Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 15:52:00 (2798)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill beina því til hv. þingmanna að taka það til greina sem forseti hefur þegar sagt og er tilbúinn að beita sér fyrir því að hv. þingmenn fái tækifæri til þess að ræða þetta mál undir öðrum dagskrárlið en um gæslu þingskapa. Ef hv. þingmenn ætla að halda áfram að tala um gæslu þingskapa væntir forseti þess að þetta mál verði ekki til umræðu, heldur gæsla þingskapa.