Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Það hlýtur að vekja nokkra athygli þegar um er að ræða eins brýnt hagsmunamál og hér er fjallað um hver svör hæstv. landbrh. voru nú áðan. Í stuttu máli sagt svaraði hann engu af því sem til hans var beint. Ég vil vekja athygli á því að sá búvörusamningur sem gerður var í tíð fyrrv. ríkisstjórnar er skilgetið afkvæmi þeirrar þjóðarsáttar sem gerð var fyrir rúmu ári síðan. Hann er ávöxtur þeirrar vinnu sem bændasamtökin og samtök atvinnulífsins lögðu í þetta mál og ríkisstjórnin, í þessu sem öðru, fór að eins og formaður Vinnuveitendasambandsins lýsti svo greinilega fyrir hálfum mánuði. Ríkisstjórnin stóð síðan í einu og öllu við sitt til að þessi hluti þjóðarsáttarinnar mætti fram ganga. Og það er kannski í stíl við annað hjá núv. ríkisstjórn að hún telur sig ekki vera bundna af því frekar en öðrum gerðum sinna forvera.
Í þessum samningi er það algjört lykilatriði að staðið verði við stuðningsaðgerðirnar. Það er þess vegna útúrsnúningur hjá hæstv. landbrh. þegar hann vitnar í eina tiltekna bókun en ekki í stuðningsaðgerðirnar, en þar er tiltekið nákvæmlega og meira að segja upp á ár hvað á að leggja fram. Um það er spurt hvort við það verði staðið með tilvísun til orða hæstv. forsrh. sem taldi í umræðu í fyrradag að það væri þjóðhagslega hagkvæmt að hverfa frá því.
Ég ætla aðeins að snúa mér að lögfræðilegri hlið þessa máls. Ég spyr hæstv. forsrh.: Hvers vegna er álitsgerð ríkislögmanns ekki birt? Hún hlýtur að vera grundvallaratriði í þessu máli. Er það kannski vegna þess að lögfræðileg skoðun á þessu máli mundi leiða í ljós að fjmrh. sé stjórnskipulega skylt að leggja til við gerð fjárlaga að staðið verði við þennan samning? Er það kannski vegna þess að það er einungis Alþingi sem getur með sínu fjárlagavaldi breytt nokkru þar um? Er það vegna þess að þetta sé í raun stjórnskipuleg skylda fjmrh. í dag? Er það kannski líka vegna þess að lögfræðileg álitsgerð og vinna mundi leiða í ljós að það að Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust lánsfjárlögin, sem við komu búvörusamningnum, þýðir það í raun að Alþingi sé búið að taka á sig þær skyldur að breyta lögum á annan hátt sem þarf til þess að standa við samninginn? Skyldi lögfræðileg úttekt leiða þetta í ljós með vísun til þeirra orða hæstv. forsrh. í umræðu hér áður að það eigi eftir að gera þarna lagabreytingar og það sé óvíst hvernig það fari? Skyldi það líka vera vegna þess að lögfræðileg álitsgerð mundi leiða það í ljós að ekki hafi komið fram þeir fyrirvarar af hálfu stjórnarflokkanna að þeir séu til þess fallnir að þurfa að taka málið upp hér á ný?
Virðulegur forseti. Ég ætla að ljúka máli mínu með því að vísa til þess að ég treysti því að hæstv. sjútvrh. og landbrh. hafi það jarðsamband umfram aðra ráðherra þessarar ríkisstjórnar að þeir sjái til þess að þessum samningi verði framfylgt.