisstjórnar í raun og veru er til búvörusamningsins vegna þess að framkvæmd hans er þegar hafin og það er ekki hægt að slíta í sundur fyrstu hluta hans, aðlögunina að innanlandsmarkaði og sársaukafullar aðgerðir sem bændasamtökin með því hafa tekið á sig og sína umbjóðendur, og aðra hluta samningsins. Það er ekki hægt að hefja þær erfiðu aðgerðir, svo sársaukafullar sem þær eru, upp á von og óvon um það hvort við afganginn af samningnum verði staðið af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. Síðasta þing veitti með tvennum hætti í raun og veru heimildir sínar til þess að hefja framkvæmd þessa búvörusamnings. Það veitti þær með heimildum í lánsfjárlögum í fyrsta lagi og í öðru lagi voru sett ákvæði til bráðabirgða inn í lög um tekju- og eignarskatt til þess að tryggja sérstaklega skattalega meðferð greiðslna sem á grundvelli búvörusamningsins geta gengið til bænda.
Þess vegna er nauðsynlegt að það komi alveg skýrt fram hvort hæstv. ríkisstjórn hefur í hyggju að hverfa að einhverju leyti frá þessum samningi.
Ég verð að segja að yfirlýsingar hæstv. landbrh. um þetta efni, þær sem fram hafa komið, hafa glatt mig. Ég hef ekki getað skilið hæstv. landbrh. öðruvísi en að það væri hans afstaða og hans vilji að standa að fullu og öllu við þennan samning. Ef svo ber að skilja ummæli hæstv. utanrrh. hér að það sé ekki útkljáð mál í ríkisstjórninni, eða að um það sé ágreiningur í ríkisstjórninni, sem óneitanlega læðist að manni grunur um, um þetta efni, þá verður það að komast á hreint núna strax, af þessum ástæðum sem ég hef nefnt og gæti rökstutt ítarlegar ef menn ekki taka þær gildar, að þessi samningur er ein heild. Það er ekki hægt að ætlast til þess að menn hefji framkvæmd hans og gangi í verulega sársaukafullar aðgerðir gagnvart landbúnaðinum og bændum í landinu nú á þessu vori og þessu sumri upp á von og óvon um það hvort aðrir hlutar samningsins verði virtir, þá ekki síst stuðningsaðgerðarþáttur samningsins. En ummæli hæstv. utanrrh. um að það standi jafnvel til strax í næstu fjárlögum að skera niður útgjaldaskuldbindingar ríkisins um milljarða króna í þessu sambandi verða naumast skildar öðruvísi en þannig að hann sé þar að vísa til þeirra stuðningsaðgerða sem ríkisvaldið hefur í þessum samningi lofað bændum eða landbúnaði.
Í Morgunblaðinu 23. maí kom frétt um að hæstv. ríkisstjórn hefði sent það til lögfræðilegrar skoðunar hvort hún væri skuldbundin af búvörusamningnum. Þar er vitnað til fjmrh. og segir hann, mér skilst að
það hafi verið á fundi einhvers staðar með fréttamönnum daginn áður, 22. maí, að verið sé að kanna að hve miklu leyti ríkisstjórnin væri bundin af búvörusamningnum. Nú er það sjónarmið út af fyrir sig hvort ríkisstjórnin vill fara þannig í þetta mál að hún hafi eingöngu áhuga á hinni lögfræðilegu hlið málsins og því hvort hún sé í lögfræðilegum skilningi skuldbundin af þessu eða ekki. Gefi pólitískar og siðferðislegar hliðar málsins lönd og leið. Það er auðvitað hennar að meta það og vega.
Hæstv. landbrh. segir að vísu að hann telji sig skyldan að starfa eftir búvörusamningnum, og aftur ítreka ég það og undirstrika að þær yfirlýsingar hæstv. landbrh. gleðja mig. Hann er þar líka sjálfum sér samkvæmur því ég átti þess kost að hlusta á hann í kosningabaráttunni margítrekað lýsa því yfir að hann teldi að þessi samningur væri þannig úr garði gerður og þannig að honum staðið að hann bæri að virða. Ég held ég muni nokkurn veginn orðrétt hans óbreytt orð í því sambandi sem ég heyrði oftar en einu sinni á fundum.
