Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 20:57:00 (3038)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
     Forseti vill ítreka það sem fyrr var sagt að það var gert ráð fyrir því að umræðunni lyki og ekki væri gert hlé. Einungis tveir eru á mælendaskrá þannig að forseti hafði vonast til þess að hægt væri að ljúka umræðunni og e.t.v. hægt að semja um það að hv. 4. þm. Norðurl. e. komist svo snemma á mælendaskrá að ekki raski þeim áformum sem hann hefur uppi um þátttöku í sjónvarpsþætti.