Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Það komu fram sérstakar óskir af hálfu þingmanna í stjórnarandstöðu um það að skýrsla um ríkisfjármál, stöðu, horfur og aðgerðir yrði til sérstakrar umræðu hér. Raunar var gert ráð fyrir því að sú umræða færi fram fyrr, eða í síðustu viku, en vegna langra umræðna um stefnuræðu hæstv. forsrh. hefur tafist að flytja þessa framsöguræðu og fylgja skýrslunni úr hlaði.
Strax eftir að stjórnarskipti urðu samþykkti ríkisstjórnin að gera úttekt á stöðu ríkisfjármálanna. Í stjórnarmyndunarviðræðunum lágu frammi upplýsingar frá fjmrn. og reyndar á síðasta degi einnig frá Ríkisendurskoðun. Á fyrstu vikum sem hæstv. ríkisstjórn starfaði var vandlega farið í saumana á ríkisfjármálum til að kanna rækilega hvernig raunveruleg staða ríkisfjármálanna væri við upphaf þessa stjórnartímabils. Þá kom að sjálfsögðu í ljós að ástandið var lakara en við var að búast. Jafnframt kom fram að ástandið var miklu lakara en talsmenn fyrrv. ríkisstjórnar sögðu fyrir kosningar og á ég þá sérstaklega við hv. 8. þm. Reykn., fyrrv. fjmrh., sem hefur leyft sér að halda fram að ríkisfjármálin séu í allgóðu lagi og gert það reyndar svo lengi að eftir að upplýsingar lágu fyrir um annað í ráðuneytinu, þá hélt hv. þm., þáv. ráðherra, blaðamannafund og sagði frá stöðunni allt öðruvísi en starfsmenn ráðuneytisins höfðu sagt honum á þeim tíma.
Sumir hafa talið að kosningar séu í eðli sínu nokkurs konar efnahagsvandi. Það er kannski hægt, með leyfi forseta, að rifja upp ummæli eins kunns hagfræðings sem hefur skrifað orðrétt nú þegar stjórnarskipti áttu sér stað: ,,Kosningar eru í eðli sínu nokkurs konar efnahagsvandi. Stjórnarliðar hafa tilhneigingu til að undirstrika að ástandið sé gott og leggi traustan grunn að framtíðinni. Mörgum frambjóðendum hættir til að hefja á þeim grunni uppboð á hvers konar kjarabótum sem launþegar og þá einkum fjölmennar láglaunastéttir eigi tilkall til. Lítið varð að sjálfsögðu úr andmælum við því frammi fyrir kjósendum. Með þessu móti var almenningur skilinn eftir með þveröfugar stefnuáherslur við það sem þurft hefði til þess að mynda samstöðu um lausn hins raunverulega vanda.`` ( Gripið fram í: Hvar eru þessi orð?) Þessi orð eru úr ritsmíð sem send var þeim aðilum sem stóðu að stjórnarmyndun, en jafnvel þótt hv. þm. komi hér í ræðustól á eftir og heimti það að því sé lýst nákvæmlega, þá er það tilgangslaust því að ég mun sýna honum þessi ummæli því að það er ekkert leyndarmál eftir hverjum þetta er haft. Ef hv. þm. telur sig deyja úr forvitni þessar nokkrar mínútur sem þessi ræða stendur yfir, þá get ég sagt honum það að maðurinn er Bjarni Bragi Jónsson, þekktur maður í sinni stétt og hefur skrifað margan góðan texta og vona ég að það sefi hv. þm. í örfáar mínútur. (Gripið fram í.) Ég er nú ekki dómbær á það hver er vel alinn og hver ekki, en þetta rifjar auðvitað upp, eins og hv. þm. veit, ummæli þess efnis að starfsmenn Seðlabankans lifa ekki á brauði einu saman.
Þegar farið var að skoða ríkisfjármálin kom sem sagt í ljós að þau voru öll í ólestri og það sem kannski verra var, og það er athygli vert fyrir þá sem hæst hafa haft í umræðunni um stefnuræðuna, að þau höfðu skapað efnahagsvanda sem var til staðar hjá þjóðinni. Efnahagsvandinn lýsti sér í því að gjaldeyrisstaða þjóðarinnar hafði versnað verulega, öfugt við þá þróun sem varð á fyrstu fjórum mánuðum sl. árs. Í öðru lagi var viðskiptahallinn miklu meiri en á sama tíma árið áður og miklu meiri en fyrrv. ríkisstjórn gerði ráð fyrir. Þegar litið er á ríkisfjármálin sérstaklega, eins og gert er í þessari skýrslu sem hér er til umræðu, blasa við þær staðreyndir að miðað við þá stöðu sem ríkisfjármálin eru í eftir fjóra fyrstu mánuði þessa árs, þá er ekki lengur búist við því að óbreyttu að fjárlög fyrir þetta ár verði með 4 milljarða rekstrarhalla heldur verði hallinn 5 milljarðar í viðbót eða helmingi meiri en fyrrv. ráðherra hafði haldið fram.
Í öðru lagi var ekki lengur gert ráð fyrir því að lánsfjárhallinn væri 5,9 milljarðar heldur gæti hann farið upp í 13,1 milljarð eða yrði 7,2 milljörðum hærri en gert hafði verið ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Við þetta bættist, sem hefur þýðingu jafnframt, að talið var við stjórnarskiptin að húsnæðiskerfið þyrfti ekki á 18 milljörðum að halda, miðað við þær reglur sem fyrrv. ríkisstjórn starfaði við og ætlaði sér að starfa við, heldur þyrfti það á yfir 20 milljörðum að halda, 20 -- 21 milljarði.
