Ríkisfjármál 1991
Fimmtudaginn 30. maí 1991


     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég sé hvergi hæstv. félmrh. í salnum. ( Félmrh.: Ég heyri vel í þingmanninum.) Félmrh. er handan við vegginn þannig að hann heyrir og þá geri ég engar frekari kröfur til forseta um það mál.
    Ég vil fyrst biðja félmrh. velvirðingar á því að vera ekki hér inni undir allri hennar ræðu sem hefði verið sjálfsögð kurteisi. Ég brá mér aðeins frá, reyndar í fyrsta skipti síðan ég settist í þingsalinn, og fór á útifund sem var á Lækjartorgi rétt áðan, einmitt um vaxtamál og húsnæðismál, sem launþegahreyfingin hafði boðað til. Sá fundur var vissulega mjög fróðlegur og þær áherslur sem þar voru settar fram og kröfur til stjórnvalda voru mjög afdráttarlausar. Ég hygg að hæstv. félmrh. hefði haft nokkuð gott af því að vera á þessum fundi og heyra hljóðið í fólki.
    Ég tók t.d. sérstaklega eftir því að einn ræðumanna upplýsti að hæstv. félmrh. hefði gefið það út fyrr í vetur að fólkið í biðröðinni í gamla kerfinu mundi fá lán. Síðan hefði það gerst eftir kosningar að sami félmrh. hefði sest í sama stólinn, en niðurstöðuna þekkjum við. Það er búið að sparka þessari biðröð út á götu og á affallamarkaðinn.
    Það var ýmislegt í því sem ég heyrði úr ræðu hæstv. ráðherra sem mér fannst vera með nokkuð sérstökum hætti. Ég vil segja það í fyrsta lagi að mér þótti dálítið kyndugt að heyra hæstv. félmrh. vera að ýja að því að umræður hér á Alþingi ættu sinn þátt í því að svo væri komið í afföllum sem nú er. Ég gat ekki betur skilið ráðherrann en þannig að hv. þm. sem væru að fjalla um húsbréfakerfið með öðrum hætti en hún kærði sig um væru vísvitandi að hleypa af stað umræðu sem stuðlaði að auknum afföllum. Ég vænti þess að ráðherrann leiðrétti mig hafi ég misskilið orð hennar í þessu efni.
    Ég verð að segja það af því að ég hef fylgst með þessum málum alveg frá því að samið var um gamla húsnæðislánakerfið frá 1986 og einmitt sérstaklega fylgst með þeirri umræðu sem varð hér í þinginu --- ég er tilbúinn til að gera hlé á máli mínu ef ég trufla hæstv. félmrh. (Gripið fram í.) Einhver eru nú afföllin þar.
    Mér er það ákaflega minnisstætt að lesa þær ræður sem hæstv. félmrh. flutti á Alþingi þegar var verið að leggja fram frv. um 1986 - kerfið og hvernig hæstv. ráðherra gekk fram í því máli, bæði innan þings og utan. Ef ástæða væri til að ætla að einstakir menn taki sér það fyrir hendur að koma ákveðnum hlutum illa, þá held ég að hefði verið ástæða til þess að velta því fyrir sér hvort hæstv. núv. félmrh. hefði með gauraganginum í sér á þeim tíma ekki átt nokkurn þátt í því ástandi sem skapaðist í biðröðinni strax og kerfið opnaðist. En ég ætla ekki að bera það á hæstv. félmrh. og vænti þess að hann lýsi því hér yfir á eftir að hann hafi ekki verið með þessar meiningar eins og ég taldi að hann væri með.
    Hæstv. félmrh. kom hér með atriði sem ég verð að leiðrétta. Í sambandi við greiðsluerfiðleikalánin, þær

