Sala Skipaútgerðar ríkisins og þjónusta við landsbyggðina

67. fundur
Miðvikudaginn 15. janúar 1992, kl. 18:30:00 (2757)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
     Hæstv. forseti. Eins og hér hefur raunar komið fram er allt of stuttur tími til að ræða þessi mál undir þessum kringumstæðum. Ég tel nauðsynlegt að fá ítarlegri umræðu um málið. Ég vil geta þess sérstaklega að ég hef látið útbúa lítinn skjalabunka um helstu málin. Hann er núna í hólfum allra hv. þm. Þar segir miklu meira en ég get sagt hér í stuttu máli og margt annað en hæstv. ráðherra var að segja hér áðan.