Þannig stóðum við frammi fyrir þeim vanda að lánsfjárhallinn yrði ekki 24 milljarðar heldur 34 milljarðar eða 10 milljörðum hærri en hv. 8. þm. Reykn. taldi að yrði við fjárlagagerðina. Þetta hefði nú eitt út af fyrir sig nægt til þess að ýmsir hefðu sagt að vandinn væri afar mikill og illyfirstíganlegur. En þegar við þetta bætist að fyrrv. ríkisstjórn lagði upp á þessu ári með það nesti að nýr sparnaður í landinu, sá sparnaður sem félli til á yfirstandandi ári, yrði 38 milljarðar og að hún mundi stefna að því samkvæmt lögum að afla allra lána sem ríkið þyrfti á að halda innan lands, þá kemur núna í ljós að sparnaðurinn verður að áliti Seðlabankans ekki 38 milljarðar heldur líklega 26 milljarðar eða 12 milljörðum minni en fyrrv. ríkisstjórn gerði ráð fyrir í sínum áætlunum.
Nú ætla ég ekki að halda því fram að það sé allt ríkisstjórninni fyrrv. að kenna sem hér hefur verið sagt. Auðvitað getur það verið að sparnaðurinn hafi verið ofáætlaður, en ég hygg þó að þeir sem skoðað hafa feril síðustu ríkisstjórnar síðustu mánuðina, síðustu sex mánuðina á að giska, geti verið sammála um það, allir þeir sem skoða hana með faglegum hætti, að stefnan sem sú ríkisstjórn fylgdi í vaxtamálum hafi gert það að verkum að fólk missti áhugann á því að spara en fór að eyða. Þetta var þess vegna ástandið sem blasti við þegar stjórnarskiptin fóru fram.
Þá spyr maður sig: Til hvaða ráða greip ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar? Reyndi hún ekki í tíma að grípa til þeirra aðgerða sem dygðu? Reyndi hún ekki að afla lána hér á landi, koma á jafnvægi til þess að hún gæti tekið lán fyrir þeim halla sem hún hafði þá
þegar gert ráð fyrir að yrði á fjárlögum? Reyndi hún ekki við afgreiðslu lánsfjárlaga og afgreiðslu frumvarpa í lok síðasta þings að ná endum saman, að styrkja stöðu ríkissjóðs? Nei, öðru nær. Þar hallaði allt á aðra hliðina. Peningarnir runnu út. En það sem kannski er allra verst er að ríkissjóður stóð í ströngu við að greiða þeim lántakendum sem höfðu lánað ríkissjóði peninga, borgaði þá peninga út úr ríkissjóði.
Til að nefna dæmi um það hvað var að gerast fyrstu fjóra mánuðina má geta þess að fyrstu fjóra mánuðina á sl. ári seldi ríkið ríkisverðbréf fyrir 3,8 milljarða kr. En fyrstu fjóra mánuðina á yfirstandandi ári þegar þáv. ríkisstjórnin var að keppast við að búa til útgjöld, skrifa á kosningavíxla sem voru innstæðulausir, borgaði fjmrh. út 2,8 milljarða. Og það var á þessu augnabliki sem hann auglýsti það á kostnað íslenskra skattborgara að hann í öllu sínu veldi hefði komið í veg fyrir erlendar lántökur. Nú er það rangt því að á síðasta ári voru tekin erlend lán og það meira að segja örfáum dögum eftir að hæstv. ráðherra lét afgreiða hér á þingi lánsfjárlög rétt fyrir jól og sagðist þar ætla að taka alla fjármunina innan lands en ekki nýta heimildina til að taka erlend lán. Það liðu ekki tíu dagar áður en hann tók erlend lán.
Ég ætla ekki að fara frekar út í þá sálma, en það er alveg ljóst eins og ég stend hér að þannig hefur verið haldið á ríkisfjármálunum á fyrstu mánuðum þessa árs að það hefur leitt til stórkostlegs efnahagsvanda sem tekur talsverðan tíma að vinna að lausn á. Og það tekur sjálfsagt lengri tíma en þetta ár. Þetta er sýnt í þeirri skýrslu sem við erum að ræða hérna og lýsir sér m.a. í því, svo að ég nefni eina tölu enn til sögunnar, að yfirdrátturinn í Seðlabankanum í fyrra eftir fjóra fyrstu mánuði ársins var 2,9 milljarðar en núna í ár eftir fjóra fyrstu mánuði ársins má snúa þessari tölu við. Það eru 9,2 milljarðar. Þannig er viðskilnaðurinn að munurinn er 6,3 milljarðar.
Að taka lán í Seðlabankanum með þessum hætti, að draga yfir, hefur þá þýðingu að það myndast þensla í efnahagskerfinu. Þetta hefur sömu þýðingu eins og að prenta seðla án þess að nokkur verðmætasköpun sé á bak við það, hefur sömu þýðingu og taka erlend lán. Sá sem stóð fyrir þessu var sá maður sem auglýsti á okkar kostnað að hann hefði komið í veg fyrir það að ríkissjóður tæki erlend lán.
Því miður er staðan slík, eins og kemur rækilega fram í þessari skýrslu, að ríkisstjórnin fyrrv. ber ábyrgð á því og þá ekki síst fjmrh. og auðvitað forsrh. ( Gripið fram í: Viðskrh.) Ekki svona óróleika. (Gripið fram í.) Nei, nei, nei. Og þeir sem sátu í þeirri ríkisstjórn. En sumir þeirra höfðu vit á því að finna sér förunaut til að skipta um stefnu. Sá er munurinn á þeim og hinum sem nú sitja utan garðs í stjórnarandstöðunni.