tölur sem ég nefndi þar, þá var samkvæmt upplýsingum sem ég fékk 27. maí búið að afgreiða 333 umsóknir. Þar að auki var stofnunin búin að afgreiða 108 umsóknir til viðbótar af sinni hálfu, en beðið var eftir svörum lánardrottna, hvort þeir samþykktu að taka við húsbréfunum sem greiðslu. Samtals var stofnunin því búin að afgreiða af sinni hálfu 441 umsókn. ( Félmrh.: Synja hve mörgum?) Hún var búin að synja 101 og það þýðir að það eru 18,6% af því sem stofnunin var búin að afgreiða sem hún hafði synjað. Það er misskilningur hjá hæstv. ráðherra að ég hafi haldið því fram að allir þeir sem sæktu um fengju lán, það kom ekki fram í mínu máli.
    Ég get að mörgu leyti tekið undir það sem kom fram hjá hv. 1. þm. Austurl. og vísað til þess til að stytta mína ræðu. Í grundvallaratriðum er það þannig að þegar menn eru að deila út peningum verður að vera til fé. Menn geta ekki ráðstafað meira fé en til er. Það gildir það sama hvort menn eru að tala um húsbréfakerfi eða 1986 - kerfi. Bæði kerfin eru með þeim hætti, eins og 1986 - kerfið var í upphafi og húsbréfakerfið nú, að þau eru nokkuð opin þannig að nánast hver sem er gat gengið inn í þessi kerfi og sótt sér fé. Það er bara því miður þannig að það er ekki hægt að mínu viti að halda úti almennu húsnæðislánakerfi sem gengur út á það að ávísa meira fé en til er. Það er einföld staðreynd. Markaðurinn og markaðslögmálin bregðast við þessari staðreynd með því að fella þessa pappíra í verði. Hæstv. félmrh. verður bara að horfast í augu við þær staðreyndir að það eru gífurleg afföll af þessum bréfum. Og ráðherrann verður líka að horfast í augu við þá staðreynd að það er ekkert sem bendir til þess að þau afföll muni minnka. Þau munu miklu fremur aukast. Þetta kerfi gengur því miður ekki upp í þeirri mynd sem það er og ég er þeirrar skoðunar að húsbréfakerfið geti ekki verið okkar almenna húsnæðislánakerfi. Hins vegar getur það verið hluti í ákveðinni heild. Þá erum við komnir út í umræðu sem tekur langan tíma og ég ætla ekki að fara inn á að þessu sinni. En ráðherrann verður að viðurkenna að það sem hann sagði hér um húsnæðislánakerfið í upphafi þegar ráðherrann beitti sér fyrir því að fá þetta kerfi lögfest, þær upplýsingar og fullyrðingar sem komu fram hjá hæstv. ráðherra þá hafa ekki staðist. Þær fullyrðingar sem ég rakti í nótt frá ráðherra um það að það yrðu engin afföll í kerfinu hafa ekki staðist. Þær fullyrðingar frá ráðherranum um það að vextir mundu ekki hækka hafa heldur ekki staðist.
    Það er engin bót að því að geta bent á eitthvað annað verra. Slæmt kerfi verður ekki betra þó að maður geti bent á að það hafi verið til afföll áður í öðru formi og jafnvel í öðrum pappírum, það breytir því ekki. Hins vegar get ég ýmislegt sagt um það ástand sem var áður og ég tel nú að ráðherra gangi nokkuð langt í að draga upp dökka mynd af því sem var áður en húsbréfakerfið kom. Ég er ekki að segja að 1986 - kerfið hafi verið gott. Það var það ekki að mínu viti. Það var of opið og of auðveldur aðgangur að fé fyrir of marga. Hins vegar get ég ekki tekið

undir þær árásir hennar á það kerfi sem stöðugt hafa verið í gangi undanfarin ár. Og menn mega varast, eins og kom fram hjá hv. 1. þm. Austurl., að draga upp of dökka mynd af öðru en fegra myndina um of af hinu. Við komumst ekki að neinni viðunandi niðurstöðu með þeim hætti því auðvitað er okkar verkefni það að reyna að komast að einhverri niðurstöðu með húsnæðislánakerfi sem gagnast því fólki sem kerfið er fyrir. Og það er hvorki fyrir mig né hæstv. félmrh. Það er fyrir fólkið. Við verðum að horfa á staðreyndirnar alveg kalt og bregðast við samkvæmt því.
    Sú ályktun sem gerð var á útifundinum sem ég var að nefna áðan bendir ekki til þess að sjónarmið hæstv. félmrh. eigi mikinn stuðning.