Ríkisfjármál 1991
Fimmtudaginn 30. maí 1991


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Skýrsla hæstv. fjmrh. er ekki mikil að vöxtum en ef grannt er skoðað má þó greina hver meginlína hæstv. stjórnar er. Sú lína liggur ekki í þá átt sem við kvennalistakonur kysum.
    Við höfum bent á hættuna sem er fólgin í því að hækka vexti. Það hafa þingkonur Kvennalistans rakið ítarlega í þessari umræðu og mun ég ekki endurtaka það. Ég vil hins vegar bæta því við að þessi vaxtahækkun er mjög brött. Og því hygg ég að hæstv. fjmrh. geri sér grein fyrir. Ég er dálítið undrandi á að hann skuli ekki hafa leitað annarra leiða en að taka slíkt skref, svo stórt sem það er. Ef þessi vaxtahækkun verður til langframa er svo þrengt að fyrirtækjum að lítið svigrúm verður fyrir þau sum hver til launahækkana. Viðskiptakjarabatinn fer fyrir lítið í vexti.
    Um þetta fjallaði ég raunar lítillega í utandagskrárumræðunni nú fyrir skömmu og ítreka það hér. Ég óttast einnig að orðið tímabundin sem finna má um vaxtahækkunina í skýrslu hæstv. fjmrh. geti orðið ansi ótímabundin.
    Öllum eru ljósar þær leiðir sem færar eru til að bæta hag ríkissjóðs, niðurskurð á ríkisútgjöldum, vaxtahækkun, þá leið sem hér er farin til þess að örva sölu á ríkisskuldabréfum og auka hlut ríkisins í innlendum sparnaði og svo sú leið sem þessi hæstv. ríkisstjórn ekki vill fara, en það er að ná inn auknum tekjum með því að skattleggja þá sem geta borgað, þ.e. hátekjufólk og fjármagnseigendur. Flöt skattlagning hlýtur alltaf að leiða til óréttlætis. Tekjuöflun ríkissjóðs virðist ekki eiga að fara eftir því lögmáli að sækja peningana þar sem þeir eru, að kalla þá til ábyrgðar sem mega við því að greiða til samneyslunnar, heldur er frekar farið út í það að íþyngja þeim sem minnst mega sín, eru skuldsettir og eru jafnvel farnir að greiða skatta af smánarlaunum.     Hér er því hreinlega um pólitískan ágreining að ræða og mjög skýr skil á milli þeirra hugmynda sem við kvennalistakonur höfum um réttlæti í samfélaginu og þeirra sem þessar aðgerðir bera vott um. Er það nema sanngjarnt að leita frekar fjár í ríkiskassann hjá þeim sem hafa háar tekjur eða miklar fjármagnstekjur en að greiða þessa sömu flötu skattprósentu og að hátekjufólk þurfi að greiða jafnháa eða lága prósentu, eftir því hvernig á það er litið, og millitekjufólk í stað þess sem gert er núna að seilast til skuldsettra fjölskyldna sem þegar eru að sligast undan vöxtunum? Eða til námsmanna sem samkvæmt þeim niðurskurði sem verið er að boða munu margir hverjir þurfa að hverfa frá námi verði hugmyndir þær sem nú eru uppi ofan á vegna peninganna? Það bitnar auðvitað ekki síst á konum eins og fram hefur komið hér hjá kvennalistakonum fyrr í umræðunni. Eða er það sanngjarnt að vera að seilast til sjúklinga?
    Nú er boðaður niðurskurður á útgjöldum til almannatrygginga. Raunar er það kallað endurmat á bls. 19 í skýrslu hæstv. fjmrh. Þessi niðurskurður er ekki skilgreindur almennilega. Einnig er talað um að eitthvað þurfi að gera í sambandi við heilsugæsluna. Þá

er hætt við að verið sé að hugsa á svipuðum nótum og svo margoft áður. Að finna einhverjar klæðskerasniðnar patentlausnir. --- Ég er alveg fús til að hinkra við ef menn eru uppteknir. Ég vil gjarnan að það sé hlustað á þessa ræðu.
    Ég var að deila á það ef ætti að fara að spara í heilsugæslunni með því að finna einhverjar klæðskerasniðnar patentlausnir eins og sumarlokanir í stað þess að leita t.d. þeirra hugmynda sem starfsfólk við sjúkrahúsin hefur, fólkið sem þekkir hve kostnaðarsamur sparnaður hagræðingarfræðinga oft er. Leita til fólksins sem þekkir oft miklu einfaldari og betri leiðir til sparnaðar án þess að það bitni á starfsfólki eða sjúklingum. Og það eru auðvitað sjúklingarnir fyrst og fremst sem þarf að hugsa um. Ég varpa þessari hugmynd hér fram og vildi óska þess að henni yrði sinnt þó ég sé ekki óskaplega bjartsýn á það.
