Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 15:06:00 (2786)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Geir Gunnarsson, sem við mörg þekkjum af góðu einu, sagði mér að hann vissi ekkert um þetta bréf og hefði ekki fengið það í hendur. Hann hafði ekki hugmynd um hvað þar var að gerast. Ég veit að allir þeir sem þekkja Geir Gunnarsson eru sammála mér um það að grandvarari maður finnst varla og hann segir ekki ósatt. Ég er kannski ekkert voðalega grandvar en ég er ekki þekktur fyrir að segja ósatt og ég stend við allt sem ég hef sagt.