Framhald umræðna um skýrslu Byggðastofnunar

61. fundur
Þriðjudaginn 07. janúar 1992, kl. 13:42:00 (2521)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill upplýsa hv. 2. þm. Vestf. um að það er einmitt verið að vinna að því að endurskoða starfsáætlun þingsins eins og gera á um þetta leyti og verður fjallað um það á fundum með formönnum þingflokka þegar sú endurskoðun starfsáætlunar liggur fyrir sem verður væntanlega í þessari viku. Forseti minnist þess að hafa einmitt getið sérstaklega um

það á fyrsta fundi í gær og væntir þess að þetta séu nægar upplýsingar fyrir hv. þm. á þessu stigi málsins.