Nú hef ég ekki undir höndum útkomuna úr þessari lögfræðilegu könnun, kannski geta hæstv. ráðherrar upplýst okkur um hana. Það er reyndar þannig að það er ástæða til þess fyrir lögfræðinga og stjórnlagafræðinga að velta fyrir sér þeirri braut sem hæstv. núv. ríkisstjórn virðist komin býsna langt út á, að draga almennt í efa gildi ákvarðana samninga og skuldbindinga sem fyrrv. stjórnvöld tóku. Þetta hefur birst í fjölmörgum myndum, ekki bara í því að þeir hafi afturkallað ýmsar embættisgjörðir forvera sinna, sumir hæstv. ráðherrar, heldur er svo komið að meiri háttar skuldbindandi samninga og löggjörninga, eins og búvörusamninginn, er ríkisstjórnin hæstv. jafnvel farin að draga í efa ef marka má þessa könnun. Eða hver var annars tilgangurinn með henni? En það er ekki aðalatriði málsins að mínu mati hvað út úr þessari lögfræðikönnun kemur. Aðalatriði málsins er hin pólitíska og siðferðislega hlið og afstaða ríkisstjórnarinnar í því sambandi. Ætlar hún að virða þennan gjörning sem ríkisvaldið hefur gert með lögmætum hætti á grundvelli tilskilinna heimilda við heildarsamtök í landinu um viðamikil atriði eins og búvörusamningurinn og landbúnaðarstefnan til næstu ára er auðvitað. Og ég vil gefa hæstv. ríkisstjórn þau ráð, ef ég má setja mig á svo háan hest, að íhuga það vandlega hvort þeirri breiðu pólitísku samstöðu sem um þessi erfiðu mál tókst með gjörð búvörusamningsins skuli fórnað.
Ég vil leyfa mér að ráðleggja hæstv. ríkisstjórn að hugsa sig vel um áður en hún kastar því á glæ sem þar náðist fram.
Þess vegna hlýt ég að leggja þá spurningu hér fyrir hæstv. ráðherra, auðvitað í fyrsta lagi hæstv. landbrh. sem ég vil gjarnan fá að heyra gefa sínar yfirlýsingar um að hann ætli að virða búvörusamninginn hér á Alþingi úr þessum ræðustól. Í öðru lagi hæstv. utanrrh. hvort hann treysti sér til að fara nánar yfir það hver hans afstaða og Alþfl. sé gagnvart því að virða búvörusamninginn, þar á meðal útgjaldaskuldbindingar ríkissjóðs í því sambandi og stuðningsaðgerðir samningsins við þessar breytingar í landbúnaði, þessa sársaukafullu og erfiðu aðlögun landbúnaðarins að breyttum aðstæðum. Er Alþfl. að ætlast til þess að bændur standi að sínum hluta samningsins, taki á sig þær erfiðu byrðar sem þeim er ætlað, en ríkisstjórnin hafi það í hendi sinni að sleppa við sinn hluta? Eða hvað áttu ummæli hans um það að fjmrh. ætti að hafa óbundnar hendur til þess að skera niður útgjöld ríkisins og það að hann gæti birst í fjárlagafrv. á komandi hausti að þýða? Í þriðja lagi vil ég spyrja hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh.: Eru þeir tilbúnir til þess að leggja textann sem fyrir liggur milli stjórnarflokkanna um landbúnaðarmál fram hér á Alþingi þannig að ljóst megi verða þegar á þessu vori hvað ríkisstjórnarflokkarnir hafa komið sér saman um í landbúnaðarmálum umfram það sem í stjórnarsáttmálanum stendur, ef eitthvað er? Það er nauðsynlegt að vita það vegna þess hvernig á stendur með búvörusamninginn og framkvæmd hans á þessu vori og þessu sumri. Þetta held ég að sé í raun og veru alveg nauðsynlegt að fá fram.
Ég ætla ekki, það verða sjálfsagt aðrir til þess, að tjá mig svo um ýmislegt fleira sem kom fram í ræðu hæstv. utanrrh., eins og ummæli hans um það að hann hefði ekki lesið stefnuræðutexta hæstv. forsrh. Hann treysti honum fyllilega til að semja sinn texta sjálfur og túlka fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þá stefnu sem þingflokkar beggja flokka hafa komið sér saman um að fylgja fram. Þetta á þá væntanlega líka við um landbúnaðarmál, hæstv. utanrrh. Traustið hlýtur að ná til þess málaflokks einnig. Þá vitna ég að lokum og aftur í stefnuræðu hæstv. forsrh., en þar segir á bls. 16, með leyfi forseta: ,,Fjórða meginverkefni stjórnarinnar verður að framkvæma þá stefnu í landbúnaðarmálum sem mörkuð hefur verið af stjórnvöldum og bændum í sameiningu hin síðari ár.`` Mér er ómögulegt að sjá hvað getur verið stærra í þessari sameiginlegu stefnumörkun en nýgerður búvörusamningur sem heitir reyndar á forsíðu: Stefnumörkun í landbúnaðarmálum. Undirtitill: Samningur, vegna þess að það var skilningur samningsaðilanna, sem auðvitað er staðreyndin, að með þessari gjörð væri verið að marka landbúnaðarstefnuna til komandi ára, það er staðreynd. Ekkert einstakt atriði mun hafa nándar nærri því eins mikil áhrif á hagsmuni hefðbundins landbúnaðar á næstu árum en einmitt þessi samningur. Og um hann náðist þessi breiða samstaða. Hann var samþykktur með yfirgnæfandi fjölda atkvæða á þingi Stéttarsambands bænda gegn tveimur. Það má því heita að alger samstaða hafi tekist um málið. Og það verður auðvitað að segjast eins og er að því verður ekki trúað að óreyndu að hæstv. ríkisstjórn, þó hún hafi sýnt ýmislegt skrautlegt af sér sl. vikur, sé svo gæfulaus að ætla að henda slíkri sáttargjörð frá sér a.m.k. án þess að byrja þá á því að óska eftir viðræðum við samningsaðilana um þá hluti. Óska a.m.k. eftir slíkum hlutum. ( Fjmrh.: Við hvorn samningsaðilann?) Ég er að tala um viðsemjandann, hæstv. fjmrh. Ríkisstjórnin þarf ekki að óska eftir viðræðum við sjálfa sig, eða
hvað? Ef hún vill ræða saman um sína hlið samningsins --- hæstv. fjmrh., þegar tveir gera samning er yfirleitt annar kallaður viðsemjandi, þ.e. gagnaðilinn og ég er að vísa til þess að ég trúi því ekki að hæstv. ríkisstjórn sé svo gæfulaus að hún mundi ekki a.m.k. opna málið með þeim hætti. Ummæli hæstv. utanrrh. hér í fyrrinótt urðu ekki skilin á þá leið. Það mátti skilja hann þannig að hann teldi ríkisstjórninni nánast í sjálfsvald sett að fara með þessa hluti eins og henni sýndist.
