Anna Ólafsdóttir Björnsson
(andsvar)
:
Ég hef raunar beðið um orðið og mun þá fá tækifæri til þess að útskýra í smáatriðum fyrir hv. 17. þm. Reykv. sjávarútvegsstefnu Kvennalistans þar sem hann skilur hana ekki. Ástæðan fyrir því að ég kem hér í andsvar er einfaldlega sú að mér þykir mjög undarlegt að hann skuli koma hér upp í ræðustól til þess að hreykja sér af því að hann skilji betur stefnu ákveðins flokks en aðrir. Það er alrangt eins og mun koma fram í ítarlegri ræðu minni hér á eftir. Ég treysti mér mjög vel til að hrekja það. Hann hefur raunar verið að dylgja í frammíköllum, sem ekki er hægt að svara í andsvari, um eitthvað í þessa veru en ég hélt nú satt að segja að hann væri búinn að uppgötva það að þarna fer hann með reginfirru.