Ríkisfjármál 1991
Miðvikudaginn 29. maí 1991


     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. hefur hér gert grein fyrir þessari skýrslu og staðið til í nokkra daga að byrja umræður um hana.
Hins vegar hefur mikill tími, eins og allir vita, farið í umræður um stefnuræðu forsrh. og verð ég að segja að fyrir nýliða á Alþingi þá hafa þær umræður nú stundum verið nokkuð furðulegar. En hvað um það.
    Ég ætla ekki að fara hér í fyrri hluta skýrslunnar þar sem rakin er staða og framvinda fyrstu fjögurra mánaða í ríkisbúskapnum, heldur fyrst og fremst um hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar sem viðnámsaðgerðir.
    Í fyrsta lagi er talað um aðgerðir á sviði vaxtamála sem við höfum orði vitni að síðustu daga. Það verður einnig beitt meira aðhaldi í ríkisbúskapnum, er sagt, og hert eftirlit með innheimtu tekna og útgjöldum ríkissjóðs. Og í þriðja lagi hefur ríkisstjórnin ákveðið að lækka útgjöld og falla frá ýmsum lántökuáformum.
    Ríkisstjórnin hefur talað mikið um stöðugleika í ríkisfjármálunum og vill allt gera til að viðhalda þeim stöðugleika að eigin sögn. Hún væntir þess að þær aðgerðir sem hún boðar í ríkisfjármálum verði til þess að á ný náist stöðugleiki í verðlags- og kjaramálum. En fyrsta aðgerðin sem við höfum orðið vitni að, hækkun vaxta, er beinlínis til þess fallin að vinna á móti þessu markmiði, enda kom fram hér áðan í ræðu hæstv. fjmrh. að 1,5% hækkun vaxta mundi leiða til 0,5% hækkunar framfærsluvísitölu og hleypa verðbólgunni af stað.
    Fyrst voru sem sé hækkaðir vextir á ríkisvíxlum í 14,5%. Þar næst á skuldabréfum ríkissjóðs í 7,9% og síðan kom hækkun vaxta á lánum Húsnæðisstofnunar, afturvirk, hvað sem hver segir, til ársins 1984. Í kjölfarið fylgir að sjálfsögðu ávöxtunarkrafa húsbréfa og afföllin eru komin í 23%.
    Nú ræða lífeyrissjóðirnir um hækkun á sínu lánsfé til Húsnæðisstofnunar og í Morgunblaðinu 23. maí segir hæstv. fjmrh. að það sé nokkur hætta á því að bankarnir muni ákveða að auka vaxtamun inn- og útlána til þess að auka tekjur sínar. Það er einnig vitnað í ummæli bankastjóra Íslandsbanka, að vaxtamunur sé óeðlilega lítill og það verði að breytast.
    Vaxtaskriðan er í fullum gangi og ekki séð fyrir endann á því hversu mikilvirk hún verður né hve mikilli eyðileggingu hún á eftir að valda.
    Þegar lífeyrissjóðirnir hafa hækkað vexti á sínum lánum til Byggingarsjóðs ríkisins þá kallar það á enn frekari hækkun vaxta í húsnæðiskerfinu. Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða þessar vaxtahækkanir nú þar sem ég veit að það verður örugglega gert meira hér í kvöld og einnig af fulltrúa Kvennalistans.
    Þá kemur einnig fram í þessari skýrslu að það eigi að gera ráðstafanir til að innheimta eftirstöðvar af eldri skattskuldum og það kemur fram að útistandandi skattskuldir séu 10 -- 12 milljarðar króna. Það er nánast sú upphæð sem talið er að lánsfjárhalli ríkissjóðs stefni í verði ekki brugðist við. Það er auðvitað í