Hæstv. forseti. Ég vona að ég hafi komið þessu sæmilega skýrt frá mér sem ég vil leggja fyrir hæstv. ráðherra, einkum og sér í lagi þá þrjá, hæstv. landbrh., utanrrh. og forsrh. Úr því að fjmrh. er hér kominn og farinn að kalla fram í þá gengur e.t.v. hann svo langt að fara alla leið í ræðustólinn en það kemur þá í ljós. Auðvitað væri það ekki óeðlilegt, m.a. vegna þess að hæstv. utanrrh. vék að vandanum við fjárlagagerðina og vék að verkefni hæstv. fjmrh. í því sambandi, að við fengjum einnig að heyra hvað vakir í huga hæstv. fjmrh. í þessum efnum. ( ÓRG: Fjmrh. undirskrifaði samninginn.) Svo er það að vísu rétt að forveri hæstv. fjmrh., hv. núv. 8. þm. Reykn., undirritar tvo hluta samningsins, þ.e. viðauka I og II sem einmitt eru um fjármálaskuldbindingar ríkisins vegna aðlögunarinnar og stuðningsaðgerðir í því sambandi. ( Fjmrh.: Stóð ekki öll ríkisstjórnin á bak við þetta?) Ríkisstjórnin stóð á bak við þetta með þeim hætti sem ég gerði reyndar grein fyrir hér í upphafi fundarins áður en hæstv. fjmrh. var mættur, að Alþfl. hafði þarna smávægilega fyrirvara á en greiddi síðan atkvæði hér á Alþingi í tvígang með lagaheimildum sem lutu að því að hefja framkvæmd samningsins. Þessar staðreyndir liggja fyrir. Og það er auðvitað ástæða til þess að hæstv. fjmrh. láti þá sína skoðun í ljósi einnig á því sem ég minnti hér á áðan, hversu langt eða skammt hæstv. ríkisstjórn telur sig geta gengið í því að fella úr gildi lögmætar ákvarðanir og stjórnarathafnir fyrrv. ríkisstjórnar og forvera sinna í ráðuneytum. Það hefur orðið mér nokkuð umhugsunarefni, m.a. í ljósi upplýsinga um það að ríkisstjórnin hafi sett það í lögfræðilega könnun hvort hún eigi yfir höfuð að gera nokkurn skapaðan hlut með undirskrift fyrrv. ríkisstjórnar á þessum samningi. Ég verð að segja það alveg eins og er að ég sé ekki í fljótu bragði hvernig stjórnsýslan á að geta gengið fyrir sig með eðlilegum hætti ef slíkt er uppi trekk í trekk. Ég held að menn hljóti að þurfa að yfirvega slíkt mjög vandlega ef þeir telja sig geta fellt úr gildi eða bara ýtt út af borðinu lögmætum gjörningum forvera sinna í starfi. Og það er hætt við að yrði ærið köflótt og slitrótt stjórnsýslan við stjórnarskipti ef það yrði að almennri reglu.
En hæstv. forseti, ég treysti því að hér fáist skýr og greinargóð svör við þessu atriði. Ég vil að lokum undirstrika það hvers vegna ég sé mig knúinn til að fara hér í ræðustól og óska eftir þessum svörum. Það er vegna þess að ég tel mig geta borið um það að ef ekki fást skýr svör nú á þessu vori um það hvað hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera í þessu efnum þá óttast ég að framkvæmd landbúnaðarstefnunnar og búvörusamningsins hrynji af því að þá muni grafa undan því trausti sem menn hafa á þessari áætlun sem búvörusamningurinn er um aðlögun íslensks landbúnaðar að breyttum aðstæðum.