Lánsfjárlög 1992

66. fundur
Þriðjudaginn 14. janúar 1992, kl. 19:02:00 (2720)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Það gegnir sama máli með útvarp og síma. Forseti hefur hvorki verið beðinn leyfis eða leyft notkun slíks hér í þingsal. ( Gripið fram í: En hvað um sjónvarp?) Og enn þá síður um sjónvarp.
    Ég held að það sé ástæðulaust að ræða um þessi atriði vegna þess að það hlýtur að vera á valdi hvers hv. þm. hvað hann finnur sig í að gera þegar hann situr á þingfundum. Mestu máli skiptir að það trufli ekki aðra þingmenn, þá sem sitja hér í salnum hverju sinni.