Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Það er rétt sem hv. 1. þm. Austurl. nefndi að hann hafði óskað eftir að þessir tveir hæstv. ráðherrar yrðu viðstaddir og boðum var komið til þeirra. Hæstv. utanrrh. hafði verið hér í húsinu í dag og hæstv. forsrh. gerði ráð fyrir að koma á fundinn klukkan hálffimm svo að forseti væntir þess að beiðnir hv. 1. þm. Austurl. verði uppfylltar og þessir hæstv. ráðherrar verði hér innan tíðar.