Þingsköp Alþingis
Fimmtudaginn 30. maí 1991


     Halldór Ásgrímsson :
    Herra forseti. Frsm. nefndarinar, hv. þm. Björn Bjarnason, hefur gert grein fyrir því nál. sem allir nefndarmenn rita undir og hef ég í sjálfu sér engu við það að bæta. Þótt margt megi segja um þetta mál þá höfum við rætt það svo ítarlega að ég ætla ekki að nota þennan tíma til að lengja þá umræðu.
    Ég vildi aðeins gera grein fyrir því að ástæðan fyrir því að ég rita undir þetta nál. með fyrirvara er einfaldlega sú að það var staðið að þessu máli með þeim hætti að gengið var til verksins þannig að ná ætti samstöðu milli allra þingflokka hér á Alþingi um þetta mikilvæga mál. Síðan gerist það skyndilega, eftir að málið hafði verið útrætt í nefnd í Nd., að fulltrúar stjórnarflokkanna koma sér saman um breytingu að því er varðar fjvn. án samráðs við aðra.
    Það er að sjálfsögðu rétt hjá hv. þm. Birni Bjarnasyni að meiri hluti á Alþingi á hverjum tíma getur að sjálfsögðu gert þær breytingar sem hann telur æskilegar og varða samkomulag á milli flokka. Það viðurkennum við að sjálfsögðu sem störfum í stjórnarandstöðu. Það er hins vegar mjög sjaldgæft að stofnað sé til mála með þeim hætti sem gildir um þetta mál og það verður að halda það í heiðri ef gott samstarf á að takast. Þetta hefur í sjálfu sér verið viðurkennt af öllum nefndarmönnum og verður því að líta svo á að hér hafi verið um mistök að ræða. Með þessu erum við á engan hátt að halda því fram að við höfum ekki verið tilbúnir til samkomulags um þetta mál í Framsfl. ef mikill meiri hluti hefði viljað þessa breytingu. Það má segja að á það hafi ekkert reynt. Við verðum að sjálfsögðu í starfi sem þessu að sætta okkur við breytingar sem mikill meiri hluti þingsins vill gera.
    Þetta er orðinn hlutur en að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að ræða þetta mál meira. Við höfum gert það nægilega. Ég er að öllu öðru leyti ánægður með það samstarf sem hefur átt sér stað í þessu máli. Það var bæði lærdómsríkt og gagnlegt og ágæt samstaða ríkti meðal nefndarmanna í þeirri vinnu sem þarna fór fram.
    Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar, virðulegi forseti, en vildi aðeins gera grein fyrir ástæðu þess að ég undirritaði þetta nál. með fyrirvara.