Málefni EES
Föstudaginn 31. maí 1991


     Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til að greina þingheimi frá því að í gær var utanrmn. að störfum eftir því sem tími leyfði að ræða þessi mikilvægustu málefni okkar um þessar mundir og verður í dag á þeim fundum sem haldnir verða á milli þingfunda. Aðalsamningamaður okkar er einmitt hér nú og mun verða á fundum með nefndinni að sjálfsögðu. Allir vita að þrír ráðherrar fara til Noregs á morgun. Málin eru sem sagt í deiglunni. Meginatriðið er það að enginn hefur léð máls á því að leyfa Evrópubandalagsþjóðum neinar veiðiheimildir innan okkar landhelgi. Hitt stendur líka alveg fast að við krefjumst tollfrelsis fyrir okkar afurðir.
    Ég held að við Íslendingar höfum náð saman um þetta sjónarmið og meðan við erum að vinna sameiginlega að því að ná þessu fram, þá held ég að það sé ástæðulaust að hafa miklar umræður hér í þinginu, enda er það nú væntanlega að fara heim.
Utanrmn. mun að sjálfsögðu starfa eins og þörf krefur.
    Aðalatriðið er að við erum sameinuð um þessar meginkröfur okkar og getum þess vegna gjarnan gleymt fortíðinni og því sem við höfum verið að rífast um. Von mín er a.m.k. sú að við getum sameinast um að ná þessum kröfum.