Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 23:07:00 (3047)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Mig langaði til að þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir ýmsar góðar upplýsingar sem fram komu í hans máli og raunar þeim ræðumönnum sem hafa tekið þátt í málefnalegri og upplýsandi umræðu. Ég held að þessi umræða hafi að mörgu leyti verið þörf en ég harma niðurstöðurnar.
    Aðeins eitt vil ég þó að hér komi fram sem mín athugasemd og það er að víst eru mér kunnar skoðanir hv. ræðumanns, enda komu þær skýrt fram í hans ræðu. Hann hefur mikinn skilning á, þó að hann sé ekki alveg sammála sjávarútvegsstefnu Kvennalistans. Ég geri nokkurn greinarmun á því hvort veiðiheimildir eru í eigu fiskvinnslufyrirtækja --- vegna þess að oft eru sömu eigendur að útgerðarfyrirtækjum og fiskvinnslufyrirtækjum, þetta eru sömu fyrirtækin --- og því að vera með markvissan byggðakvóta. Ég ætlast ekki til þess að allir séu sammála mér um að byggðakvóti sé heppilegri en sá kvóti sem við höfum heldur að það sé skýrt að hér er ekki um nákvæmlega það sama að ræða. Það sýnir hins vegar afskaplega vel hversu nátengt þetta er. Spurningin er bara: Er það gert í anda byggðastefnu Kvennalistans eða er það eins og nú er að þarna hefur vissulega rekstrargrundvöllur útgerðarinnar fyrst og fremst stýrt málum? Ég er sammála mörgu því sem fram kom hjá hv. ræðumanni.