Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Á dagskrá þessa fundar eru þrjú mál sem leita verður afbrigða um að megi koma á dagskrá og til umræðu vegna þess að of skammt er liðið frá 2. umr. Á dagskránni eru jafnframt brtt. við hvert þessara þriggja mála, það er við 1. dagskrármálið, Framkvæmdasjóður Íslands, brtt. á þskj. 399, við 2. dagskrármálið, Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992, brtt. á þskj. 402 og við 3. dagskrármálið, Lánsfjárlög 1992, brtt. á þskj. 401. Þarf því að leita afbrigða um að þessar brtt. megi koma á dagskrá og til umræðu. Verður nú, ef ekki verða gerðar athugasemdir við það, leitað afbrigða við alla þessa þætti.