Það er út af fyrir sig athygli vert og var það hérna í umræðunum sem voru að klárast að sjá hve skelfilega svekktir þeir eru nú sem sitja utan stjórnarinnar en ætluðu sér að halda áfram, höfðu orð á því fyrir kosningarnar en fengu því ekki framgengt og ráðast nú linnulaust á þá ráðherra sem sátu í þeirri ríkisstjórn með þeim. ( Gripið fram í: Hvers vegna sleppir þú þeim alltaf?) Ég sleppi þeim þegar mér sýnist. Ég þarf ekkert að spyrja hv. þm. um það hverjum ég sleppi og hverja ég tek. En þegar ég segi fyrrv. ríkisstjórn, þá vona ég að menn skilji hvað í því hugtaki felst. Það er ég a.m.k. búinn að segja fjórum eða fimm sinnum í minni ræðu og þeir sem vita hvað ríkisstjórn er ættu að geta vitað að það eru þeir ráðherrar allir sem í henni sitja, líka Borgfl. ( ÓRG: Það er náttúrlega spurning hvort þetta er ríkisstjórn sem er núna.) Já, já, það getur verið spurning fyrir prófessor í stjórnmálafræðum og ég vona að kennslan hans í Háskólanum sé ekki með þeim endemum að hann þurfi að spyrja slíkra spurninga þar. En það er athygli vert að heyra hv. þm. kalla þetta hér fram í og sérstaklega athygli vert fyrir þá sem hafa verið nemendur hans að hann skuli þurfa að spyrja að þessu hér.
Það sem liggur fyrir er að sá ríkisfjármálavandi sem nú blasir við er efnahagsvandi og hann þýðir það í raun og veru að ríkisstjórnin, þar með taldir fyrrv. forsrh. og fjmrh., bera ábyrgð á því jafnvægisleysi í efnahagsmálum þjóðarinnar sem í raun og veru er smám saman að grafa undan þeim grunni sem kjarasamningarnir sem lækkuðu verðbólguna standa á. Og það er þetta sem er alvarlegt mál.
Ég held, virðulegi forseti, að fyrir þingtíðindin sé ástæða fyrir mig að segja það hér í eitt skipti fyrir öll að hér hafi hv. framsóknarþingmenn kallað fram í titrandi röddu um það að Alþfl. hafi líka verið í fyrrv. ríkisstjórn og reyndar líka fulltrúar Alþb. Ég tel því ágætt að fá það í eitt skipti fyrir öll að þeir hafi haft mikinn áhuga á því núna í þessum frammíköllum að skýra frá því að þeir hafi ekki verið einir að vinna þessi óhæfuverk heldur hafi fleiri þurft til. Vonast ég nú til þess að það hafi komist svo rækilega til skila að menn geti andað rólega í örfáar mínútur.
Mig langar til þess að vekja athygli á nokkrum atriðum sem er að finna í þessari skýrslu, ég ætla mér ekki að lesa upp úr skýrslunni nema síður sé, en ég held að það sé samt ástæða til þess að benda á örfá atriði sem ég tel að hv. þm. þyrftu aðeins að glöggva sig á. Kannski hafa allir hv. þm. gert það en ég vil þó leggja áherslu á nokkur atriði.
Í fyrsta lagi vil ég benda á að í skýrslunni er sagt frá í hverju munurinn á framsetningu Ríkisendurskoðunar annars vegar og fjmrn. hins vegar er fólginn. Það sést á bls. 8 og 9. Ég hef þegar rakið helstu atriðin vegna afkomu ríkissjóðs fyrstu fjóra mánuði þessa árs og þarf ekki að endurtaka það en það er að finna í 2. kafla þessarar skýrslu.
Í 3. kaflanum er sýnt hvernig ástandið hefði orðið á öllu árinu ef fram hefði verið haldið með sama hætti og hæstv. fyrrv. ríkisstjórn lagði grunninn að. Jafnframt er þar að finna hvaða áhrif tillögur núv. hæstv. ríkisstjórnar hefur á þá framvindu sem ella hefði orðið. Á bls. 19 er fjallað um Lánasjóð ísl. námsmanna auk annarra útgjaldatilefna. Í því sambandi vil ég sérstaklega taka fram að það eina sem núv. hæstv. ríkisstjórn er að gera er að breyta reglum Lánasjóðs ísl. námsmanna þannig að sú fjárhæð
sem þarf til útborgunar á lánum sé hin sama og fyrrv. ríkisstjórn ætlaðist til að nota í málið.
Í fjárlagagerðinni og þegar lánsfjárlög voru til afgreiðslu var því haldið fram að fjárvöntun væri 300 -- 400 millj. í þennan sjóð að áliti forsvarsmanna sjóðsins, bæði þeirra sem störfuðu á vegum þáv. menntmrh. og þáv. fjmrh. Um leið og stjórnarskipti höfðu orðið kom í ljós að vandinn var tæpar 700 millj. Það eina sem verður gert er að breyta útlánareglum og reglugerð með þeim hætti að tölurnar verða eins og fyrrv. ríkisstjórn lagði til. Það verður að vísu erfitt en að sjálfsögðu vonumst við eftir stuðningi þeirra sem lögðu upp með þessum hætti þegar að skuldadögunum kemur.
