Búvörusamningur
Föstudaginn 31. maí 1991


     Gunnlaugur Stefánsson :
    Virðulegi forseti. Það væri sannarlega ástæða til þess að taka búvörusamninginn til gagngerðrar umræðu og endurskoðunar. Fyrrv. landbrh. leggur áherslu á að hann verði í gildi. Um hvað er þessi búvörusamningur? Það er ástæða til þess að fara að spyrja að því vegna þess að afleiðingarnar af þessum samningi fara að birtast þjóðinni í haust þegar við sjáum 55 þús. kindum slátrað. Þessar kindur verða urðaðar og það er ekki þessari þjóð til sóma.
    Spurningin er sú hvort ekki hefði mátt og átt að standa að þessu máli á lengri tíma, gefa því lengri aðlögun. Þetta snertir búsetuna í landinu og þegar er verið að fjalla um viðkvæma búsetu þurfum við að fara okkur hægt. Ég á erfitt með að skilja það að fyrrv. landbrh. skuli vera stoltur af þessum samningi. Hver veit um það hver áhrif hann kann að hafa á viðkvæmar sveitir landsins? Ef fyrrv. ríkisstjórn hefur lagt af mörkum skerf til þess að efla frjálshyggjuna í landinu þá er það með þessum samningi, að setja framleiðsluréttinn í landbúnaði á markaðstorg frjálshyggjunnar með jafnskyndilegum hætti og raun ber vitni með því að leyfa frjálsa sölu, þá er það þessi samningur sem vitnar um slíkt. Það er enn eitt skrefið til viðbótar við þá frjálshyggju sem ríkir í sjávarútvegsmálum og er enn eitt verk fyrrv. ríkisstjórnar á grundvelli frjálshyggjunnar. Ætluðum við að mynda vinstri stjórn um slíka stefnumótun, á grundvelli frjálshyggju og grundvelli markaðstorgs hennar? Ég vona ekki. Það væri þess vegna sannarlega ástæða til þess að milda þennan búvörusamning, taka hann til endurskoðunar, en það er of seint vegna þess hvernig að þessu máli var staðið.
    Vita þingmenn það að þessi samningur er ekki til á þingskjali? Jafnmikilvægt og viðkvæmt mál hefur ekki komið til umræðu í þinginu á grundvelli þingskjals. Verður staðið að öðrum slíkum mikilvægum samningum með þeim hætti í framtíðinni? Það vona ég ekki. Þar vona ég að hæstv. forsrh. hafi forustu um að staðið verði öðruvísi að samningsgerð en fyrrv. landbrh. gerði hvað þetta mál varðar.
    Já, það má víða koma við í sambandi við þennan samning. En eitt til viðbótar. Þetta er líka samningur um kjaraskerðingu, einhliða 2% kjaraskerðingu í haust og 4% kjaraskerðingu aftur 1992. Og þetta er líka samningur um flata skerðingu, einhliða flata skerðingu og það veit enginn bóndi hve stór og mikil sú skerðing verður í haust. Það kemur ekki í ljós fyrr en vitað er hver hin frjálsu framlög af fullvirðisrétti verða.
    Frú forseti. Það er ástæða til þess að endurskoða þennan samning, en hann er kominn nú þegar til framkvæmda. Ég vona af einlægni að hann leggi ekki heilu byggðarlögin í rúst, en það er hætta á því að ein sveit af annarri verði illa leikin eftir þennan samning. En alvarlegast er að við vitum ekki hvaða sveit það verður. Við vitum ekki hvernig þessi samningur kemur til með að virka þegar upp verður staðið. Það er vont að gera samning sem slík óvissa felst í sem

snertir lífskjör jafnmargra og raun ber vitni.