Upplýsingar ráðherra um sölu Skipaútgerðar ríkisins

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 11:11:00 (2773)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti mun ræða við form. samgn. og kynna sér hvað hann hefur fyrirhugað í þessu máli og um þessa ósk hv. þm. um að nefndin verði kölluð saman. Jafnframt vill forseti benda á að hæstv. samgrh. er samkvæmt töflu í borði forseta ekki kominn í húsið og þess vegna er ekki hægt að ræða við hann á þessu stigi málsins.