Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en hæstv. samgrh. veitir svar við andsvari vill forseti benda á að það hefur margsinnis verið kallað eftir viðbrögðum hæstv. samgrh., efnislega, um það sem hann var að fjalla um í ræðu sinni. Þess vegna gat forseti ekki gert athugasemdir við ræðu hans með tilliti til þess að þetta er það sem þingmenn hafa viljað fá svör við og sem reyndar kom fram í andsvari hv. þm. nú. ( GHelg: Frú forseti. Ég spurði: Sagði ráðherrann satt eða ósatt í gær? Já eða nei.) Það er ekki forseta að meta slíkt, það verður að koma fram annars staðar.