hæsta máta óeðlilegt að slíkt geti gerst og vitaskuld engar líkur á því að þetta innheimtist. Ég er þó sammála því að gert sé átak í að innheimta þessar skuldir en geri þó alveg eins ráð fyrir því að það skili sér mjög illa, svo þar verður ekki um stóran afla að ræða, því miður.
    Það er einnig rætt um niðurskurð á útgjöldum til almannatrygginga og hjá Lánasjóði ísl. námsmanna. Hvar skera á niður í almannatryggingum er ekki ljóst. Ekki heldur hvar sparnaður í rekstri sjúkrastofnana muni koma fram. Á síðasta ári var reynd sú leið að loka sjúkradeildum og senda sjúklinga heim. Í flestum tilfellum var hér um ósjálfbjarga fólk að ræða, enda væri það annars ekki inni á sjúkrahúsum. Aðstæður heima til að taka við þessum sjúklingum voru ekki kannaðar. Þarna var verið að velta vanda ríkissjóðs yfir á aðstandendur þessara sjúklinga sem yfirleitt voru ekki í stakk búnir til að sinna þessu hlutverki. Oftar en ekki varð þetta til þess að að loknu þessu tímabili voru aðstandendurnir sjálfir orðnir sjúklingar og þá fer nú að fara lítið fyrir þeim sparnaði, að ekki sé nú talað um mannlega þáttinn í þessu máli.
    Hvað Lánasjóð ísl. námsmanna varðar þá er það alltaf ámælisvert þegar verið er að koma aftan að fólki með því að breyta forsendum sem fólk hefur notað við sína áætlanagerð. Námsmenn hafa gert og þeir verða að gera áætlun um það hvernig þeir fjármagna nám sitt og þeir eru búnir að gera ráð fyrir þeirri úthlutun og þeim úthlutunarreglum sem í gildi eru í ár a.m.k. Það er ekki hægt að vinna að fjármálum á þennan hátt. Það þarf miklu lengri tíma til þess að námsmenn geti tekið mið af þessu og geti þá tekið mið af breyttri stöðu Lánasjóðsins ef verður að breyta forsendum þar.
    Síðan á að lækka framlag til vegamála um 350 millj. kr. Lækkunin á að koma jöfnum höndum niður á viðhaldi og nýframkvæmdum. Nú hefur mér borist í hendur bréf frá Vegagerðinni sem ég geri ráð fyrir að allir aðrir þingmenn hafi einnig fengið sem sýnir áætlaðan niðurskurð framkvæmda upp á alls 150 millj. kr. Þar kemur fram að framkvæmdir á Vestfjörðum eru skornar niður um 22 millj. og á Austfjörðum um 24 millj. Aftur á móti á höfuðborgarsvæðinu um aðeins 13 millj. Nú vita það allir að Vestfirðir og Austfirðir eru þau landsvæði þar sem mest er ógert í vegamálum, þar sem vegirnir eða öllu heldur götuslóðar sumir og torfæruakstursvegir sem þó eru taldir hlutar af þjóðvegakerfinu eru hvað flestir. Á Vestfjörðum á einnig að skerða fé til jarðgangagerðar um 100 millj. samkvæmt upplýsingum samgrh. Á Vestfjörðum er því niðurskurður til vegamála 122 millj. kr. sem er 35% af skerðingunni yfir allt landið.
    Það er rætt um að falla frá heimild til Landsvirkjunar um 400 millj. kr. og fyrirtækinu er ætlað að taka þá upphæð með gjaldskrárhækkun og að hluta úr eigin rekstri er sagt. Það kemur sem sagt alltaf að því að það er verið að bæta álögum á neytendur. Hæstv. fjmrh. heldur því fram að ekki megi hækka skatta en ég get ekki betur séð en verið sé að því þó þetta séu

kannski óbeinir skattar. Þetta eru þó póstar sem allir verða að greiða. Menn geta ekki hætt að greiða hita og rafmagn eða nota það.
    Í umræðunni um stefnuræðu forsrh. var upplýst að ríkisstjórnin hefði samþykkt að byrja aðgerðir til að jafna húshitunarkostnað. Í þessari skýrslu er svo talað um hækkun á gjaldskrá Landsvirkjunar þannig að þá er um leið búið að taka þetta aftur til baka, alla vega hvað varðar þær orkuveitur sem eru háðar orkukaupum frá Landsvirkjun.
    Þá hefur einnig komið fram visst ósamræmi í málflutningi stjórnarliða hér í umræðum undanfarna daga um landbúnaðarmál. Meginmálið í því er, og ég ætla ekkert að fara að rekja þau ummæli öll sem hér hafa fallið, hvort ríkisstjórnin ætlar að standa við sínar skuldbindingar sem samþykktar voru af fyrri ríkisstjórn. Þar á ég við þau uppkaup á fullvirðisrétti sem bændur hafa reiknað með. Í þessum samningi er ýmislegt sem betur hefði mátt fara. Þá á ég sérstaklega við þá byggðaröskun sem flöt skerðing mun hafa í för með sér. Ég hefði talið æskilegt að þar hefði verið tekið tillit til landnýtingar og byggðasjónarmiða og þau svæði sem sérstaklega eru fallin til sauðfjárframleiðslu væru undanskilin ákvæðum um flata skerðingu. En ef ekki á að standa við þær fjárskuldbindingar af hálfu ríkissjóðs sem búvörusamningurinn byggir á, þá er alveg eins hægt að lýsa því yfir að það eigi að leggja niður hefðbundinn landbúnað á Íslandi. En ég vænti þess að hæstv. ríkisstjórn sé ekki svo skammsýn.
    Það væri auðvitað hægt að hafa langt mál um ýmislegt sem kom fram í ræðu hæstv. fjmrh. hér áðan. Þó geri ég ráð fyrir því að umræðurnar sem áfram verða hér í kvöld muni mikið fara í deilur um fjármálaaðferðir fyrri ríkisstjórnar og hvað sú núv. hefur hugsað sér að gera.
    Ég vil aðeins leggja áherslu á það að þegar fjárlög eru undirbúin fyrir árið 1992, og ég tek þar undir síðustu orðin í skýrslu fjmrh., þarf að móta stefnuna í ríkisfjármálunum og náttúrlega ekki síst í ljósi þeirra skuldbindinga sem ríkissjóður kemur til með að þurfa að standa við á næstu árum. Þá legg ég einnig til að ýmsar fjáröflunarleiðir verði skoðaðar betur, svo sem eins og það að leggja skatta á fjármagnstekjur, eins og gert er í flestum OECD - löndum í kringum okkur. Það má einnig skoða það að hafa tvö skattþrep í tekjuskatti. Það má einnig skoða það að hafa tvö skattþrep í virðisaukaskatti.
    Að öðru leyti ætla ég að láta það bíða betri tíma að koma með tillögur um breyttar áherslur í fjármálum ríkisins.