Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ég var ráðinn í því að láta það ekki eftir mér að fara að hafa gaman af því eða skemmtun hversu óskaplega svekktir fyrrv. ráðherrar Alþb. eru yfir því að hafa hrokkið úr ríkisstjórn, rétt eins og undin og þrútin hurð á hjörum. En ég er dálítið farinn að hafa af því skemmtun, ég get ekki neitað því.
    Aðeins út af bakplagginu góða vil ég nefna það að þetta er vinnuplagg tveggja stjórnmálaflokka en þingmönnum til huggunar sem hér hafa talað get ég sagt það að að mínu áliti hefur það plagg ekkert að gera með stjórnskipulegt gildi búvörusamnings.