Kristín Einarsdóttir
:
Virðulegur forseti. Mér þóttu mjög merkilegar yfirlýsingar hæstv. utanrrh. að þetta hefðu verið hans persónulegu skoðanir. Ekki veit ég hvernig við áttum að ráða af þeim viðtölum sem hann átti við blaðamenn að hann væri þarna að tala í eigin persónu en ekki sem utanrrh. Íslands. Þá fer að verða vandi að ráða í það sem hæstv. ráðherra segir, að því er ég hélt, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, ekki bara í þessu máli heldur í ýmsum öðrum málum. Hann skuldar okkur skýringar á þessum yfirlýsingum sínum. Hann telur sig kannski ekki þurfa að færa nein rök eða skýringar fyrir þessu eina jái sínu sem hann kom þarna með. Við þurfum að fá frekari skýringar á þessari yfirlýsingu hans, að þarna hafi verið um hans persónulegu skoðun að ræða. Þá þarf hann að skýra það nánar í öðrum yfirlýsingum, hvenær hann er að tala fyrir sig sjálfan og hvenær fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands. Hann verður að muna að hann er utanríkisráðherra. Engin leið er fyrir okkur að skilja á þessum viðtölum að þarna hafi hann ekki verið að tala sem utanríkisráðherra Íslands.
Í þessu máli almennt vil ég lýsa því hér að ég tel að auðvitað eigi Norðurlandaráð að hafa sem nánasta samvinnu við baltnesku löndin enda held ég að það standi ekkert á Norðurlandaráði að hafa það. Hins vegar er allt annað mál að þessi lönd verði aðilar að Norðurlandaráði. Ég tel að það sé mjög margt sem þurfi að taka til athugunar áður en það getur orðið. Það var alveg nýtt fyrir mér að heyra að þau hefðu sótt um aðild 13. jan. Það hafði ég ekki heyrt áður. En ég tel að það muni kalla á mjög margar breytingar í Norðurlandaráði ef þetta á að geta orðið. Ég get t.d. bent á tungumálaerfiðleika sem því mundu verða samfara.