Málefni EES
Föstudaginn 31. maí 1991


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
     Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni vil ég taka það alveg skýrt fram að viðræðufundur sá sem fram fer í Ósló á morgun að beiðni norska forsætisráðherrans er alls ekki samningafundur af einu eða neinu tagi heldur samráðsfundur. Hann er haldinn að ósk norska forsætisráðherrans og samkvæmt samkomulagi forsætisráðherra beggja landanna.