Þá langar mig til að vekja athygli á því að í lok 3. kafla í þessari skýrslu er skýrt frá þeim vanda sem ríkissjóður stendur frammi fyrir vegna skuldbindinga sem á hann koma til með að falla á næstu árum og áratugum. Ég mun við síðara tækifæri gera frekari grein fyrir þessum vandamálum vegna þess að nú er svo komið að stór hluti útgjalda á hverju ári er bundinn vegna skuldbindinga sem ríkisstjórnir fyrir löngu síðan hafa tekið. En það er athygli vert nú og kann að hafa þýðingu fyrir hv. þm., ekki síst þingmenn stjórnarandstöðunnar, þ.e. þess hluta hennar sem sat í síðustu ríkisstjórn, að þær skuldbindingar sem taldar eru falla á ríkissjóð á næstu árum eru skuldbindingar vegna Ábyrgðadeildar fiskeldislána, eru skuldbindingar vegna þeirra sjóða sem settir voru á laggirnar, Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina, Hlutafjársjóðs, Byggðastofnunar og Framkvæmdasjóðs.
Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að haustið 1988 áttu sér stað stjórnarskipti og þá var því haldið fram, ekki síst af þeim forsrh. sem tók við, hv. þm. Steingrími Hermannssyni, að þáv. ríkisstjórn hefði tekið til óspilltra málanna og bjargað atvinnulífinu. Nú kemur það í ljós, og ég held að það sé full ástæða fyrir hv. þm. að átta sig á því, að sú björgunaraðgerð mun, eins og þá var sagt af þáv. stjórnarandstöðu, falla á ríkissjóð á þessu kjörtímabili og ugglaust því næsta líka. Þetta kunna að vera tíðindi fyrir einhverja og ætti kannski að vera umhugsunarefni fyrir þá sem í kosningabaráttunni héldu því fram að fyrrv. ríkisstjórn hefði sko bjargað öllu haustið 1988 og fram á árið 1989. Björgunaraðgerðin var að stórum hluta til frestur, lántaka sem núna mun falla á ríkissjóð á næstu árum.
Út af fyrir sig er það kannski björgun að fresta vandanum með þessum hætti og láta falla síðan á ríkissjóð, en það er athugunarefni fyrir þá sem hafa haldið því fram að þeir hafi dregið upp úr hatti sínum haustið 1988 og á árinu 1989 töfrabrögð sem hafi ekki kostað neitt og enginn þyrfti síðan að borga. Því það eru auðvitað skattborgararnir sem koma til með að þurfa að greiða þetta á næstu árum, jafnvel áratugum. Ég mun síðar gera frekari grein fyrir þessum málum þegar betra tækifæri gefst til. En ég vek athygli á því að í þessum kafla er sagt frá því hvaða þýðingu þetta getur haft fyrir framtíðina og ég veit að við erum þar á sama báti --- þeir sem hafa verið fjmrh. --- að þessi vandi er með þeim hætti að þingið verður að taka á honum með öðrum hætti en hingað til hefur verið gert. Ég ætla ekki, og ég tek það mjög skýrt fram, að kenna fyrrv. fjmrh. um það að þetta gerist með þessum hætti. Þetta er siður eða ósiður, eða hvað á að kalla það, sem Alþingi hefur stundað árum og jafnvel áratugum saman þótt þetta hafi færst í verulegan vöxt upp á síðkastið. Ég veit að við erum sammála um það, þeir sem hafa verið í fjmrn., að þessu þarf að breyta og það þarf á hverju ári sem skuldbindingar eru teknar að átta sig á því og færa það inn í fjárlög eða inn með þeim hætti til þingsins að það sé vitað hvað hlutirnir raunverulega kosta.
Angi af þessu máli er einnig annað og það er í sjöttu greinar heimildunum. Nú tek ég það fram að ég er ekki að skamma fyrrv. fjmrh. og fyrrv. ríkisstjórn fyrir það, heldur aðeins að benda á hvaða vandi er uppi einmitt fyrir hv. þm. og hæstv. ráðherra. En það er að í 6. gr. er mjög mikið af heimildarákvæðum án þess að nokkrar tölur séu nefndar. Síðan auðvitað standa ráðherrar frammi fyrir því að það er sagt: Þingið er búið að samþykkja eitthvað. --- Og það er þrýst á ráðherrana á þann veg að þeir þurfa að leysa mál á grundvelli sjöttu greinar heimildar og þá er ekki gerður munur á því hvort það er títuprjónshaus eða körfubolti.
Ég nefni í þessu sambandi til að mynda, það væri hægt að nefna hvað sem er, kaup á húsum. Það er ekki sama hvort húsið kostar 10 millj. eða 600 millj. Ég er ekki að skamma fráfarandi fjmrh. í ríkisstjórninni fyrir þetta heldur aðeins að benda á að það eru auðvitað veikleikar í sjálfri fjárlagagerðinni sem gera það að verkum að fjmrh. eiga mjög erfitt um vik þegar á þá er þrýst. ( Gripið fram í: Hvar er heilbrrh.?) Fyrrv.? ( Gripið fram í: Núv.) Ef hv. þm. er að verða veikur þá ætti hann frekar að hringja í lækni. Hann er sjálfsagt austur í Hveragerði, já.
Þá vil ég að lokum varðandi þessa skýrslu og áður en ég lýsi aðgerðum ríkisstjórnarinnar fjalla örlítið um það sem er á öftustu síðu á fskj. 6. Það er yfirlit um samninga og skuldbindingar sem stofnað var til af fyrrv. ríkisstjórn á tímabilinu 1. jan. til 30. apríl. Hv. 8. þm. Reykn. Ólafur Ragnar Grímsson hefur sagt að allt sem þarna standi hafi verið samþykkt af Alþingi. Hann hefur sagt það í blaðaviðtölum og sjónvarpsviðtölum og útvarpsviðtölum og haldið því fram að það sé einhver helber misskilningur hjá núv. fjmrh. að þessi heildarskuldbinding sé eitthvað á hans vegum. Hér er þetta birt svart á hvítu og það kemur auðvitað í ljós að hluti af þessu er með heimild Alþingis. Þar á meðal eru ýmsar heimildir af 6. gr. sem ég hef nýlega verið að lýsa hvernig eru, en einnig eru þar samningar sem gerðir eru án þess að Alþingi hafi lagt blessun sína yfir þá. Ég vil þó gera mun á þeim samningum sem eru gerðir eftir að Alþingi hefur greinilega hleypt framkvæmdum af stað, eins og t.d. þegar um er að ræða Menntaskólann í Kópavogi og Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki.
