Lánsfjárlög 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 15:51:00 (2990)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
     Herra forseti. Ég undirstrika að fréttin í Dagblaðinu er vissulega ekki með sömu tölum og Seðlabankans. Ég ætla ekki að fullyrða hér og nú hvort Seðlabankinn fer með rétt mál eða hvort þær upplýsingar sem hér eru eru rangar. Hæstv. fjmrh. má gera það. En að verið sé að rétta einhvern viðskiptahalla af með því að fara í 15 milljarða halla er náttúrlega draumsýn. Auðvitað hlýtur hæstv. fjmrh. að vera ljóst að verið er að sigla með ævintýralegum hraða inn í meiri skuldasöfnun vegna þess að menn skrá gengi íslensku krónunnar rangt. Menn falsa gengi krónunnar. Menn halda því uppi með handafli.