Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 10:22:00 (3053)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill beina því til hv. viðstaddra þm. að ef þeir ætla ekki að taka þátt í atkvæðagreiðslu þurfa þeir að ýta á hnapp til þess að koma í veg fyrir að þeir verði skráðir sem fjarstaddir. Það er skylda viðstaddra þingmanna að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.