Steingrímur J. Sigfússon :
Hæstv. forseti. Ég þakka svörin, þau sem þó komu. En það verð ég að segja að ég hélt að hæstv. ráðherrar réðu við það að svara jafnskýrum og einföldum spurningum og ég bar upp með svolítið greinarbetri hætti. Ég undanskil þó hæstv. fjmrh. sem svaraði alveg skýrt og þakka ég honum fyrir það.
Það eru engin tíðindi, hæstv. landbrh., að það er nokkur munur á annars vegar ákvæðum bókana samningsins og hins vegar samningshlutunum sjálfum. Það hélt ég að lægi í hlutarins eðli og þyrfti ekki að rökræða um. Ástæðan fyrir því að spurt er um stuðningsaðgerðakafla búvörusamningsins, þ.e. viðauka II, er einfaldlega sú að hæstv. ráðherrar hafa nefnt atriði út úr þeim hluta samningsins sem til greina komi að kippa til baka, endurskoða eða fresta, þ.e. framlög til Framleiðnisjóðs, Byggðastofnunar, Lífeyrissjóðs bænda og Jarðasjóðs. Menn hafa vitnað beint inn í þann hluta samningsins og gefið tilefni til efasemda, því miður, um að við þann hluta samningsins eigi að standa. Og svar hæstv. landbrh. nú var miklu lakara mörgum sem hann hefur áður gefið vegna þess að hann í raun og veru svaraði með því að lesa upp úr markmiðskafla samningsins og síðan ræða um eina tiltekna bókun. Spurning mín til hæstv. landbrh. var einföld og skýr. Þegar landbrh. talar um að virða samninginn, er hann þá ekki að tala um samninginn allan? Vonandi getur hæstv. ráðherra komið hér upp og svarað játandi.
Ég þakka hæstv. fjmrh., hann verður ekki misskilinn. Hann svaraði skýrt. Hann lítur á það sem embættisskyldu sína að fullnusta samninginn, að framkvæma hann og undirbúa þar með lagabreytingar ítem tillögur um fjárveitingar til að standa við ákvæði samningsins. Hæstv. fjmrh. svaraði þar alveg skýrt.
Við hv. þm. Kvennalistans hlýt ég að segja, eins og reyndar talsmann Kvennalistans hér í gær í umræðum, en að þessu sinni var það 18. þm. Reykv.: Þær þurfa að lesa þau ákvæði samningsins sem lúta að gróðurvernd og landnýtingu, hlutverki Landgræðslunnar t.d. eins og það er byggt inn í samninginn. Í markmiðskafla samningsins er gróðurvernd upp talin þannig að á mörgum stöðum eru landnýtingar - og gróðurverndarsjónarmið fléttuð inn í samninginn beinlínis auk þess sem þau hljóta að vera hluti af framkvæmd hans.
Hæstv. forsrh. gaf að mínu mati merkustu yfirlýsingu þessarar umræðu til þessa af sinni hendi, þ.e. að hann styðji hæstv. landbrh. Hæstv. forsrh. lofaði því hér að styðja hæstv. landbrh. Það hlýtur auðvitað að vera nokkuð mikilvægt innlegg í þessa umræðu og ég leyfi mér þar með að túlka það svo að hæstv. forsrh. sé í raun og veru fallinn frá fyrri vangaveltum og hugmyndum um endurskoðun samningsins, vegna þess að það er ljóst að hæstv. landbrh. er ekki á þeim buxum, og hann hafi lofað að styðja landbrh. til góðra verka í þessu sambandi og þurfi þá ekki frekar vitnanna við.
Vegna þess að hæstv. forsrh. notaði síðan tíma til
þess að rifja það upp að ýmsir frambjóðendur í alþingiskosningunum síðustu voru með athugasemdir við búvörusamninginn, þá er það rétt. En í hvaða átt gengu þær athugasemdir, hæstv. forsrh.? Ég man ekki eftir einum einasta manni sem var með umræður um búvörusamninginn fyrir kosningar nema þá þær gengju í átt til þess að vera betri við bændur, að gera betur við landbúnaðinn, ekki rjúfa samninginn hinum megin frá eins og hæstv. ríkisstjórn er núna að tala um. Í þessum hópi var hæstv. forsrh. sem í sjónvarpinu taldi þennan samning fullharkalegan í garð bænda. Það væri hætta á því að komið gæti til flats niðurskurðar. Og ef hæstv. forsrh. er sjálfum sér samkvæmur, þá hlýtur það að liggja í hlutarins eðli að ekki komi til greina að hrófla við samningnum bændum til óhagræðis. Það hlýtur þá að vera í hina áttina. Og þannig var það sem þeir töluðu ýmsir hv. þm., Pálmi Jónsson, Egill Jónsson, borgarstjórinn í Reykjavík sem þá var í framboði. Síðan er það þannig að talsmaður Alþfl. í þessum umræðum er á sömu skoðun. Öll hans ræða gekk út á það hér, eina talsmanns Alþfl. í umræðunum, að þessi samningur væri fullóhagstæður bændum og það þyrfti að gera betur við bændur og sveitirnar. Ekki stendur á mér, hv. þm. Það er alveg á hreinu.
Og þá er komið að því að lokum ( Gripið fram í: Það er gott að breyta um skoðun.) af því að hæstv. utanrrh. er hér í hliðarsölum og hann þykist góður fyrir sinn hatt, eins og sagt var hér áður, hæstv. utanrrh., og merkir samkvæmt orðabókum að vera rogginn með sig, að vera góður fyrir sinn hatt, en því miður er það einu sinni enn þannig að það er hæstv. utanrrh. sem hefur verið að fullu og öllu ómerktur hér í umræðunni. Ég held að niðurstaða þessarar umræðu sé sú að ríkisstjórnin komi til með að standa við búvörusamninginn, af því að forsrh. hefur lýst yfir stuðningi við landbrh., og upp er risinn talsmaður Alþfl. í landbúnaðarmálum sem vill, ef eitthvað er, gera betur við bændur. Og hann er eini talsmaður Alþfl. í þessari umræðu. Ég tek þess vegna fullt mark á því að það sé afstaða Alþfl. sem hér er fram borin af talsmanni hans, að að sjálfsögðu beri að fullu og öllu að standa við samninginn og þau ákvæði hans sem eru bændum til hagsbóta og ef einhverjar breytingar komi til, þá hljóti þær að vera í þá átt að gera betur við bændur.