Ég vil hins vegar benda á varðandi búvörusamninginn af því að hann var til umræðu hér fyrr í dag.
Ég ætla ekki að ræða efni hans. Ég ætla ekki að leggja dóm á hvort það er góður eða vondur samningur. Það dettur mér ekki í hug að gera. Ég ætla ekki heldur að leggja dóm á það hvort hann sé löglegur að allri gerð eða hver lagaleg staða hans er. En hitt vil ég segja að sé það rétt að einn stjórnarflokkurinn hafi haft fyrirvara í síðustu ríkisstjórn þá er það ljóst að fjmrh. í þeirri ríkisstjórn og landbrh. í þeirri ríkisstjórn skrifuðu undir samninginn vitandi það að þeir hefðu minni hluta Alþingis á bak við sig. Sé þetta rétt þá er það ljóst að munurinn á þessum samningi og samningi sem gerður var 1987 er sá að þá stóðu að samningnum flokkar sem voru í meiri hluta á Alþingi. Nú virðast hafa staðið að a.m.k. slaufunum sem svo eru kallaðar á þessum samningi flokkar sem voru í minni hluta á Alþingi. Þá geng ég út frá því að því hafi verið haldið fram í ríkisstjórninni að einn stjórnarflokkanna hafi haft fullan fyrirvara við samninginn. ( Utanrrh.: Tveir.) Tveir er kallað fram í af formanni Alþfl. Og það er það sem er alvarlegt alveg burt séð frá efni samningsins, sem kannski er gott, að fulltrúar minni hluta Alþingis skuli skuldbinda stjórnvöld með milljörðum króna fram í tímann án þess að tryggja það að meiri hluti Alþingis standi með þeim og þá er ég ekkert að minnast á efni samningsins, ekkert að minnast á það hvort hann er löglegur eða ólöglegur, heldur einungis að það skuli a.m.k. ekki vera tryggt og ljóst þegar slíkar skuldbindingar eru gerðar að meiri hluti þess Alþingis sem a.m.k. þá situr eða stendur að baki þeirrar ríkisstjórnar sem ábyrgist slíkar undirskriftir skuli vera að réttu lagi og fyrir hendi. ( VS: Hverjir samþykktu lánsfjárlög?) Ég skal svara því vegna þess að þetta kom ekki fram í lánsfjárlögum. Það kom fram í lánsfjárlögum, sem ég hélt að hv. þm. hefði kynnt sér og lesið af því ég veit að hv. þm. þekkir vel til í landbúnaði, að þar voru samþykktar 1700 millj. kr. og það er að sjálfsögðu gert með atbeina Alþingis, enda er sú tala ekki inni í því sem ég er hér að ræða heldur eru þetta tölur sem eru allt annars eðlis og eiga að koma til greiðslu ekki í ár heldur á næstu árum og eru greiðslur sem eiga að ganga til landgræðslu, til Framleiðnisjóðs og til Byggðasjóðs og fleiri verkefna. Þetta hélt ég nú að hv. þm. vissi --- ( Gripið fram í: Og veit ráðherrann þetta?)
Ég tek það samt sem áður fram aftur vegna allra þessara frammíkalla að ég er ekki að leggja dóm á þennan samning með neinum hætti heldur er ég aðeins að lýsa því hvernig hann er gerður, því svo kann að fara að hann bindi Alþingi næstu ára. Ætla ég ekki frekar að fjalla um þennan samning að sinni. Ég hef aðeins rætt hér um þessa tæknilegu hlið sem ég tel þó vera mjög mikilvæga.
Í skýrslunni er getið að sjálfsögðu um þær aðgerðir sem hæstv. ríkisstjórnin hefur gripið til og hefur ætlað sér að grípa til til þess að reyna að koma í veg fyrir verstu afleiðingar þess vanda sem íslenska þjóðin stendur nú frammi fyrir í kjölfar stjórnarskiptanna vegna aðgerðaleysis og tómlætis fyrri ríkisstjórnar. Langsamlega stærsta og veigamesta aðgerðin er að
sjálfsögðu vaxtahækkunin sem varð til vegna þess að ríkisstjórnin fyrrv. hafði látið undir höfuð leggjast að færa vaxtastigið á ríkisverðbréfum til samræmis við það sem markaðurinn þurfti. Það er ekkert vit í því að segja og það sér náttúrlega hvert skólabarn í landinu að vextir séu 6% og svo selst ekkert einasta bréf. Þess vegna gætu vextirnir verið mínus 2%. Það hefur nákvæmlega sömu þýðingu ef það selst ekki neitt. Ég gæti líka haldið því fram að ég sé í milljón króna skóm. Það bara kaupir enginn skóna mína á milljón krónur. Og með sama hætti lýsti fjmrh. því yfir að vextirnir á spariskírteinunum væru 6%. Það var alveg rétt. Það bara keypti enginn skuldabréfin. ( ÓÞÞ: Hvar fást svona skór.) Það er góð spurning hjá þeim sem greinilega hefur ekki kynnst slíkum verkfærum mjög lengi. En ef hann vill fá upplýsingar um það því ég hef staðið hér í því fræðsluhlutverki að kenna framsóknarþingmönnum, þar á meðal þeim sem situr hérna, þá er hægt hugsa ég að fá upplýsingar um það í kaupfélaginu.
