Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti mun leita leiða til þess að þingmenn fái tækifæri til að ræða þetta mál undir öðrum dagskrárlið en um gæslu þingskapa og vill þess vegna taka undir þá beiðni hv. 5. þm. Vestf. sem kom hér fram. Forseta finnst það jafnvel vera leið til þess að koma í veg fyrir að þingmenn þurfi að nýta sér þennan rétt til að ræða um gæslu þingskapa en tala svo efnislega um mál.