Búvörusamningur
Föstudaginn 31. maí 1991


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þá hefst önnur utandagskrárumræða um búvörusamninginn að beiðni hv. 4. þm. Norðurl. e. Sú umræða fer fram eftir samkomulagi um tíma. Það er ekki hálftímareglan, heldur hefur orðið samkomulag um að hún megi standa í eina klukkustund.
    Forseti vill leyfa sér að leggja það til að hún verði þá með þeim hætti að menn tvöfaldi þann ræðutíma sem nota má undir hálftímareglunni, þ.e. málshefjandi megi þá tala tvisvar sinnum í sex mínútur í staðinn fyrir tvisvar sinnum þrjár og ráðherra og aðrir þingmenn sem taka til máls tali þá tvisvar sinnum í fjórar mínútur eða allt að því í staðinn fyrir tvisvar sinnum tvær. Forseti beinir því nú til þingheims að þessar tillögur verði teknar til greina og tíminn verði virtur.