Í sambandi við vaxtahækkunina hefur því verið haldið fram að hæstv. ríkisstjórnin sé að splundra þjóðarsáttinni. Ég vil segja það hér og nú að fyrrv. ríkisstjórn, ríkisstjórn hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar og Steingríms Hermannssonar, hækkaði líka vexti örfáum mánuðum eftir að þjóðarsáttin var gerð og auðvitað voru vextir þá ekki hækkaðir til þess að splundra þjóðarsáttinni. Vextir voru hækkaðir þá til þess að fyrrv. fjmrh., hv. 8. þm. Reykn., gæti fengið peninga í ríkiskassann og til þess að halda því jafnvægi sem þurfti að vera í íslensku efnahagslífi til þess að þjóðarsáttin gæti haldið áfram að vera til. Og það er nákvæmlega það sama sem núv. hæstv. ríkisstjórn er að gera. Hún er að hækka vextina til þess í fyrsta lagi að freista þess að auka sparnaðinn
á kostnað eyðslunnar og einnig til hins að ríkissjóður geti aflað meiri lána til þess að standa undir þeim stórkostlega halla sem er í ríkisfjármálunum, annars vegar á ríkissjóði sjálfum og hins vegar vegna lánsfjárþarfarinnar sem er í húsnæðiskerfinu.
Hæstv. ríkisstjórn hefur enn fremur samþykkt og ákveðið að tillögu stjórnar Húsnæðisstofnunar að vextir á lánum sem gefin voru út af Húsnæðisstofnun frá 1984 verði hækkaðir 1. júlí úr 3,5% í 4,9%. Reyndar voru vextir hækkaðir á nýjum lánum 5. des. 1989 upp í 4,5% þannig að hækkunin á þeim vöxtum verður 0,4%.
Ég hélt satt að segja að hv. þm. Alþb. og Framsfl. fögnuðu þessu. Þeir gætu að vísu gagnrýnt það að vextir yrðu ekki hækkaðir heldur meira vegna þess að fulltrúar þeirra flokka lögðu til í tíð fyrrv. ríkisstjórnar að vextirnir í þessu kerfi yrðu hækkaðir meira. Í þeim nefndum sátu bæði efnahagsráðgjafar fyrrv. forsrh. og fyrrv. fjmrh. og lögðu eindregið til að vextirnir af þessum lánum yrðu hækkaðir í yfir 5%. Það hefur ekki verið gert núna en þeir hafa verið hækkaðir í 4,9. Allt í einu er komið annað hljóð í strokkinn. Það er út af fyrir sig athygli vert hvernig menn verða umskiptingar um leið og þeir koma aftur í stjórnarandstöðuna. Það á nú við Alþb., því hinir hafa ekki verið í stjórnarandstöðu í manna minnum.
Þegar þetta mál kemur upp segja sumir: Þetta er óþokkabragð. Nú er hæstv. ríkisstjórn að hækka þessa vexti afturvirkt. Það er auðvitað alrangt. Vextirnir verða ekki hækkaðir fyrr en 1. júlí nk. en það gildir auðvitað um þau lán sem eru útistandandi. Og það er auðvitað út í bláinn að tala um að þetta séu afturvirkir vextir og borið saman við afturvirka skatta. Afturvirkir skattar eru það þegar ríkisstjórnir leggja skatta á tekjur sem menn hafa þegar unnið sér fyrir. En í þessu tilviki er um að ræða lán sem eru útistandandi, lán sem menn skrifuðu undir með þeim hætti að það var skýrlega tekið fram að vextir af lánunum gætu breyst. Þegar samningarnir voru gerðir 1986 stóð þannig á að ég var formaður í félmn. Nd. Þá lá fyrir undirsamningur um það að vaxtastigið hækkaði ekki út það kjörtímabil. Aðilar að samningnum, það fullyrði ég hér, vissu að vaxtastigið mundi breytast upp frá því af því að þeir voru það skynsamir að skilja að það hlyti að hafa áhrif á vaxtastigið á hvaða kjörum lífeyrissjóðirnir fjármögnuðu þetta kerfi.
Þetta vil ég að komi fram hér af því að því er stundum haldið fram að hér sé um einhverja stefnubreytingu núv. ríkisstjórnar að ræða, en sannleikurinn er sá að þessi viðhorf komu fram í nál., sem ég er með hér, frá fyrrv. ríkisstjórn sem fulltrúar Alþfl. að sjálfsögðu og fulltrúar Alþb. og fulltrúar Framsfl. sátu í og lögðu þetta eindregið til.
Ég vil minna á tvennt í sambandi við vaxtamálin. Það er að í húsnæðiskerfinu háttar þannig til að það fólk sem hefur lítil efni, á litlar eignir og það fólk sem er tekjulágt fær þessar upphæðir til baka í gegnum vaxtabótakerfið. Ég vil einnig taka það fram, af því að ég hef heyrt þá gagnrýni koma vegna vaxtahækkunarinnar almennt að bankarnir muni þá að sjálfsögðu ná sér í vaxtamun, að það er alveg út í bláinn að halda því fram að viðskiptabankarnir í landinu eigi einhvern rétt á meiri vaxtamun vegna vaxtabreytinga. Hafi verið þörf á vaxtamun í bankakerfinu, þá er það algerlega óháð þessari vaxtabreytingu því vaxtamunurinn er auðvitað munurinn á innláns - og útlánsvöxtum og það þarf ekkert að breyta honum þótt vaxtastigið hækki eða lækki.