    Þetta er aðeins eitt af þeim dæmum þar sem hugsað er út frá röngu sjónarhorni. Það er hugsað ofan frá --- og ég verð að segja það að þeir sem hafa komið sér fyrir efst í píramídanum eru ekki alltaf réttsýnir, þeir hafa ekki alltaf það sjónarhorn sem best væri --- í stað þess að hugsa innan frá, hlusta á grasrótina. Ég hef gert mér það að reglu að spyrja starfsfólk sjúkrastofnana sem ég hitti hvort það viti um sparnaðarleiðir á sinni stofnun. Svarið er undantekningarlaust já. Hvort það hafi verið spurt álits. Svarið er undantekningarlítið nei. Hins vegar er því oft bætt við að ráðgjafar og hagræðingarhönnuðir hafi verið á staðnum eins og gráir kettir og tekið bara nokkuð vel fyrir sitt starf án þess að það hafi skilað svo ýkja miklu.
    Vissulega hefur sums staðar náðst sparnaður á sjúkrahúsum en ég bendi á að oft eru farnar rangar leiðir. Lækkun lyfjakostnaðar hefur verið á stefnuskrá flestra stjórna undanfarin ár eða áratugi. Halda menn að nú gangi betur en áður án þess að fara þá leið að íþyngja þeim sem síst skyldi, þ.e. sjúklingunum? Það má ekki gerast. Þar af leiðandi verður að fara út í slíkar aðgerðir af mikilli gát.
    Auk þess er hér verið að spara á stað þar sem í fljótu bragði mætti nú halda að full ástæða væri til. Ég á þar við sparnaðinn við Landsvirkjun. Ég verð að viðurkenna það að fyrst þegar ég heyrði að nú ætti að fara að spara hjá Landsvirkjun hugsaði ég: Eru menn að sjá að sér? Eru þeir kannski hættir við að eyða miklu fé í undirbúning áhættufyrirtækisins álvers og virkjananna sem fylgja? Nei, það var ekki svo vel, síður en svo. Það átti að hækka orkuverð til neytenda en ekki að draga úr áhættusamri fjárfestingu sem hugsanlega nýtist aldrei nema að hluta. Mönnum datt ekki í hug að fara að klípa af þeim 800 milljónum, eða næstum milljarði, sem á að fara í undirbúning stórvirkjana stóriðjunnar.
Ekki verður það a.m.k. lesið út úr skýrslum hæstv. fjmrh. Það er því ekki verið að taka fé þar sem það er haldbært frá fjárfestingu sem verður okkur kannski aldrei arðbær og getur spillt hag okkar, t.d. ef álver rís og ef svo fer, sem við kvennalistakonur óttumst, að það muni eyðileggja ímynd landsins sem lands hreinleika, hreinnar framleiðslu og óspillts ferðamannalands. Þetta kann að reynast okkur dýr baggi. Ef svo fer sem horfir með álverð á heimsmarkaði þá held ég að þessar 800 millj. sem stóð til að eyða til Landsvirkjunar vegna undirbúnings við álver sé sá peningur sem ætti að seilast til, en ekki fara að hugsa um hærra orkuverð.
    Ég vil leyfa mér að benda hæstv. fjmrh. á fyrirsögn í Dagblaðinu í dag. Þar stendur: ,,Hroðalegt útlit í álinu.`` Þar er líka mjög fróðlegt línurit þar sem sést að álverð er stöðugt á niðurleið. Þetta átti að bjarga öllum okkar hagvexti. Með leyfi forseta langar mig líka að lesa örstutta klausu úr þessari grein þar sem stendur: ,,Verð á áli heldur áfram að lækka á heimsmarkaði og hefur verðið ekki verið jafnlágt í meira en fjögur ár eða frá byrjun ársins 1987. Verðið hefur lækkað jafnt og þétt að undanförnu og hafa menn ævinlega vonað að það færi ekki miklu neðar. Verðið lætur hins vegar stöðugt undan.``
    Ég er bara að bjóða upp á og benda mönnum á leiðir sem nær væri að fara en þær leiðir sem þessi skýrsla sem hér er til umræðu bendir á.
    Að lokum vil ég aðeins segja þetta. Þótt ekki sé margt að finna í þessari skýrslu hæstv. fjmrh. er þó þar að finna skýra pólitíska afstöðu, afstöðu sem við kvennalistakonur erum síður en svo sáttar við.