Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Það er ekki óalgengt að þingmenn leiti á náðir forseta með það að þingið haldi sínum rétti og að á því sé ekki troðið. Eitt af því sem er grundvallaratriði er að upplýsingum sé ekki haldið leyndum fyrir þinginu. Hæstv. heilbrrh. hefur vafalaust leitað upplýsinga í stjórnarferli viðreisnar hvernig eigi að stoppa uppreisn í Hveragerði og kynnt sér þá einhverja aðra hluti í leiðinni. En leiðbeiningar um hvort þingmenn eigi rétt á því að hafa aðgang að þeim plöggum sem ráðherrar vitna til í ræðum sínum til staðfestingar máli sínu. Það er náttúrlega slík ósvífni að koma hér upp í ræðustól sem ráðherra og vitna til skriflegra plagga en neita þingmönnum um að mega lesa þau. Það er margsinnis sem það gerist að ráðherrar koma hér upp, vitna í tímarit, bækur, til þess að þeir þurfi ekki að standa hér jafnlengi og þingmenn geti lesið sér til og fengið nánari upplýsingar. Hér er hlutunum gersamlega snúið við. Boltinn er sendur út af og sagt að það megi ekki sækja hann, það megi ekki gá að því hvað stóð í plagginu.
Svo eru menn líka að blanda því saman hvort verið sé að biðja um plagg sem búið er að skrifa, búið er að liggja vandlega yfir, búið er að ganga frá, og einhverju öðru sem menn eiga óskrifað. Þetta á ekkert skylt við það hvort alþýðubandalagsráðherrarnir séu kátir eða glaðir yfir því að vera komnir úr ríkisstjórn. Það er mesti misskilningur hjá hæstv. forsrh. Auðvitað er honum frjálst að hafa þá skemmtun sem hann vill. Það hefur enginn neitt á móti því og þetta er ódýr skemmtun og þess vegna skaðar það ekki nokkurn mann. En hitt er aftur á móti mjög alvarlegt mál ef þær leikreglur eiga að verða teknar hér upp að þingið geti ekki treyst því að forseti beiti sér fyrir því að þingmönnum séu afhent þau gögn sem ráðherrar eru að vitna í. Það er mjög alvarlegt ef forseti er raunverulega orðinn ráðherra en ekki forseti þingsins, ef hann lítur ekki á það sem skyldur sínar að gæta réttinda þingsins til að afla gagna, heldur lítur svo á að hann sé fulltrúi framkvæmdarvaldsins í að halda gögnum leyndum fyrir þinginu. Þess vegna óska ég eftir afstöðu forseta, hvort hæstv. forseti muni beita sér fyrir því að þessi gögn verði afhent þingmönnum jafnfljótt og verða má.