Í sambandi við húsbréfakerfið, sem hv. þm. Framsfl. hafa margir hverjir rætt, skal það tekið fram að þar starfar nefnd á vegum hæstv. félmrh. Sú nefnd mun ljúka störfum innan mánaðar og það er ætlunin að hún leggi fram tillögur eins og hefur komið fram hjá hæstv. félmrh. um það hvernig megi ná jafnvægi í því kerfi. Ég tel það vera mikilvægt mál og ég fagna því að fulltrúar Framsfl. í umræðum hér skuli taka undir að það þurfi að ná jafnvægi í því kerfi.
Vegna þess hve lengi ég hef talað hér, virðulegi forseti, sé ég ekki ástæðu til þess að vera að rekja í einstökum liðum aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þær hafa verið til umræðu í umræðunum sem fóru fram um stefnuræðuna. Þær eru skýrt settar fram í þessari skýrslu og engin ástæða til þess að vera að lesa þær upp sérstaklega í þessari ræðu. En ég má til áður en ég lýk ræðu minni að nefna örfá atriði.
Fyrst er kannski ástæða til þess að benda á að vaxtahækkunin mun að sjálfsögðu hafa einhver verðlagsáhrif á næstunni. Ég hef látið meta það og það er álitið að 1,5% í hækkun á vöxtum muni geta leitt til 0,5% hækkunar á framfærsluvísitölu. Ég vil einnig að það komi skýrt fram hér að margt af því sem fyrrv. ríkisstjórn hefði átt að vera búin að gera, t.d. í sambandi við verðlagningu á áfengi og tóbaki, og gert er ráð fyrir samkvæmt fjárlögum að mundi hækka verulega á þessu ári, átti auðvitað að vera búið að gera fyrir löngu en var ekki gert til þess að halda vísitölunni niðri. Það veit auðvitað hv. þm., fyrrv. fjmrh.
Það er líka rétt að það komi fram að vegna þjóðarsáttarsamninganna er gert ráð fyrir því að gjaldskrá opinberra fyrirtækja hækki eftir ákveðnum reglum og sumt af því mun taka gildi nú á næstunni og hafa áhrif á verðlag. Þetta tel ég rétt að komi fram og ætla ég þó ekki að rekja það mál neitt frekar hér, enda ekki ástæða til. Það er ekki hluti af þessari skýrslu. En það er samt ástæða til þess að minna á þetta um leið og ég minni á að samningar hafa tekist á milli atvinnurekenda, þar á meðal ríkisins, og launþeganna í landinu um það hvernig launþegum verður borgaður viðskiptakjarabatinn, eða viðskiptakjarabatabætur eins og maður kannski ætti að segja svo að maður noti nú langt og óþjált orð, og ber auðvitað að fagna því að slíkir samningar hafi tekist.
Ég vil ekki heldur ljúka máli mínu án þess að víkja örlítið að því sem fram hefur komið í umræðunni um ríkisfjármálin frá hv. 8. þm. Reykn. sem ég geri ráð fyrir að muni tala hér á eftir. Hann hefur sagt, af því að hann var ekki kominn hér í upphafi ræðu minnar ætla ég að ítreka það, á blaðamannafundi sem hann hélt eftir að hann hafði upplýsingar í höndunum um annað, tveimur dögum seinna, daginn áður en stjórnarskiptin urðu, þann dag sem hann vissi fyrir víst að hann mundi ekki áfram sitja í ríkisstjórninni: Hallinn á ríkissjóði verður ekki meiri en 6,4 milljarðar og það er enginn vandi að ná honum niður í fjárlagatöluna. Þann dag lágu upplýsingar fyrir, bæði honum og þeim sem voru að reyna að mynda stjórn, um allt, allt aðra hluti. Hann kaus auðvitað að gera þetta svona til að rugla þjóðina í ríminu. Það er alvarlegur hlutur þegar slíkt á sér stað.
Síðar hefur hann verið spurður: Hvernig ætlaði hann að ná þessu niður? Og hann hefur sagt: Sparnaður í rekstri 400 millj. Það er það sama og núv. hæstv. ríkisstjórn er að leggja til. Hann hefur sagt: Minni tilfærsla upp á 700 -- 800 millj. Og ég spyr hv. þm.: Vill hann ekki skýra það út hér á eftir í ræðu sinni í hverju þetta var fólgið? Var þetta Lánasjóður ísl. námsmanna, sjúkratryggingar? Ég ætla að biðja hann að útfæra þessa hugmynd. Það getur vel verið að ég geti notað hana.
Hann ætlaði líka að draga úr framkvæmdum upp á 800 -- 900 millj. Hvaða framkvæmdum? Vegaframkvæmdum? Ég vona að hann geri mér þann greiða líka að lýsa því fyrst hann gat það fyrir nokkrum dögum í hverju það felst sem hann sagði þegar hann sagðist ætla að draga úr framkvæmdum, 800 -- 900 millj.
Loks sagði ráðherrann fyrrv. við sama tækifæri: Ég ætla að hækka skatta um 1100 -- 1200 millj. Og ég spyr hann: Hvaða skatta ætlaði hann að hækka? Hann hefur nefnt að full ástæða væri til að hætta við að hætta við jöfnunargjaldið á miðju ári. Það þarf lagabreytingu til. Ætlaði hann að flytja um það lagafrv. á vorþinginu? ( ÓRG: Svarið er já.) Svarið er já. En þá kemur babb í bátinn vegna þess að það liggur hjá ríkisstjórninni yfirlýsing þess efnis að slíkt verði ekki gert því að utanrrh. núv. og þáv. hafði skýrt frá því að það yrði fallið frá þessu gjaldi á miðju ári. Það eru fyrirliggjandi gögn um það frá okkar viðskiptalöndum sem við eigum samninga við.
