Málefni EES
Föstudaginn 31. maí 1991


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Nú hefur þessi umræða staðið í hálftíma og fulltrúar allra þingflokka hafa fengið tækifæri til þess að tala tvisvar svo forseti getur ekki haldið umræðunni áfram. --- Hv. 8. þm. Reykn. hafði beðið um orðið, en eins og forseti sagði, þá treystir hann sér ekki til þess að hefja annan umgang í umræðu en nú ætlar hv. þm. að tala um þingsköp.