Forseti (Matthías Bjarnason) :
Nú er störfum deildarinnar lokið á þessu þingi og þetta er jafnframt síðasti fundur neðri deildar Alþingis. Það eru vissulega merk tímamót. Nú verður sú breyting á að hér í þessum sal mun framvegis Alþingi allt starfa þegar hin nýsamþykktu stjórnarskipunarlög hafa gekið gildi. Þess er vænst að fyrsti fundur Alþingis samkvæmt hinu nýja skipulagi verði haldinn síðdegis í dag.
Neðri deild Alþingis hefur starfað síðan 1875 eða í 116 ár. Hér í deildinni var frá upphafi vettvangur hinna þjóðkjörnu þingmanna og hér hafa aldrei setið aðrir þingmenn en þeir sem hafa haft umboð til þess frá kjósendum. Jafnframt hafa setið hér tveir þriðju allra þingmanna og það segir sig sjálft að í neðri deild hafa auk löggjafarstarfsins farið fram meginátök stjórnmálanna í landinu. Einkum var það þó á fyrri hluta starfstíma deildarinnar, áður en hin almenna stjórnmálaumræða færðist yfir í sameinað þing. Í deildinni hafa jafnan átt sæti forustumenn íslenskra stjórnmála og hinir merkustu þingskörungar gegnt hér forsetastörfum fyrr á tímum. Ber þar auðvitað fyrstan að nefna Jón Sigurðsson sem kosinn var fyrsti forseti deildarinnar 1875. Síðan hafa 27 menn gegnt forsetastörfum í deildinni.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri við þessi tímamót. Vafalaust mun starf deildarinnar verða mikið rannsóknarefni fræðimanna síðar meir. Ég vil nú við starfslok deildarinnar þakka ykkur, hv. þingdeildarmenn, fyrir samstarfið á þessu stutta þingi. Ég þakka skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis öllu fyrir aðstoð og ánægjulegt samstarf þennan stutta tíma sem ég hef gegnt hér forsetastörfum. Jafnframt færi ég varaforsetum og skrifurum deildarinnar þakkir fyrir þeirra störf og góða aðstoð. Ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og ykkur öllum allra heilla í störfum sem fram undan eru.