Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Forseti vill tilkynna við upphaf fundarins að um kl. 3.30 hefst umræða utan dagskrár um afstöðu ríkisstjórnarinnar til samninga um sölu á saltsíld til Rússlands. Umræðan er að beiðni hv. 4. þm. Austurl. Hjörleifs Guttormssonar og mun fara fram samkvæmt fyrri mgr. 50. gr. þingskapa og stendur því í hálftíma.