Þingfrestun
Föstudaginn 31. maí 1991


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Nú er störfum þessa fundar að ljúka. Ég vil við þetta tækifæri þakka öllum þeim sem hafa lagt fram mikla vinnu við að koma hinni nýju skipan Alþingis á. Þar má nefna bæði þingflokksformenn, þingnefndir sem störfuðu í báðum deildum, ásamt og ekki síst starfsmönnum Alþingis. Ég óska þingmönnum og öllu starfsfólki gleðilegs sumars og vænti þess að við hittumst öll ekki síðar en við upphaf nýs þings í haust.