Þingfrestun
Föstudaginn 31. maí 1991


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 114. löggjafarþings, frá 31. maí 1991 og standi sú frestun til septemberloka nema kveðja þurfi Alþingi saman skv. síðari mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Gjört í Reykjavík, 31. maí 1991.

Vigdís Finnbogadóttir.


_____________
Davíð Oddsson.

    Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum þessa Alþingis, 114. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum allra heilla.