Kosning nefndar um erlenda fjárfestingu
Föstudaginn 31. maí 1991


     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég vil nota þetta tækifæri fyrir hönd okkar þingmanna til að þakka hæstv. forseta fyrir réttláta og lipra fundarstjórn á þessu stutta en nokkuð annasama þingi. Ég vil jafnframt þakka skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis fyrir vel unnin störf og ég vil biðja þingmenn að árétta þessar þakkir mínar með því að rísa úr sæti. --- [Þingmenn risu úr sætum.]