Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 13:26:00 (2958)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Nú verða hv. þm. að bíða með að bera af sér sakir þangað til atkvæðagreiðslu er lokið. Þingskapaumræða getur ekki farið fram í miðri atkvæðagreiðslu. (Gripið fram í.) Það er afar óheppilegt ef ekki er hægt að halda viðstöðulaust áfram með atkvæðagreiðslu. Hv. 9. þm. Reykv. óskar eftir að gera athugasemdir um atkvæðagreiðslu og tekur til máls.