Ríkisfjármál 1991
Miðvikudaginn 29. maí 1991


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Það er orðið nokkuð áliðið dags og ég ætla ekki að hafa hér langt mál. En það er einkum tvennt sem ég ætla að koma hér inn á í örstuttu máli.
    Í fyrsta lagi hinar sérstöku aðgerðir til þess að draga úr lánsfjárþörf ríkissjóðs, einkum er varðar samgöngumálin. Það kom fram í orðum hæstv. fjmrh. þegar hann mælti fyrir sinni skýrslu hér fyrr í kvöld að ýmsir frambjóðendur hefðu ekki þorað að segja ýmsa hluti fyrir kosningar. Þá dettur mér nú í hug að ég held að það hafi verið eins með hv. frambjóðendur Sjálfstfl. að þeir hafi ekki sagt það fyrir kosningar að það fyrsta sem þeir vildu gera þegar þeir fengju völdin væri að draga saman fjármagn til samgöngumála og til vegamála. A.m.k. var það þannig með frambjóðanda Sjálfstfl. í Norðurl. e., hv. 2. þm. Norðurl. e. sem nú er orðinn hæstv. samgrh. Hann talaði ekki mikið um það í kosningabaráttunni að það yrði hans fyrsta verk þegar hann hefði fengið völdin að draga saman fjármagn til vegamála. Hann hefur frekar talað í þá átt --- er hæstv. samgrh. kannski þarna í hliðarsal? (Gripið fram í.) Ég heyrði nú ekki hvað hæstv. ráðherra sagði en hann hefur haft uppi stór orð um mikilvægi samgöngumála og þar er ég honum mikið sammála. Hann hafði t.d. mörg stór orð um vegamál í tengslum við umræður um langtímaáætlun hér fyrir aðeins 2 -- 3 mánuðum síðan. Ég minnist sérstaklega orða hans þegar hann talaði um að hann teldi það óhæfu að hugsa sér það að um aldamót yrði ekki búið að leggja bundið slitlag á Bárðardal. Nú hefur þessi hv. þm., núv. hæstv. samgrh., fengið völdin og ég held að það sé ástæða til þess að gleðjast, miðað við öll stóru orðin sem áhugamaður um bættar samgöngur, að þessi hv. þm. hafi nú fengið svo mikil völd.
    Slagorð Sjálfstfl. í kosningabaráttunni var Byggð með byggð, sem á væntanlega að þýða að byggðirnar, sveitarfélögin, geti unnið betur saman. Lykillinn að því eru að sjálfsögðu bættar samgöngur og ég vona að hæstv. samgrh. sé mér þar sammála.
    Það sem ég ætlaði í öðru lagi að gera að umtalsefni hér eru orð hæstv. fjmrh. í sambandi við búvörusamninginn sem hann viðhafði hér fyrr í kvöld þegar hann mælti fyrir skýrslu sinni. Það hefur komið fram að hæstv. ríkisstjórn hefur leitað álits ríkislögmanns á búvörusamningnum og ég spyr hæstv. fjmrh. hvort það álit liggi ekki nú þegar fyrir. Það hafa farið óljósar fregnir af því að það álit liggi nú þegar fyrir þó að hæstv. ráðherrar hafi talað eins og svo sé ekki. Og það sem var nú merkilegast við hans ræðu hvað sneri að búvörusamningnum var það að sennilega hafi alls ekki verið þingmeirihluti fyrir samningnum á vorþingi vegna þess að Alþfl. hafi haft þar ákveðinn fyrirvara og hæstv. utanrrh. skaut þá inn í að Borgfl. hafi einnig haft á honum fyrirvara. Ég vil því spyrja: Hverjir voru þessir fyrirvarar? Eftir þeim upplýsingum sem ég hef voru þeir ekki þannig að þeir hafi sett búvörusamninginn sem slíkan í hættu og eins og ég benti á með frammíkalli þegar hæstv. ráðherra

talaði, þá samþykkti þingið lánsfjárlög sem eru lykill að búvörusamningi hvað snertir fjármagn úr ríkissjóði. Fjmrh. fær sjálfsagt tækifæri til þess að svara öllum þeim spurningum sem bornar hafa verið upp við hann og ég býst við að hann svari þessari spurningu líka.
    Eftir þeim upplýsingum sem ég hef voru fyrirvarar Borgfl. fyrst og fremst þeir að umhvrn. yrði nefnt og við því var orðið. Alþfl., og sjálfsagt getur hæstv. viðskrh. svarað því líka síðar, lagði áherslu á að það yrði ákveðið að 50% sem reiknað er með í beinum greiðslum og upphaflega áttu að vera um það bil yrðu nákvæmlega 50%. Eins voru þeir með fyrirvara er sneri að alþjóðlegum samningum og við því var orðið. Við því var brugðist af hæstv. ríkisstjórn. Þetta eru því algerlega nýjar fréttir ef Alþfl. er nú að reyna að fría sig frá þessum samningi en það mátti helst skilja það á frammíkalli hæstv. utanrrh. hér í kvöld.
    Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Hún er þegar orðin nokkuð löng og næst ekki að ljúka henni hér í kvöld, en ég óska að sjálfsögðu eftir svörum hæstv. ráðherra við þessum spurningum.