Það er hins vegar athygli vert að svarið sé já en það vantar þarna enn þá talsvert á vegna þess að þetta mundi ekki nægja. Það þyrfti að hafa meiri tekjur og það væri vissulega fróðlegt að hann segði frá því og loks kannski að svara einni spurningu og hún er þessi: Af hverju gerði ekki hv. þm. þetta fyrir kosningar? Af hverju kaus hann heldur að tala um skattalækkanir fyrir kosningar þegar hann var að lýsa því þegar hann var lítill drengur vestur á fjörðum og manni skildist helst að hann hefði alltaf verið í frystihúsinu hjá konunum sem voru að vinna þar, hann hefði ekki gert annað. Og hann fór í sjónvarp og útvarp og sagði: Nú er hægt að lækka skattana á þessu fólki. En eftir kosningar átti að hækka skattana.
Er það ekki skrýtið að hann skuli ekki þegar hann var ráðherra og hafði tök á þessu og þegar hann sá hvernig peningarnir streymdu út úr ríkissjóði núna síðustu fjóra mánuðina að hann skyldi ekki segja þjóðinni þetta þá? Hann svarar þessu alveg örugglega á eftir, ef ég þekki hann rétt.
Svo er nú það að það mátti ekki hækka vextina. Ég spyr af því að það eru nú ekki töframenn alls staðar hér á landi, ekki í hverjum krók og kima. Þeir eru fáir en þeir eru til og einn þeirra, eða a.m.k. töframaður að eigin áliti, er fyrrv. fjmrh. Hvernig ætlaði hann að fjármagna 26 milljarðana, við skulum bara gefa honum lægstu tölu sem hann sjálfur miðaði við, á innanlandsmarkaði án þess að hækka vexti? Ég skal meira að segja lofa honum því að mæla með honum sem Nóbelsverðlaunahafa ef hann getur sýnt fram á að það sé hægt. Ég get ekki lofað því að þeir kaupi hugmyndina reyndar, en mín væri ánægjan að benda á hann. Hingað kemur alltaf blað og maður er beðinn um að stinga upp á þeim sem ættu að fá slík verðlaun og ef hv. þm. getur sýnt okkur fram á þetta, þá tel ég alveg fyllstu ástæðu til þess að mæla með honum. ( ÓRG: En ég get náttúrlega ekki sannað kenninguna nema ég taki við.) Það hefur þá kannski verið ástæðan fyrir þessari yfirlýsingu.
Ég sé ekki, virðulegi forseti, ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri. Það hefur nokkuð tognað úr þessari skýrslu. Ég vona að virðulegur forseti og aðrir virði mér það til vorkunnar þótt svo hafi gerst því að umræður hafa orðið heilmiklar um þessa skýrslu þrátt fyrir að hún hafi ekki komist hér á dagskrá. Það er alveg ljóst að tómlæti fyrrv. ríkisstjórnar og aðgerðaleysi hefur skapað hér efnahagslegt vandamál og
lausatökin í þessum málum hafa leitt til þess að grafið hefur verið undan jafnvæginu og þar með þeim grunni sem svokölluð þjóðarsátt hvílir á. Þess vegna verður viðnámið erfiðara en ella.
Ég vona að lokum, virðulegur forseti, að hv. þm., hvar í flokki sem þeir standa, og aðrir sýni hæstv. ríkisstjórn skilning og stuðning því að það skiptir gífurlega miklu máli að á ný verði náð jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar til þess að hægt verði að gera kjarasamninga áfram sem leiða til þess að verðbólgan hlaupi ekki á nýjan leik upp eftir öllu. Því miður hefur það gerst á undanförnum mánuðum að horfið hefur til verri áttar í þessum efnum, en þetta er hægt ef allir leggjast á eitt. Í því sambandi vil ég minna á að flokkur minn, Sjálfstfl., lagðist á árar með fyrrv. ríkisstjórn þegar gerðir voru svokallaðir þjóðarsáttarsamningar á sínum tíma. Þegar gerðir voru svokallaðir þjóðarsáttarsamningar eftir áramótin í fyrra stóð Sjálfstfl. með þeirri samningsgerð. ( GÁ: Í desember.) Ég þekki ekki almanakið í Árnessýslu, en ég veit alveg hvernig almanak við notum hér í Reykjavík. Samningarnir voru gerðir fyrri hluta sl. árs. En það getur vel verið að það hafi verið desember í Búnaðarbankanum. ( ÓRG: Hann á við atkvæðagreiðsluna um bráðabirgðalögin.) Atkvæðagreiðslan snerist þar um bráðabirgðalögin en ekki um þjóðarsáttina og á því er mikill munur. Ég þakka hv. 8. þm. Reykn. fyrir að benda á það og þann mun sem þar er á í leiðinni.
Virðulegi forseti. Ég hef hér í nokkrum orðum gert grein fyrir efni þessarar skýrslu. Hún liggur hér fyrir. Ég hef því miður heyrt á fyrirrennara mínum og reyndar sumum öðrum þingmönnum Framsfl. og Alþb. að það vandamál sem við sé að glíma sé ekki stórt. Því miður er vandamálið mjög stórt, svo stórt að það er vissulega þörf á því að við öll í sameiningu tökumst á við það ef við viljum í alvöru, sem ég trúi að hv. þm. fráfarandi stjórnarflokka vilji, halda verðbólgunni í skefjum, ná jafnvægi á ný og þeim stöðugleika sem þessi þjóð þarf á að halda í sínu efnahagslífi.