Kristín Einarsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir að vekja máls á þessu og ég tek undir það að við þurfum að fá skýr svör í þessu máli.
Í upphafi samningaviðræðna EB og EFTA var lögð á það rík áhersla að grundvallarforsenda af hálfu Íslands og reyndar allra EFTA - ríkjanna var að samið yrði um fríverslun með fisk. Í nóvember 1990 var fallið frá því. Reyndar var einnig fallið frá flestum öðrum fyrirvörum EFTA - ríkjanna sem settir höfðu verið í upphafi. Þá var hopað í þá stöðu að krefjast tollfrjáls aðgangs að mörkuðum EB fyrir sjávarfurðir. Aðrir þættir samningsins hafa allan tímann varla verið nefndir. Það er fyrst nú sem farið er að renna upp fyrir almenningi að í viðræðunum um EES er ekki verið að semja um fisk, heldur fyrst og fremst um fjórfrelsið svonefnda. Það sem lagt var upp með í upphafi sem meginmál er fokið út í veður og vind.
Nú berast af því fréttir að EFTA sé að hlaupa frá því að styðja Íslendinga á sjávarútvegssviðinu og að vísa eigi þeim málum í tvíhliða viðræður Norðmanna og Íslendinga. Það hefur jafnvel heyrst að komið gæti til greina að samið verði um EES án þess að ljóst verði hvort Íslendingar fái að flytja tollfrjálst inn á markaði EB og það verði hluti af heildarsamningi. Þetta eru að vísu mjög óljósar fréttir og vona ég að þær séu ekki á rökum reistar.
Við kvennalistakonur höfum frá upphafi bent á að í stað samninga um EES hefði verið rétt að taka strax upp tvíhliða viðræður við EB um viðskiptamál og fara fram á endurbætur á gildandi samningi við bandalagið. Við viljum halda áfram þeirri góðu samvinnu sem við höfum haft við EB á ýmsum sviðum, en án þess að gerast aðilar að Evrópubandalaginu eða taka stórt skref þar inn eins og verið er að gera með aðild að Evrópsku efnahagssvæði.